Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Page 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022
M
æðraveldi. Mér skilst að konurnar stjórni öllu hjá ykkur.“ Þannig
svaraði Adam Clayton, bassaleikari ofurbandsins U2, spurningu
þess efnis hvað hann vissi um Ísland í viðtali á útvarpsstöðinni
X977 seint á föstudagskvöldi fyrir skemmstu. Því miður fylgdi þáttarstjórn-
andinn, Smutty Smiff, þessu bráðáhugaverða svari ekki eftir. Svaraði bara
blaðskellandi eitthvað á þessa leið: „Láttu mig þekkja það, lagsi. Konan mín
ræður öllu heima hjá mér.“
Smutty er svo sem vorkunn. Hann hefur ábyggilega átt von á því, eins og
við öll hin, að Clayton færi að tala
fjálglega um stórbrotna náttúru
landsins, funheita hveri og tilkomu-
mikil vatnsföll. Eins og menn jafnan
gera. Eða þá jafnvel Sigur Rós eða
Björk. En það var öðru nær. Næst
þegar næst í kappann í síma héðan
frá Íslandi er mjög áríðandi að
spyrja hann betur út í þessa fullyrð-
ingu. Hvers vegna er mæðraveldi
það fyrsta sem Adam Clayton dett-
ur í hug þegar Ísland ber á góma?
Eins og það verði eitthvað næst.
Liðsmenn U2 eru nefnilega ekki
daglega í einkaviðtölum í ljósvakamiðlum eða blöðum hér í fásinninu. Man
raunar aldrei eftir því sjálfur en dettur helst í hug að Ólafur Páll Gunn-
arsson á Rás 2 gæti hafa hnotið um einhvern af þeim félögum á einhverju
festivalinu erlendis. Hvort mæðraveldi bar þar á góma er þó hæpið.
Ekki svo að skilja að samtal þeirra félaga, Smuttys Smiffs og Adams
Claytons, hafi komið sérstaklega á óvart. Smutty Smiff er nefnilega stór-
merkilegur maður með ótrúlegar tengingar hingað og þangað um tónlist-
arheiminn. Fyrir þá sem ekki vita þá erum við að tala um breskan tengda-
son Íslands. Smutty er gamall svona rokkabillípönkhundur og ýmist þekkir
persónulega eða hefur spilað með mörgum þekktustu rokkurum sögunnar.
Svo var hann í The Factory með Andy Warhol um tíma og ritaði um það
bók.
Í samtalinu, sem var bráðskemmtilegt, kom fram að Clayton vissi allt um
Smutty og hafði gert sig líklegan til að beita sér í máli sem komst fyrir fá-
einum misserum í heimspressuna; það er þegar gamli bassinn hann Smut-
tys fannst í New York eftir að hafa verið týndur í tæpa fjóra áratugi. Þá-
verandi vörslumaður fór eitthvað að þenja sig og heimta fé fyrir gripinn en
var snarlega púaður niður og Smutty endurheimti bassann áður en Clayton
þurfti að hnykla vöðvana. Það hefði orðið mergjað símtal: „Skilir þú ekki
bassanum, lufsan þín, þá siga ég íslenska mæðraveldinu á þig!“
Mér skilst að kon-
urnar stjórni öllu
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Það hefði orðið mergj-
að símtal: Skilir þú
ekki bassanum, lufsan
þín, þá siga ég íslenska
mæðraveldinu á þig!
Elísabet Ingólfsdóttir
Venjulega er ég með hamborgar-
hrygg en í ár er það eitthvað létt.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
er í páska-
matinn?
Róbert Magnússon
Við erum að fara í mat til mömmu
og pabba.
Elín Valgeirsdóttir
Lambalæri, mjög klassískt.
Magnús Dagur Gottskálksson
Ég er vegan þannig að líklega
vegansteik. Ég finn mér eitthvað
girnilegt í Hagkaup.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Heiðra stórkost-
legan frumkvöðul
Hvert er tilefni af þessum stórtónleikum til
heiðurs söngkonunni Ellu Fitzgerald?
Hún er bara svo mikil uppáhaldssöngkona hjá okkur svo mörgum.
Við Rebekka Blöndal fengum þessa hugmynd og hóuðum í þessar
stelpur með okkur. Ella átti afmæli 25. apríl og þetta var besti dag-
urinn næst afmælinu hennar og svo er þetta síðasti vetrardagur svo
það er frí daginn eftir. Þannig að ástæðan er í raun afmælið hennar og
ást okkar á Ellu og tónlistinni.
Af hverju er Ella Fitzgerald í svona miklu uppáhaldi?
Hún var stórkostlegur listamaður og mikill frumkvöðull í þessum skatt-
söng sem einkennir hana og fyrir svo marga nútímadjasssöngvara í dag.
Hún braut blað með þessum söng. Hún gerði líka svo margar magnaðar
upptökur og var með þessa stórkostlegu rödd.
Áttu þér einhver uppáhaldslög með henni?
Lady Be Good og Day Dream. Það eru einmitt lögin sem ég ætla að syngja
á tónleikunum.
Hvaða tónlistarkonur stíga með þér á svið?
Ragnheiður Gröndal, Rebekka Blöndal, Sigrún Erla og Guðlaug Dröfn. Við
erum allar lærðar djasssöngkonur og allar svona skattsyngjandi konur.
Hverjir aðrir koma fram?
Karl Olgeirsson píanóleikari leiðir bandið, Ásgeir Ásgeirsson spilar á gítar,
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur.
Þetta er algjört „all-star line-up“. Svo ætlar Sigurlaug Jónasdóttir að kynna og
segja nokkrar skemmtilegar sögur af Ellu í leiðinni. Hún límir þannig saman
skemmtilega kvölddagskrá.
Hverju mega gestir búast við leggi þeir leið sína í Salinn á
miðvikudagskvöld?
Öll helstu lögin sem menn þekkja með Ellu verða á boðstólum en líka lög sem mað-
ur heyrir sjaldnar. En þetta verða allt lög sem við tengjum persónulega við hana.
Við syngjum tvö lög hver og svo verða líka dúettar og skemmtileg syrpa.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Kristjana og fjórar aðrar djasssöngkonur halda stórtónleika til heiðurs Ellu Fitzgerald
í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 20. apríl kl. 19.30. Miðar fást á tix.is.