Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022 Önnur umferð einkavæð- ingar Íslandsbanka var mjög til umfjöllunar í vik- unni, en þá kom í ljós óeining í rík- isstjórninni um hana. Lilja Alfreðs- dóttir viðskiptaráðherra lét þannig í sér heyra með afdráttarlausum hætti og kvaðst hafa verið mótfallin aðferðinni. Nýjum samningum milli Sjúkra- trygginga, fyrirtækja í velferð- arþjónustu og sveitarfélaga var vel tekið, en þar var tryggt aukið fjár- magn, alls um 130 ma.kr. til 45 hjúkrunarheimila. Samningarnir eru til þriggja ára. Starfshópur um orkumál á Vest- fjörðum telur efla þurfi raforkukerfi fjórðungsins með a.m.k. einni öflugri virkjun og nokkrum minni. Bindandi kauptilboði í varðskipin og systurskipin Ægi og Tý var tekið, en íslenskur kaupandi bauð 125 millj- ónir króna í skipin, sem voru smíðuð fyrir Landhelgisgæsluna 1968 og 1975 og tóku dyggan þátt í þorska- stríðunum. Bæjarstjórn Stykkishólms leggur til að hluta tekna ríkissjóðs vegna bankasölu verði varið í að kaupa nýja Breiðafjarðarferju. Sú gamla sætti nokkurri gagnrýni í sjónvarpsþætti í vikunni. Velferðarsjóðurinn Vinátta í verki undir stjórn Hrafns Jökulssonar gekkst fyrir hátíð á Grænlandi um páskana í samvinnu við Grænlands- vini, Veraldarvini og fjölda fyr- irtækja. Ný kosningalög gera nánast ómögulegt að skipa kjörstjórn í smærri byggðarlögum, vegna hæ- fiskrafna um að kjörstjórnarmenn megi ekki tengjast frambjóðendum í sjöunda lið. Sérstaklega þó í óhlut- bundum kosningum, þar sem allir eru í kjöri. Davíð Scheving Thorsteinsson iðnrekandi lést, 92 ára að aldri. . . . Sólveig Anna Jónsdóttir, sem er nýtekin við formannsembætti verka- lýðsfélagsins Eflingar á ný, átti óvænt útspil þegar hún rak alla starfsmenn félagsins og bar við skipulagsbreytingum og launabreyt- ingum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra setti ofan í við Lilju Alfreðs- dóttur viðskiptaráðherra og sagði að hvorki Lilja né nokkur annar ráð- herra hafi óskað að færa eitt eða neitt til bókar um söluferlið, hvorki í ríkisstjórn né ráðherranefnd um efnahagsmál. Fjármálaeftirlit Seðlabankans tók hins vegar tiltekna þætti útboðsins á hlutum í Íslandsbanka til skoðunar, einkum þeim er sneru að starfs- háttum söluráðgjafa útboðsins. Mikið gekk á utan við og inni í Hval- firði, þar sem heræfingar fóru fram í íslensku gluggaveðri, þar sem þyrl- ur, svifnökkvar, bryndrekar og bandarískir landgönguliðar komu við sögu. Önnur umsvif Bandaríkjahers voru einnig til umræðu, en forkönnun á mengun við gömlu ratsjárstöðina á Heiðarfjalli á Langanesi leiddi í ljós að miklu þarf að kosta til við hreins- un þar. Í jarðvegi er m.a. að finna PCB og þungmálma. Landskjörstjórn ákvað að skilja ný kosningalög þannig að hæfisskilyrði kjörstjórnarmanna ættu ekki við þar sem óhlutbundin kosning færi fram. Móttaka úkraínskra flóttamanna hefur gengið mun betur eftir að ný móttökumiðstöð í Domus Medica var tekin í gagnið. Þó hefur ekki gengið nógu hratt að gera lækn- isskoðanir. Þegar eru 728 flótta- menn frá Úkraínu komnir til lands- ins. Könnun á brunavörnum í landinu leiddi í ljós að reykskynjarar eru í 98% heimila landsins. . . . Margir brugðust ókvæða við harka- legum aðgerðum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, sem þeir töldu bera vott um skefjalausan hefndarþorsta, en aðrir töldu að þar væri vinnuveitendum fært fordæmi á silfurfati. Samherjar Sólveigar Önnu í átökum innan Alþýðusambandsins, sem fara fyrir öðrum samtökum launþega, voru ekki við símann þann daginn, en sumir aðrir verkalýðsforingjar sögðu vinnubrögðin óvönduð og að lög um hópuppsagnir hefðu verið misnotuð. Lokaverð hluta Íslandsbanka, sem seldir voru í nýliðnu útboði Banka- sýslunnar, réðst að miklu leyti af af- stöðu lífeyrissjóða í aðdraganda þess. Þeir þrýstu mjög á afslátt frá markaðsverði ættu þeir að vera með. Þess var minnst að 50 ár voru liðin frá dauða Jóhannesar S. Kjarvals, helsta jöfurs íslenskrar myndlistar. Það var gert með því að bjóða upp á brauðsneið á kaffistofu Kjarvals- staða, sem líklegt þótti að honum hefði fallið í geð hefði honum enst aldur til. Landsvirkjun hefur til athugunar að hefja rafeldsneytisverkefni vegna orkuskipta í samgöngum, annars vegar á vetni fyrir stóra bíla og hins vegar metanóli fyrir flotann. Miklar annir voru í Leifsstöð í dymbilviku, en sexfalt fleiri flug verða þar um páskana en endranær. Mikill ferðahugur er í fólki eftir ferðatakmarkanir plágunnar og tals- vert um að fólk framlengi dvöl ytra. Vel er bókað í farþegaskip á leið til Íslands í sumar og vonir um að skipaferðir verði í einhverri líkingu við það sem gerðist fyrir faraldur. . . . Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara- formaður Eflingar, var meðal þeirra, sem sagt var upp störfum í hreins- unum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, sem þar er orðinn formaður á ný. Agnieszka dregur lögmætið í efa. Vandræði vegna nýrra kosningalaga héldu áfram, en formaður kjör- stjórnar í Skorradalshreppi spurði Persónuvernd hvort það stæðist að birta þyrfti kennitölur og starfsheiti fólks, sem beiddist undan kjöri í óhlutbundinni kosningu. Framkvæmdastjóri Sorpu vonast til þess að unnt verði að endurræsa Gaju, jarðgerðarstöð Sorpu í Álfs- nesi, í næsta mánuði. Starfsemin þar raskaðist í fyrra vegna myglu. Miklar sveiflur hafa verið í stöðu- vötnum, sem ber vott um öfgar í vatnsbúskap landsins. Í fyrra lækk- aði grunnvatnsstaða víða og skammt er síðan yfirborð helstu vatnslóna var óþægilega lágt, en leysingar og miklar rigningar hafa bætt úr því. Ekki stendur til að gera víðtækar breytingar á starfsumhverfi leigu- bíla að sinni, en hins vegar á að fjölga atvinnuleyfum leigubílstjóra á höfuðborgarsvæðinu og Suð- urnesjum úr 580 í 680. Viðvarandi hörgull er sagður á leigubílum. Kórónuveirufaraldurinn er nú á hraðri niðurleið og líklegt talið að hjarðónæmi hafi náðst. Hins vegar hrjá langvinn einkenni um 10-15% þeirra, sem veikst hafa. Ásdís Halla Bragadóttir var ráðin ráðuneytisstjóri í nýju háskóla-, ný- sköpunar- og iðnaðarráðuneyti. Elías Snæland Jónsson, ritstjóri og rithöfundur, er látinn, 79 ára gamall. . . . Ráðist var á mann af tveimur öðrum og hann stunginn með hníf í mið- bænum á föstudagsnótt. Hann þurfti að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi og lögreglan hafði hend- ur í hári árásarmannanna síðar um nóttina. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði hópuppsagnir starfs- manna Eflingar hafa komið sér á óvart, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um aðferðirnar. Margir starfs- manna Eflingar eru félagar í VR. Af starfsmönnunum Eflingar var það að segja að þeir komust ekki lengur inn á innri vef skrifstofunnar, þrátt fyrir að þeir viti ekki annað en að þeir séu þar enn að störfum. Nokkur hundruð manns komu á mótmælafund sem ýmis stjórn- arandstöðusamtök efndu til vegna sölu á hlutum í Íslandsbanka. Ræðu- mennirnir voru á því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra yrði að segja af sér. Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver- andi forsætisráðherra, kvaddi sér óvænt hljóðs á Facebook og sagði bankasöluna „sukk og svínarí“ sem ekki kom jafnmikið á óvart. Vor kann að vera í lofti og jafnvel spáð allt að 14°C hita. Gleðilega páska! Heræfingar og innanlandsófriður Mikið gekk á í Hvalfirði þar sem heræfingar fóru fram í vikunni og landganga æfð. Ófriðlegra virtist þó á innanlandsvett- vangi með hreinsunum og átökum í verkalýshreyfingu og deilum um bankasölu í ríkisstjórn og kaffistofum landsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg 10.4.-15.4. Andrés Magnússon andres@mbl.is Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Tokyo línan Fáanlegt í svörtu, hnotu og eik

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.