Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022
TÍSKA
S
kór og töskur eru minn helsti
veikleiki, einnig mætti segja
að kjólar séu í uppáhaldi enda
var bókin um prinsessuna sem átti
365 kjóla ein af mínum uppáhalds-
bókum sem barn. Ég segi nú ekki að
ég eigi svo marga kjóla en jú þeir eru
nokkrir,“ segir Katrín þegar hún er
spurð fyrir hverju hún falli oftast.
Áttu þér uppáhaldsmerki eða
-hönnuð?
„Ég hef alltaf verið hrifin af fal-
legum kvenlegum kjólum og drögt-
um. Escada er til dæmis ofurfallegt
og elegant merki. Ég keypti til dæmis
í haust fallegan kjól frá þeim og bíð
eftir tækifæri til að nota hann.“
Hvað finnst þér setja punktinn yfir
i-ið þegar þú gerir þig til?
„Taska og skór, ekki verra ef settið
er samstætt. Ég á voða erfitt með að
vera ósamstæð, er svo mikil meyja.“
Hvað er í uppáhaldi í fataskápnum
þínum?
„Nokkur pör af dásamlegum skóm
og nokkrar töskur sem ég horfi
stundum á en nota ekki oft.“
Bestu kaup sem þú hefur gert?
„Ein bestu kaup sem ég hef gert
eru Stenströms-jakkapeysurnar, ég
verð ekki leið á þeim. Þær eru dæmi
um klassískar og tímalausar flíkur.
Töskurnar mínar eru líka klassískar
og gætu flokkast undir góð kaup.“
Katrín stofnaði nýver-
ið golffataverslunina
Golfa.is. Hún fékk hug-
myndina síðastliðið
haust þegar hún var í
golfferð með manninum
sínum.
„Mér hafði lengi
fundist einsleitt úrvalið
heima á golffatnaði og
jafnvel sömu merkin
til sölu í nokkrum
verslunum. Ég rakst
svo á eitt merkið sem
ég er með, Tail
Activewear, í versl-
un á golfvelli. Ég
sendi fyrirspurn og
kynnti mig og fékk
svar næsta dag. Í
nokkra daga
gengu svo tölvu-
póstar á milli mín
og umboðsmanns þar til að
því kom að ég sagði við
manninn minn að ég þyrfti
að taka ákvörðun um að
stökkva í laugina, sem ég
gerði. Á sama tíma gafst mér
tækifæri til að taka inn Golf-
tini og Belyn Key og nú
voru að bætast við virki-
lega vandaðar merínó-
ullarpeysur frá Birdie
London. Það er gaman að segja frá
því að flest þessara merkja eru
hönnuð af konum sem fannst
eitthvað vanta á golfmarkaðinn
fyrir konur. Fljótlega munu
flott golfbelti verða í boði hjá
golfa.is.
Þrátt fyrir að vera í nán-
ast fullu starfi þá langaði
mig að prófa að bæta við
mig þessu konsepti. Það
fer bara vel með starfi
mínu enda er Golfa.is eins
og fyrr segir vefverslun,“
segir Katrín. Þrátt fyrir að
verslunin sé vefverslun býr
hún vel og er með huggulega
aðstöðu í bílskúrnum þar sem
hún getur tekið á móti við-
skiptavinum.
Golffatnaður skiptir marga
miklu máli og þá er ekki bara
talað um þægindin heldur líka
útlitið. „Golffatnaður þarf að
vera þægilegur. Flest golfföt eru
úr pólýesterefnum með span-
dexi sem gerir fötin teygjanleg
og gott að hreyfa sig í. Svo
skiptir útlitið flesta golfara
máli því að golffatnaður
er líka tískuvara. Margir
golfarar spara ekki við
sig þegar kemur að
fatnaði og græjum.
Katrín á fallega og
kvenlega muni. „Skór og
töskur eru
minn helsti
veikleiki“
Katrín Garðarsdóttir, aðstoðarverslunarstjóri Hjá Hrafnhildi og eigandi
golffataverslunarinnar Golfa.is, er með klassískan og kvenlegan fatastíl.
Katrín ákvað að stofna golffataverslun fyrir konur síðastliðið haust þar sem
henni fannst úrvalið af fallegum golffatnaði mega vera betra.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Katrín Garðasdóttir
er með fallegan og
kvenlegan stíl.
Katrín hefur aldrei
mætt í gallabuxum
út á golfvöll.
Katrín elskar golf og
ákvað að stofna eigin golf-
fataverslun fyrir konur. Svkísulegur
golffatnaður.