Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022 TÓNLIST Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin, Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes Þ etta eru mest þekktir stand- ardar sem ég hef haldið upp á lengi; gömul, ómþýð djass- og dægurlög sem eru mér kær. Þessi diskur ætti að höfða til margra,“ segir Gunnar Randversson gítar- og píanóleikari um aðra sólóplötu sína, Vetur, sem komin er út. Gunnar á eitt lag sjálfur á plöt- unni en meðal annarra lagahöfunda má nefna Gunnar Þórðarson, Stefán S. Stefánsson, Kenny Dorham, Jo- seph Cosma, Marks og Simons, Luiz Bonfá og Antônio Carlos Jobim. „Allt eru þetta höfundar sem hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér, ekki síst Jobim sem er mjög stórt nafn í djassheiminum,“ segir Gunnar. Fyrri plata Gunnars heitir Haust og því lá beint við að næst kæmi Vet- ur. Hann upplýsir að von sé á bæði Vori og Sumri síðar. „Ég stefni ótrauður að því að loka hringnum.“ Guðmundur Björgvinsson leggur gjörva hönd á plóginn en auk þess að spila á gítar, bassa og orgel útsetti hann ásamt Gunnari, stjórnaði upp- tökum og sá um hönnun og málverk framan á plötuumslaginu. „Við Guð- mundur höfum þekkst lengi; hann er í grunninn myndlistarmaður en er mjög fjölhæfur og lærði á gítar í Mexíkó. Það er mikill fengur í hon- um.“ Dóttirin syngur í tveimur lögum Þá syngur Lilja Eivor, dóttir Gunn- ars, í tveimur fyrstu lögunum, All of Me og Bésame Mucho. „Hún hefur lært söng og kom meðal annars fram í Sound of Music í Borgarleikhúsinu en núna starfar hún hjá Kvan,“ segir hann. All of Me eftir Marks og Simon var á sinni tíð djass sem dansað var við. Í dag leita flestir í aðrar stefnur tónlistar til að svala þeirri þörf. Einir tónleikar eru fyrirhugaðir til að fylgja plötunni eftir, á Café Klöru á Ólafsfirði í lok júní. „Ég er þaðan,“ upplýsir Gunnar sem skýrir staðsetninguna. „Ég hef áður efnt til tónleika þar og það er alltaf jafn gaman að koma norður. Það hafa margir haft samband þaðan eftir að Vetur kom út og mér er ljúft og skylt að bregðast við kallinu.“ Þess má geta að lengi var starf- rækt blúsfélag á Ólafsfirði og blúshátíð haldin í mörg herrans ár, þannig að ekki vantar tónlistar- áhugann í bænum. 46 ár eru síðan Gunnar flutti frá Ólafsfirði en hann hefur alla tíð hald- ið góðu sambandi við sinn gamla heimabæ. „Maður sækir alltaf í ræt- urnar. Þótt maður komi kannski ekki í langan tíma er samt alltaf eins og maður hafi verið þar síðast í gær.“ Endurnýjuð kynni við gítarinn Gunnar hóf gítar- og píanónám á Ólafsfirði sem drengur en lagði gít- arinn frá sér að áeggjan Ragnars H. Ragnars á Ísafirði, eftir að hann flutti þangað, en Ragnar ráðlagði honum að einbeita sér að píanóinu. Það var svo fyrir sex árum að Gunn- ar tók gítarinn upp fyrir alvöru á ný og fór að stúdera hann betur. „Það er svo merkilegt að það var fyrst þá sem ég fór að geta samið á gítar, sem hefur veitt mér mikla ánægju.“ Hann starfar sjálfstætt sem tón- listarkennari og er með aðstöðu í Breiðholtsskóla. „Allt mitt líf hefur snúist um að kenna, semja og flytja tónlist.“ Spurður um stöðu djassins í sam- tímanum segir Gunnar hann alltaf standa fyrir sínu. Hann viðurkennir þó að meiri gróska mætti vera í sen- unni hér á landi í dag. „Hún mætti vera fjölbreyttari og líflegri, því er ekki að neita. Á tímabili var meira að gerast í íslenskum djassi en þetta kemur í bylgjum og djassinn á ábyggilega eftir að fara á meira flug aftur,“ segir Gunnar og bætir við að mest sé um flókinn djass í dag sem ekki höfði eins vel til hins breiða fjölda og sá gamli ómþýði. Geislaplatan má muna sinn fífil fegurri en Gunnar hikaði eigi að síð- ur ekki eitt andartak við að velja það útgáfuform. „Ég hef alltaf kunnað vel að meta geisladiskinn sem form og er ekki í nokkrum vafa um að hann eigi eftir að komast aftur í tísku. Platan sem form mun halda velli; þetta fer allt í hringi.“ Skrifar bók um föður sinn Vetur er til sölu í plötuverslunum borgarinnar, 12 tónum, Smekkleysu og Lucky Records en þangað leggur Gunnar sjálfur leið sína reglulega til að kaupa geisladiska. Hann kann húsbændum á þeim bæjum bestu þakkir fyrir að halda þessari þjón- ustu gangandi. Heimurinn yrði fá- tæklegri án gömlu góðu plötubúð- anna. Gunnar hefur einnig glímt við rit- list en eftir hann liggja fjórar ljóða- bækur og smásagnasafnið Gulur Volvó. Þá hefur smásaga eftir hann birst í Tímariti Máls og menningar. Spurður hvort hann sé eitthvað að skrifa núna svarar Gunnar: „Já, já. Það verður alltaf eitt og eitt ljóð til og svo er ég að skrifa sögu föður míns, Randvers Sæmundssonar, sem lést þegar ég var 11 ára. Pabbi rak verslun á Ólafsfirði og var um margt sérstakur maður. Hann fékk hjartaáfall og dó aðeins 59 ára. Í bókinni horfi ég sérstaklega til þess- ara ára sem ég átti með honum.“ Ætti að höfða til margra Gunnar Randversson, gítar- og píanóleikari, hefur sent frá sér geisla- plötuna Vetur sem hef- ur að mestu leyti að geyma gömul djass- og dægurlög. Eitt frum- samið lag er þó á plöt- unni sem er númer tvö í röðinni í fjórleik um árstíðirnar. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Ég hef alltaf kunnað vel að meta geisladisk- inn sem form og er ekki í nokkrum vafa um að hann eigi eftir að komast aftur í tísku. Platan sem form mun halda velli; þetta fer allt í hringi. Gunnar Randversson ásamt dóttur sinni, Lilju Eivoru, sem syngur tvö lög á nýju plötunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.