Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Qupperneq 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022 Þ að er búið að byggja lítinn virk- isvegg úr pullum í stofunni hjá Hönnu og Arnari því það þarf að hafa auga með þremur litlum kríl- um, nýorðnum eins árs. Blaða- maður er mættur til Keflavíkur til að heyra sögu þessarar fjölskyldu sem stækkaði heldur betur hinn 1. apríl 2021 þegar þríburarnir fæddust, þeir fyrstu á Íslandi þá í fjögur ár. Þorri, Bjartur og Írena horfa forvitin á gestinn sem klofar yfir „vegginn“ með stóra myndavél um hálsinn. Bjartur og Írena skríða um gólf á meðan Þorri gengur um, örlítið valtur enda nýfarinn að labba. Bjartur, sem er með sætar krullur, reynir að teygja sig í áttina að mynda- vélinni og Írena horfir stórum bláum augum á aðfarirnar. Krúttskalinn þarna er við það að springa. Grínuðust með tvíburana okkar Parið kynntist fyrir ellefu árum í partíi á Ásbrú og ástin greip þau föstum tökum, þá ekki orðin tvítug. Hanna hefur starfað sem kennari í heimabæ sínum Keflavík og Arnar er sérfræðingur hjá Isavia. Þau vildu gjarnan eignast barn en það kom ekki eftir pöntun. „Það tók mjög langan tíma að eignast Ingi- berg en við höfðum reynt í sex ár,“ segir Hanna, en þegar þau voru næstum búin að gefa upp alla von varð hún ólétt að Ingiberg litla, sem verður þriggja ára í sumar. Þegar hann var um eins árs ákváðu þau að bæta við einu barni og gefa drengnum lítið systkini, en miðað við fyrri reynslu vissu þau ekki hvað það myndi taka langan tíma. Almættið hafði stór plön fyrir litlu fjölskyld- una því Hanna varð ólétt innan tveggja mán- aða og komst að því fljótt að ekki var aðeins von á einu barni. „Okkur grunaði strax að ég gæti verið með tvíbura því það er mikið um tvíbura í ættinni. Systkini mín eru tvíburar, en ég er fimm árum eldri en þau,“ segir Hanna. „Ég fór svo í snemmsónar þegar ég var komin sex vikur á leið og þá sást strax að það voru þrjú,“ segir Hanna og Arnar hlær að minningunni. „Við vorum búin að vera að grínast með tví- burana okkar en það var þannig að þegar Hanna tók óléttupróf mjög snemma á með- göngu kom um leið svört lína. Þá vorum við viss um að þau væru tvö,“ segir hann. Þurfti að anda mig í gegnum þetta Getið þið lýst þessu augnabliki þegar lækn- irinn segir ykkur að það séu þrjú? „Ég fór bara að gráta en Arnar fór að hlæja,“ segir Hanna. „Já, við tókum sjokkið hvort í sína áttina,“ segir Arnar. „Ég sá strax tvo sekki og spyr hvort það séu tvíburar á leiðinni. Læknirinn fer að skoða þetta betur og svarar: „Nei, það eru þríburar!“ Hann var eiginlega í sjokki sjálfur,“ segir Hanna. Fréttirnar voru að vonum yfirþyrmandi og Hanna segist strax hafa farið að hugsa um framtíðina. „Við vorum nýbúin að kaupa okkur litla íbúð og lítinn fjölskyldubíl og bjuggumst við einu barni í viðbót og höfðum hugsað okkur að þau yrðu saman í einu herbergi. Ég hugsaði að við þyrftum nýja íbúð og nýjan bíl,“ segir Hanna og Arnar tekur undir það. „Það fóru þúsund hugsanir af stað,“ segir hann. „Við fórum svo út í bíl og sátum þar í svona klukkutíma og ég þurfti að anda mig í gegnum þetta,“ segir Hanna. Hvað tók það langan tíma að melta það að það væru þrjú börn á leiðinni? „Ég held að við séum ekki ennþá búin að ná því,“ segir hún og Arnar skellihlær. „Á meðgöngunni sátum við oft saman í sóf- anum á kvöldin og sprungum svo allt í einu úr hlátri yfir því að það væru í alvöru þríburar á leiðinni,“ segir hún. „Foreldrar Hönnu brugðust svipað við, nema öfugt. Mamma hennar fór að skellihlæja en pabbi hennar stóð bara undrandi með tárin í augunum,“ segir Arnar. Hanna segist í raun ekki hafa strax hugsað um hvernig það yrði að ganga með þrjú börn heldur hafi fyrstu áhyggjurnar verið af þess- um praktísku hlutum. Þarna mitt í sjokkinu hugsuðu þau bæði: Hvernig gerum við þetta með bílinn? Hjónin halda úti fjölburahlaðvarpi sem heit- ir Fjölburafjör. „Við fáum til okkar fjölburaforeldra og um níutíu prósent af þeim sögðu að við fyrsta sjokkið hefðu þau strax farið að hugsa um bíl- inn. Eins og það sé stærsta vandamálið,“ segir Arnar og hlær. Þess má geta að Ragnhildur Steinunn Jóns- dóttir dagskrárgerðarkona og Eiríkur Ingi Böðvarsson kvikmyndagerðarmaður hafa fylgt fjölskyldunni eftir fyrir heimildaþátt sem sýndur verður á RÚV, líklega um áramótin. Fluttu fjórum dögum fyrir fæðingu Meðgangan gekk vel að sögn Hönnu en þó fékk hún mikla grindargliðnun, bakflæði og meðgöngusykursýki. „Ég fann ekki fyrir sykursýkinni því ég náði að halda henni niðri,“ segir Hanna og Arnar bætir við að síðustu þrjá mánuði fyrir fæðingu hafi þau búið hjá foreldrum Hönnu því þau Bjartur, Írena og Þorri héldu upp á fyrsta af- mælisdaginn 1. apríl. Morgunblaðið/Ásdís Átján bleiur fyrir hádegi Ungt par á Suðurnesjum, Hanna Björk Hilmarsdóttir og Arnar Long Jóhannsson, eignaðist þríbura fyrir rétt rúmu ári, þau Þorra, Bjart og Írenu. Fyrir áttu þau Ingiberg, sem þá var eins og hálfs árs. Það er því líf og fjör á heimilinu og oft reynir á þolrifin en foreldrarnir myndu ekki vilja hafa hlutina á neinn annan hátt. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Ég náði að tengjast þeim strax en þegar maður fær þrjú börn upp í hendurnar tekur það langan tíma að tengjast hverju og einu barni. Fyrst teng- ist maður bara þeim sem heild; þríburunum. Nú finnst mér bara skrítið að segja þríburarnir. Þau eru bara Írena, Þorri og Bjartur.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.