Morgunblaðið - 15.06.2022, Qupperneq 12
Hópurinn fór á
gúmmítúttu í land.
Það er einstakt að liggja í grasinu á
Horninu sjálfu og horfa í allar áttir.
Morgunblaðið/Marta María Winkel Jónasdóttir
átt að vitanum fóru sjóararnir með farangurinn á náttstaðinn.
Gangan tók um fimm klukkutíma og var þægileg og skemmti-
leg því í þessari ferð voru ferlega skemmtilegar konur. Sólin
skein og það var spenningur í hópnum að koma í Hornbjargs-
vita. Hver vill ekki heimsækja helstu stjörnu veðurfréttanna?
Nyrsta nef Hornbjargs, sjálft Hornið, er ekki
alveg handan við hornið. Fyrst þarftu að
keyra til Norðurfjarðar, svo þarftu að taka bát
í tvo tíma og svo þarftu að labba í marga
klukkutíma áður en draumurinn rætist.
MartaMaríaWinkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
S
íðasta sumar fór hópur af konum í göngu- og
jógaferð á Hornstrandir. Markmið ferð-
arinnar var að ganga út á Horn, sem er
nyrsta nef Hornbjargs. Gróa Másdóttir, far-
arstjóri hjá Grænum ferðum, skipulagði ferðina en hún
fer reglulega með hópa á þennan stað. Þessi ferð var
skemmtileg en hún hentar kannski ekki fólki sem nennir
ekki veseni. Það er nefnilega vesen að komast út á Horn.
Hópurinn keyrði á einkabílum til Norðurfjarðar og gisti
þar eina nótt. Morguninn eftir fór hópurinn um borð í bát sem
sigldi í átt að Hornbjargsvita þar sem gist var meðan á ferð-
inni stóð.
Fyrir Reykjavíkurdömur, sem vilja helst sofa með silki-
kodda og tætast áfram í lífinu á 12 sentímetra háum hælum,
þá var þetta svolítil áskorun. Sem betur fer fundust göngu-
skór í bílskúrnum og líka strigaskór, skel, ullarhúfa og prímal-
oft-úlpa sem hægt var að hafa meðferðis.
Ferðin byrjaði vel. Báturinn kom að landi í Norðurfirði og
sigldi með hópinn í Smiðjuvík en þaðan er 12 km ganga yfir í
Hornbjargsvita. Á meðan hópurinn labbaði yfir holt og hæðir í
Þegar í vitann var komið þurfti reyndar að ferja dótið úr
bátnum upp í vitann. Margar hefðu kannski pakkað örlítið
léttar ef þær hefðu vitað að þær þyrftu að burðast með dótið
sjálfar en það er alltaf hægt að vera vitur eftir á. Næst á dag-
skrá var að slást um bestu svefnplássin í vitanum en sú saga
verður ekki tíunduð hér.
Svo kom að stóru stundunni, að ganga út á Horn. Sú ganga
er um 20 km löng og getur tekið átta til tíu klukkutíma. Veður
var ágætt þegar hópurinn lagði af stað en á leiðinni var margt
að sjá enda fegurðin stórbrotin. Á leiðinni voru heimsmálin
krufin en gönguhraðinn var þægilegur þannig að enginn ör-
magnaðist. Það voru því glaðir göngugarpar sem komu í
Hornbjargsvita reynslunni ríkari.
Í ferðinni var líka gengið um svæðið í kringum vitann. Far-
ið í sjósund og gerðar jógaæfingar. Ef þú ert þessi útivist-
artýpa sem dýrkar að gista í skála þá ættir þú að láta þetta
eftir þér. En ef þú ert spariskór frá Reykjavík þá ættir þú
líka að láta það eftir þér. Þú kemur einhvern veginn sjóaðri til
baka!
Hornið sem
er ekki alveg
handan við
hornið
Áður en lagt var af stað
var farið í Sundlaug
Krossness í Norðurfirði.
Patagonia-flíspeysa og
plast úr sjónum tónuðu
vel saman.
Ljósmynd/Valentína Björnsdóttir
„Gvendarlaug er æði“
A
rna er meðeigandi Sambúðarinnar og
eigandi modibodi.is.
Hún er alltaf með mörg járn í eld-
inum og leggur nú mesta áherslu á að
innleiða og aðstoða eigendur tjaldsvæða við að
komast í Parka Camping-bókunarvélina.
„Ég er þess vegna að ferðast svo-
lítið um landið og hitta eigendur
tjaldsvæða sem eru að koma
inn í Parka Camping núna
og líka heilsa upp á þá sem
hafa verið með í þessu síð-
an í fyrra. Ég vildi endi-
lega reyna að splæsa sam-
an vinnuferð og
fjölskyldufríi svo ég húrr-
aði allri fjölskyldunni með
mér á Vestfirði, þar sem ég
þurfti að heimsækja nokkur
tjaldsvæði,“ segir Arna.
Lætur góðar hugmyndir gerast
Þegar Arna var ólétt að dóttur sinni, ákvað
hún að næla sér í umboð fyrir Modibodi-
túrnærbuxur og opnaði netverslun nokkrum
dögum áður en barnið fæddist.
„Ég hef rekið þá verslun í rúm fjögur ár.
Stuttu síðar opnaði ég, í félagi við þrjár aðrar
konur, verslunina Sambúðina, en við vorum all-
ar með netverslanir sem selja umhverfisvænar
vörur. Okkur fannst sniðugt að sameina krafta
okkar og opna eina búð saman. Síðan þegar Co-
vid skall á, urðu miklar tafir í verksmiðjunni
sem framleiðir Modibodi
og okkur dreifingarað-
ilunum voru skammtaðar birgð-
ir. Í þannig ástandi var ómögulegt
fyrir mig að lifa á þessu svo ég tók að mér starf
markaðsstjóra Parka. Það hefur nú svolítið tek-
ið yfir mitt daglega líf, enda er Parka spennandi
fyrirtæki í miklum vexti. Flestir þekkja Parka
sem bílastæðaapp en við erum líka með Parka
Camping sem er bókunarvél fyrir tjaldsvæði.
Ég er mjög hrifin af þeirri vöru, enda gæti ég
ekki hugsað mér að keyra með fjölskylduna frá
Reykjavík þvert yfir landið, ætla mér að tjalda
einhvers staðar og fá svo kannski ekki pláss.
Síðan eru líka margir mjög háðir því að geta
komist í rafmagn og vilja geta tryggt sér það.
Kerfið hentar líka þeim sem eru spontant og
mæta bara á svæðið en þeir geta bara skráð sig
inn og greitt með sjálfsafgreiðslu,“ segir hún.
Hvað með áhuga þinn á Vesturlandi?
„Fyrir mér er mjög sérstakt að heimsækja
Vestfirði, en ég gef mér sjaldan tíma í svona
langt ferðalag.“
Jurtalitun vekur áhuga hennar
Hvert mælir þú með að fara í heimsókn þang-
að?
„Rauðisandur er stórkostlegur staður sem ég
hef heimsótt nokkrum sinnum. Þar er hægt að
tjalda á tjaldsvæðinu Melanesi. Mér finnst líka
gaman að fara til Hólmavíkur og skoða Galdra-
safnið. Nábrækurnar eru náttúrlega nokkuð
sem allir þurfa að sjá en mér finnst samt tilber-
arnir ógeðfelldastir. Sundlaugin og potturinn
við Gvendarlaug eru æði og þar er notalegt og
skjólsælt tjaldsvæði. Af því að ég bý í Reykjavík
finnst mér líka oft voða mátulegt ferðalag að
skreppa á Snæfellsnes. Svæðið í kringum Arn-
arstapa er svo fallegt og margt hægt að gera,
eins og að fara í hellaskoðun eða bara skoða
Búðakirkju,“ segir Arna.
Þegar kemur að textíl og hönnun, þá er Arna
mjög áhugasöm um jurtalitun.
„Ég er gríðarlega áhugasöm um alla jurtalit-
un og finnst þess vegna gaman að sjá jurtalitað
band. Hjá Ullarsetrinu á Hvanneyri er hægt að
skoða ýmislegt skemmtilegt, meðal annars
jurtalitaða ull. Mér finnst svo merkilegt að til
dæmis lúpína gerir skærgulan lit og avókadó
gerir bleikan,“ segir hún.
Hvernig væri draumaferðalagið þitt um
þennan landshluta?
„Draumaferðalagið mitt um Vesturland væri
það sem ég hefði nægan tíma til að heimsækja
allar náttúrulaugarnar!“
Að keyra Vestfirði ekki fyrir óþolinmóða
Er eitthvað sem þú mælir með að fólk forðist
á þessum slóðum?
„Vegurinn niður að Rauðasandi er ekki fyrir
bílhrædda. Að keyra Vestfirði er heldur ekki
fyrir óþolinmóða. Það getur alveg tekið á taug-
arnar að keyra firðina fram og til baka þegar
manni finnst að það væri næstum hægt að
hoppa yfir,“ segir Arna brosandi og bætir við:
„Við erum svo heppin að eiga heima á þessu
landi. Þó ég sé mjög mikið borgarbarn, þá finnst
mér dásamlegt að heimsækja landið mitt og
skoða náttúruna. Ég held að það besta sem hafi
gerst í Covid hafi verið að þá gátum við farið á
vinsæla ferðamannastaði og verið eina fólkið á
svæðinu. Ég fór til dæmis að Geysi með fjöl-
skyldunni og þar var enginn nema við, ein-
hverjir starfsmenn og einn lítill hópur. Síðan
fórum við að Gullfossi og vorum eina fólkið á
svæðinu. Hversu magnað er það, að fá einka-
sýningu á Gullfossi? Það er nokkuð sem ég held
að muni aldrei aftur gerast,“ segir Arna.
Arna Sigrún Haraldsdóttir,
markaðsstjóri Parka, myndi
heimsækja allar náttúrulaugar
á Vesturlandi í drauma-
ferðalagi sínu um landsvæðið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Gvendarlaug hins góða er yl-
volg 25 metra sundlaug með
náttúrulegu heitu vatni.
Arna segir Rauða-
sand stórkostlegan
stað sem hún hefur
heimsótt nokkrum
sinnum.
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022