Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.06.2022, Blaðsíða 12
Hópurinn fór á gúmmítúttu í land. Það er einstakt að liggja í grasinu á Horninu sjálfu og horfa í allar áttir. Morgunblaðið/Marta María Winkel Jónasdóttir átt að vitanum fóru sjóararnir með farangurinn á náttstaðinn. Gangan tók um fimm klukkutíma og var þægileg og skemmti- leg því í þessari ferð voru ferlega skemmtilegar konur. Sólin skein og það var spenningur í hópnum að koma í Hornbjargs- vita. Hver vill ekki heimsækja helstu stjörnu veðurfréttanna? Nyrsta nef Hornbjargs, sjálft Hornið, er ekki alveg handan við hornið. Fyrst þarftu að keyra til Norðurfjarðar, svo þarftu að taka bát í tvo tíma og svo þarftu að labba í marga klukkutíma áður en draumurinn rætist. MartaMaríaWinkel Jónasdóttir | mm@mbl.is S íðasta sumar fór hópur af konum í göngu- og jógaferð á Hornstrandir. Markmið ferð- arinnar var að ganga út á Horn, sem er nyrsta nef Hornbjargs. Gróa Másdóttir, far- arstjóri hjá Grænum ferðum, skipulagði ferðina en hún fer reglulega með hópa á þennan stað. Þessi ferð var skemmtileg en hún hentar kannski ekki fólki sem nennir ekki veseni. Það er nefnilega vesen að komast út á Horn. Hópurinn keyrði á einkabílum til Norðurfjarðar og gisti þar eina nótt. Morguninn eftir fór hópurinn um borð í bát sem sigldi í átt að Hornbjargsvita þar sem gist var meðan á ferð- inni stóð. Fyrir Reykjavíkurdömur, sem vilja helst sofa með silki- kodda og tætast áfram í lífinu á 12 sentímetra háum hælum, þá var þetta svolítil áskorun. Sem betur fer fundust göngu- skór í bílskúrnum og líka strigaskór, skel, ullarhúfa og prímal- oft-úlpa sem hægt var að hafa meðferðis. Ferðin byrjaði vel. Báturinn kom að landi í Norðurfirði og sigldi með hópinn í Smiðjuvík en þaðan er 12 km ganga yfir í Hornbjargsvita. Á meðan hópurinn labbaði yfir holt og hæðir í Þegar í vitann var komið þurfti reyndar að ferja dótið úr bátnum upp í vitann. Margar hefðu kannski pakkað örlítið léttar ef þær hefðu vitað að þær þyrftu að burðast með dótið sjálfar en það er alltaf hægt að vera vitur eftir á. Næst á dag- skrá var að slást um bestu svefnplássin í vitanum en sú saga verður ekki tíunduð hér. Svo kom að stóru stundunni, að ganga út á Horn. Sú ganga er um 20 km löng og getur tekið átta til tíu klukkutíma. Veður var ágætt þegar hópurinn lagði af stað en á leiðinni var margt að sjá enda fegurðin stórbrotin. Á leiðinni voru heimsmálin krufin en gönguhraðinn var þægilegur þannig að enginn ör- magnaðist. Það voru því glaðir göngugarpar sem komu í Hornbjargsvita reynslunni ríkari. Í ferðinni var líka gengið um svæðið í kringum vitann. Far- ið í sjósund og gerðar jógaæfingar. Ef þú ert þessi útivist- artýpa sem dýrkar að gista í skála þá ættir þú að láta þetta eftir þér. En ef þú ert spariskór frá Reykjavík þá ættir þú líka að láta það eftir þér. Þú kemur einhvern veginn sjóaðri til baka! Hornið sem er ekki alveg handan við hornið Áður en lagt var af stað var farið í Sundlaug Krossness í Norðurfirði. Patagonia-flíspeysa og plast úr sjónum tónuðu vel saman. Ljósmynd/Valentína Björnsdóttir „Gvendarlaug er æði“ A rna er meðeigandi Sambúðarinnar og eigandi modibodi.is. Hún er alltaf með mörg járn í eld- inum og leggur nú mesta áherslu á að innleiða og aðstoða eigendur tjaldsvæða við að komast í Parka Camping-bókunarvélina. „Ég er þess vegna að ferðast svo- lítið um landið og hitta eigendur tjaldsvæða sem eru að koma inn í Parka Camping núna og líka heilsa upp á þá sem hafa verið með í þessu síð- an í fyrra. Ég vildi endi- lega reyna að splæsa sam- an vinnuferð og fjölskyldufríi svo ég húrr- aði allri fjölskyldunni með mér á Vestfirði, þar sem ég þurfti að heimsækja nokkur tjaldsvæði,“ segir Arna. Lætur góðar hugmyndir gerast Þegar Arna var ólétt að dóttur sinni, ákvað hún að næla sér í umboð fyrir Modibodi- túrnærbuxur og opnaði netverslun nokkrum dögum áður en barnið fæddist. „Ég hef rekið þá verslun í rúm fjögur ár. Stuttu síðar opnaði ég, í félagi við þrjár aðrar konur, verslunina Sambúðina, en við vorum all- ar með netverslanir sem selja umhverfisvænar vörur. Okkur fannst sniðugt að sameina krafta okkar og opna eina búð saman. Síðan þegar Co- vid skall á, urðu miklar tafir í verksmiðjunni sem framleiðir Modibodi og okkur dreifingarað- ilunum voru skammtaðar birgð- ir. Í þannig ástandi var ómögulegt fyrir mig að lifa á þessu svo ég tók að mér starf markaðsstjóra Parka. Það hefur nú svolítið tek- ið yfir mitt daglega líf, enda er Parka spennandi fyrirtæki í miklum vexti. Flestir þekkja Parka sem bílastæðaapp en við erum líka með Parka Camping sem er bókunarvél fyrir tjaldsvæði. Ég er mjög hrifin af þeirri vöru, enda gæti ég ekki hugsað mér að keyra með fjölskylduna frá Reykjavík þvert yfir landið, ætla mér að tjalda einhvers staðar og fá svo kannski ekki pláss. Síðan eru líka margir mjög háðir því að geta komist í rafmagn og vilja geta tryggt sér það. Kerfið hentar líka þeim sem eru spontant og mæta bara á svæðið en þeir geta bara skráð sig inn og greitt með sjálfsafgreiðslu,“ segir hún. Hvað með áhuga þinn á Vesturlandi? „Fyrir mér er mjög sérstakt að heimsækja Vestfirði, en ég gef mér sjaldan tíma í svona langt ferðalag.“ Jurtalitun vekur áhuga hennar Hvert mælir þú með að fara í heimsókn þang- að? „Rauðisandur er stórkostlegur staður sem ég hef heimsótt nokkrum sinnum. Þar er hægt að tjalda á tjaldsvæðinu Melanesi. Mér finnst líka gaman að fara til Hólmavíkur og skoða Galdra- safnið. Nábrækurnar eru náttúrlega nokkuð sem allir þurfa að sjá en mér finnst samt tilber- arnir ógeðfelldastir. Sundlaugin og potturinn við Gvendarlaug eru æði og þar er notalegt og skjólsælt tjaldsvæði. Af því að ég bý í Reykjavík finnst mér líka oft voða mátulegt ferðalag að skreppa á Snæfellsnes. Svæðið í kringum Arn- arstapa er svo fallegt og margt hægt að gera, eins og að fara í hellaskoðun eða bara skoða Búðakirkju,“ segir Arna. Þegar kemur að textíl og hönnun, þá er Arna mjög áhugasöm um jurtalitun. „Ég er gríðarlega áhugasöm um alla jurtalit- un og finnst þess vegna gaman að sjá jurtalitað band. Hjá Ullarsetrinu á Hvanneyri er hægt að skoða ýmislegt skemmtilegt, meðal annars jurtalitaða ull. Mér finnst svo merkilegt að til dæmis lúpína gerir skærgulan lit og avókadó gerir bleikan,“ segir hún. Hvernig væri draumaferðalagið þitt um þennan landshluta? „Draumaferðalagið mitt um Vesturland væri það sem ég hefði nægan tíma til að heimsækja allar náttúrulaugarnar!“ Að keyra Vestfirði ekki fyrir óþolinmóða Er eitthvað sem þú mælir með að fólk forðist á þessum slóðum? „Vegurinn niður að Rauðasandi er ekki fyrir bílhrædda. Að keyra Vestfirði er heldur ekki fyrir óþolinmóða. Það getur alveg tekið á taug- arnar að keyra firðina fram og til baka þegar manni finnst að það væri næstum hægt að hoppa yfir,“ segir Arna brosandi og bætir við: „Við erum svo heppin að eiga heima á þessu landi. Þó ég sé mjög mikið borgarbarn, þá finnst mér dásamlegt að heimsækja landið mitt og skoða náttúruna. Ég held að það besta sem hafi gerst í Covid hafi verið að þá gátum við farið á vinsæla ferðamannastaði og verið eina fólkið á svæðinu. Ég fór til dæmis að Geysi með fjöl- skyldunni og þar var enginn nema við, ein- hverjir starfsmenn og einn lítill hópur. Síðan fórum við að Gullfossi og vorum eina fólkið á svæðinu. Hversu magnað er það, að fá einka- sýningu á Gullfossi? Það er nokkuð sem ég held að muni aldrei aftur gerast,“ segir Arna. Arna Sigrún Haraldsdóttir, markaðsstjóri Parka, myndi heimsækja allar náttúrulaugar á Vesturlandi í drauma- ferðalagi sínu um landsvæðið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Gvendarlaug hins góða er yl- volg 25 metra sundlaug með náttúrulegu heitu vatni. Arna segir Rauða- sand stórkostlegan stað sem hún hefur heimsótt nokkrum sinnum. 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.