Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2022 LESBÓK ÖSKUR Roar nefnast nýir þættir sem frumsýndir voru á Apple TV+ fyrir helgina. Þeir byggjast á smásagnasafni eftir Ceciliu Ahern, höfund PS I Love You, en tilgangurinn er að varpa raunsæju og á köflum spaugilegu ljósi á það hvernig það er að vera kona á vorum tímum. Um er að ræða átta hálftímalanga þætti og meðal leikenda eru Nicole Kidman, Cynthia Erivo, Issa Rae, Merritt Wever, Alison Brie, Betty Gilpin og Meera Syal. Haft er eftir Ahern að sögurnar séu galsafengnar á yfirborðinu en um leið áhrifamiklar enda eigi þær sér meira og minna stoð í veruleikanum. „Þær eru um alvöru mál eins og sektar- kennd, misskilning, angist, hræðslu, þreytu – prívat augnablik þegar konum líður eins og þær vilji öskra,“ segir hún. Konur sem vilja öskra Nicole Kid- man er meðal leik- enda í Roar. AFP/Angela WEISS RÓÐUR Guðfaðirinn, hin rómaða kvikmynd Francis Fords Coppola, fagnar fimmtugs- afmæli sínu á árinu. Þess vegna er við hæfi að nýr leikinn myndaflokkur, The Offer, sem fjallar um gerð myndarinnar, verði frum- sýndur á Paramount+ undir lok mánaðarins. Sagan er sögð frá sjónarhóli framleiðandans Alberts S. Ruddys (sem Miles Teller leikur), meðan hann gengur á milli Heródesar og Píl- atusar með handritið. Við takmarkaða hrifn- ingu: „Gengjamyndir eru úreltar!“ Juno Temple leikur Bettye McCartt, aðstoðarkonu Ruddys, Matthew Goode bíómógúlinn Robert Evans, og Dan Fogler er sjálfur Coppola. Myndaflokkur um gerð Guðföðurins Juno Temple er meðal leikenda í The Offer. AFP/Patrick T. FALLON Novoselic er goð í gruggheimum. Grugggoð koma saman GRUGG Ofurbandið 3rd Secret hefur sent frá sér sína fyrstu breið- skífu sem ber nafn sveitarinnar. 3rd Secret skipa þrjú grugggoð; gítar- leikarinn Kim Thayil, sem var í Soundgarden, bassaleikarinn Krist Novoselic, sem var í Nirvana, og trymbillinn Matt Cameron, sem var bæði í Soundgarden og Pearl Jam. Einnig eru í bandinu gítarleikarinn Bubba Dupree og söngkonurnar Jennifer Johnson og Jillian Raye. Sú síðarnefnda var með Novoselic í Giants In The Trees, fyrir þá sem muna eftir þeirri ágætu sveit. Nov- oselic hermdi fyrst af verkefninu í febrúar en tjáði fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að það væri leyndó – „þannig að segið engum!“ F rá því að Titti Johnson og Helgi Felixson hófu að vinna að heimildarmynd sinni um sjálfsvíg, Út úr myrkrinu, árið 2016 hafa 211 manns fallið fyrir eigin hendi á Íslandi – hið minnsta. Það eru sláandi tölur. Raunar má rekja þráðinn lengra aftur en þegar Titti kom heim dag einn árið 2013 var hundrað manna björgunarsveit við leit á ströndinni fyrir framan heimili þeirra Helga. „Ég hélt fyrst að aldan hefði hrifið einhvern með sér á haf út en í ljós kom að kona hafði gengið í sjóinn af fúsum og frjálsum vilja. Það sló mig,“ segir hún. Ekki löngu síðar fyrirfór önnur kona, sem hún þekkti persónulega, sér. „Börnin okkar voru saman á leikskóla og við höfðum oft spjallað saman,“ rifjar hún upp. Til að færa þetta enn þá nær þeim þá svipti ung- ur maður sem bjó í sama húsi og þau sig lífi árið 2017. „Þó svo að við hefð- um stundum hitt hann þá vissum við ekkert um það hvernig honum leið. Þegar maður fer að ræða um sjálfs- víg þá poppar þetta upp alls staðar,“ segir Helgi og Titti bætir við: „Það virðast allir þekkja einhvern sem hefur fyrirfarið sér; ættingja, vin, kunningja eða vinnufélaga, og okkur langaði að gera mynd um þetta átak- anlega efni.“ Hún segir sérstaklega sorglegt Rjúfum þögnina! Heimildarmyndin Út úr myrkrinu eftir Titti John- son og Helga Felixson verður frumsýnd í Bíó Paradís á þriðjudaginn. Þar fjalla þau um eldfimt efni, sjálfsvíg, og vilja opna umræðuna upp á gátt. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Úr myndinni en þar segja aðstandendur fólks sem fallið hefur fyrir eigin hendi sögu sína. Helgi og Titti segja öllu þessu fólki að vonum liggja mikið á hjarta. Stilla Tónlistin í Út úr myrkrinu er eftir Óskarsverðlaunahafann Hildi Guðnadóttur. Hún kom þó ekki að verkefninu fyrr en á loka- metrunum. „Við vorum upphaflega með aðra tónlist í myndinni sem við vorum ekki nægilega ánægð með,“ upplýsir Titti. „Síðan fórum við á stuðningstónleikana fyrir Úkraínu í Hallgrímskirkju fyrir nokkrum vikum sem snertu okkur mjög sterkt. Það leiddi okkur til Hildar.“ Titti segir þau hafa viljað hafa tónlistina ís- lenska og fljótlega eftir að hún fór að leita fann hún verk Hildar, Leyfðu ljósinu. „Vá, þetta er tónlistin. Hún er um myndina okkar,“ hugsuðu þau með sér. Helgi vatt sér því í að hafa samband við Hildi sem svaraði strax næsta dag. „Ég er með.“ „Tónlistin Hildar er mjög áhrifamikil,“ segir Helgi. „Hún bætir nýju lagi við mynd- ina og gefur henni nýjan anda og sál.“ Tónlistin eftir Hildi Guðnadóttur Hildur Guðna- dóttir tónskáld. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 26. apríl 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.