Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Side 20
L
eikarinn og grínistinn ástsæli,
Þórhallur Sigurðsson, ávallt
kallaður Laddi, býður blaða-
manni að hitta sig á þeim óvenjulega
stað líkamsræktarstöð í Faxafeni þar
sem hann æfir. Laddi bíður þar fersk-
ur eftir góða æfingu en þarna mætir
hann þrisvar í viku til að halda sér í
góðu formi. Hann stundar einnig golf
af kappi, er í landsliðinu og keppir í
öldungaflokki með gífurlegan metnað
að vopni. En blaðamaður er ekki
mættur til að ræða líkamsrækt eða
golf. Það er leiklistin og lífið sem vek-
ur forvitni hans frekar, en Laddi leik-
ur nú í nýrri seríu, Brúðkaupið mitt,
sem komið er inn í Sjónvarp Símans
Premium. Er þáttaröðin framhald af
Jarðarförinni minni sem sló í gegn og
hefur nú verið seld til Þýskalands og
Frakklands.
Skúli rafvirki tekur yfir
Það er ekkert grín fyrir blaðamann að
leggja spurningar fyrir mann sem
skemmt hefur þjóðinni í áratugi og
farið í ótal blaðaviðtöl áður.
„Já, og alltaf að svara sömu spurn-
ingunum,“ segir hann og brosir.
Blaðamaður lofar að reyna að koma
með nýjar og frumlegar spurningar
en byrjar samt á
því augljósa og
ræðir grín og
drama og hvort
henti honum bet-
ur.
„Hlutverkið í
Brúðkaupinu er
frekar dramatískt.
Mér finnst núna
skemmtilegra að eiga við drama því
ég hef svo lítið gert af því, þótt hitt sé
alltaf skemmtilegt. Bæði grín og
drama er krefjandi; ég myndi leggja
það að jöfnu,“ segir Laddi og segir að
nú orðið finni hann til kvíða þegar
hann á að skemmta fólki.
„Ég hef ekki skemmt núna lengi
vegna Covid og er að fara að
skemmta í kvöld og það er smá hnút-
ur í maganum. Ég var nú með afmæl-
isskemmtun um daginn og liðkaðist
aðeins. Ég er ekki með nýtt efni en er
byrjaður að semja alveg nýtt. Ég ætla
að nota sumarið í það,“ segir hann en
eins og alþjóð veit hefur Laddi brugð-
ið sér í gervi ýmissa karaktera sem
hann hefur gert ódauðlega.
Hvaða karakter er bestur?
„Það er vont að gera upp á milli
barnanna sinna en mér þykir alltaf
vænst um Eirík Fjalar, en margir
aðrir eru mjög skemmtilegir, eins og
Dengsi og Skúli rafvirki. Mér finnst
alltaf gaman að vera með Skúla sem
rífur kjaft. Hann tekur við af mér; ég
veit oft ekkert hvað hann er að segja.
Ég lenti eitt sinn í því að ég var að
skemmta og eftir á þurfti ég að spyrja
strákana hvað Skúli hefði verið að
segja! Ég mundi það ekki. Hann fer
bara á flug og tekur af mér völdin og
er eini karakterinn sem gerir það.“
Bara eins og þú sért margir per-
sónuleikar?
„Já, Saxi læknir segir að ég sé geð-
klofi,“ segir Laddi og hlær.
Missir að vera föðurlaus
Við snúum okkur að persónunni
Benedikt í þáttunum áðurnefndu,
Jarðarförinni minni og nú Brúðkaup-
inu mínu. Laddi segir það ekki hafa
verið létt verk að fara í hans spor.
„Hann er sérstakur og var í krísu,
búinn að loka sig af tilfinningalega.
Hann var bara fúll á móti. Hann átti
bara einn vin og var mjög bitur. Hann
hafði misst dóttur sína og gleymdi þá
syni sínum. Það var svolítið erfitt að
vera fúll á móti, að ná því. Ég er sjálf-
ur ekki þannig en það tókst samt. Það
komu alveg dagar sem maður var svo-
lítið dapur þegar maður kom heim,“
segir Laddi og segist hafa fundið eitt-
hvað í sjálfum sér sem hann gat notað
í hlutverkið, en Laddi upplifði missi
og höfnun sem lítið barn.
„Ég var lítill strákur þegar pabbi
fór og ég kynntist honum eiginlega
ekkert fyrr en á efri árum. Það er
mikill missir að vera föðurlaus,“ segir
Laddi og segir foreldra sína hafa skil-
ið þegar hann var þriggja ára og þá
hafi faðir hans flutt út á land.
„Maður fékk að heyra það frá
krökkunum að maður ætti engan
pabba. Ég var oft dapur yfir því og
gat sótt í þessa tilfinningu þegar ég
lék Benedikt,“ segir hann og segir
pabba sinn ekki hafa sinnt sér neitt
alla æskuna.
„Við vorum fjórir bræður og tveir
fóru með pabba og við urðum tveir
eftir hjá mömmu því hún gat ekki ver-
ið ein með okkur fjóra. Þetta hefur
setið í mér alla tíð og í þá daga var
ekkert verið að spekúlera í að vinna í
tilfinningum,“ segir Laddi en segist
löngu vera búinn að fyrirgefa honum.
Hann hafi kynnst honum aðeins á full-
orðinsárum og náð að sætta sig við
þessa höfnun æskunnar.
„Ég var að leika Fagin í söng-
leiknum Oliver! í
Þjóðleikhúsinu og
hann kom suður og
sá mig leika. Ég man
að mér þótti það of-
boðslega ánægjulegt.
Hann hafði samband
á eftir og sagðist
stoltur af stráknum.
Ég þarfnaðist þess
alltaf, eins og allir strákar, að fá hrós
frá pabba sínum.“
Varstu alltaf trúðurinn í bekknum
sem strákur?
„Já, ég var feiminn, með minni-
máttarkennd og var því með fíflalæti.
Það var fronturinn. Ég var mikill
mömmustrákur og hékk í pilsfald-
inum á henni af ótta við að ég myndi
missa hana líka.“
Jafnhaltur út þáttinn
Laddi segist ekki hafa átt von á að
Jarðarförin mín yrði jafn vinsæll þátt-
ur og raun bar vitni. Hann segir þó
einn af handritshöfundunum, Jón
Gunnar Geirdal, hafa haft fulla trú á
báðum seríunum.
„Jón Gunnar var alveg viss um það.
Hann var með það á hreinu með Jarð-
arförina og er með það á hreinu líka
varðandi Brúðkaupið. Sá þáttur er að-
eins öðruvísi, léttari. Benedikt minn
er aðeins léttari og búinn að hitta
æskuástina. Hann dó ekki í fyrri þátt-
um og er helvíti hress og kátur og
ætlar að fara að gifta sig. En það fer
ekki allt eins og á horfir, hann greinist
aftur og þá hrynur allt. En hann ætlar
að reyna að gifta sig áður en hann
deyr,“ segir Laddi og glottir.
Það má að sjálfsögðu ekki gefa of
mikið upp, en þess má geta að þátt-
urinn er framleiddur hjá Glassriver.
Var eitthvað sem fór úrskeiðis í
tökunum?
„Já, það má eiginlega segja það. Á
fyrsta degi sleit ég hásinina, eða svona
nokkurn veginn. Þetta gerðist í Naut-
hólsvík þegar taka átti upp sjósunds-
atriði. Ég var svo allt í einu orðinn halt-
ur og var mikið bólginn. En kannski var
gott að þetta gerðist á fyrsta degi því ég
var þá jafnhaltur út allan þáttinn.“
Laddi segist sjálfur horfa mest á
hasarmyndir, sem hann hefur mjög
gaman af.
Þú vilt ekkert leika í hasarmynd?
„Jú, ég væri alveg til í það. Eina
James Bond.“
Laddi Bond?
„Já, eða Laddi bóndi,“ segir hann
og hlær.
Brúðkaupið mitt með Ladda í aðalhlutverki er nú komið á skjáinn.
Laddi upplifði höfnun sem barn og leitaði í brunn þeirra tilfinninga
þegar hann túlkaði persónuna Benedikt sem er með heilaæxli.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
’
Maður fékk að
heyra það frá krökk-
unum að maður ætti
engan pabba. Ég var oft
dapur yfir því og gat
sótt í þessa tilfinningu
þegar ég lék Benedikt.
Erfitt að vera fúll á móti
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022
SJÓNVARP
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja b
þinn
VIÐ ERUM EKKI
AÐ FARA NEITT
ÞÚ FINNUR OKKUR
Á FUNAHÖFÐA EITT
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson