Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2022, Síða 29
hversu margt ungt fólk fellur fyrir eigin hendi. „Álagið er mikið hjá unga fólkinu, samfélagsmiðlar og annað, og því miður höndla sumir það ekki. Því þarf að breyta. Það er alltaf hægt að fá hjálp,“ segir Titti. Helgi segir að sjálfsvíg sé svaka- lega stórt samfélagslegt vandamál sem erfitt hafi reynst að uppræta. „Þagnarhjúpur og skömm hefur um- lukt sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í gegnum aldirnar. Það skýrist eflaust af þeirri staðreynd að sjálfsvíg voru lengi talin glæpur, samanber orðið sjálfsmorð. Hægt var að gera eigur sjálfsvegenda upptækar og greftrun þeirra í kirkjugörðum var bönnuð og Ísland var þar engin undantekning. Lög giltu um sjálfsvegendur á Ís- landi fram til ársins 1870. En þrátt fyrir lagaumbætur í sumum löndum og opnun umræðunnar um sjálfsvíg, sem 18. aldar hugsuðir stuðluðu að, varð ávinningurinn ekki langvinnur. Þegar kom fram á 19. öld urðu sjálfsvíg aftur tabú,“ segir hann. Myndin byggist á frásögnum fólks sem misst hefur einhvern nákominn vegna sjálfsvígs. „Segja má að þetta fólk komi meira og minna úr nær- umhverfi okkar og allt á það sameig- inlegt að vilja virkilega tjá sig. Það þarf og vill ræða þessi mál og eyða þessu tabúi,“ segir Helgi. Vegna þessarar nástöðu var vinnuheiti myndarinnar Nágrannar. „Okkur var hins vegar kurteislega bent á, að það væri gömul sápuópera og betra væri að finna annað nafn. Þá komumst við út úr myrkrinu,“ segir Helgi sposkur en þeim var ekki kunnugt um þessa áströlsku heimilisvini margra Íslendinga. Titti og Helgi eru sammála um að umræðan um sjálfsvíg sé smám saman að breytast og opnast hér á landi og nefna í því sambandi PIETA-samtökin, Sorgarsamtökin, Rauða krossinn og fleiri sem hafa með markvissum hætti lagt sitt lóð á vogarskálarnar. „Við höfum lengi talað opinskátt um krabbamein og aðra sjúkdóma en þegar kemur að geðheilbrigðis- málum og ég tala nú ekki um sjálfs- vígum þá vefst okkur tunga um tönn. Það er skiljanlegt að röddin komi ekki frá þeim sem þjást heldur frá þeim sem næst þeim standa,“ segir Helgi. Einangrunin ekki góð Ekki hefur vandinn minnkað í heimsfaraldrinum og enda þótt tölur liggi ekki fyrir þá ber allt að sama brunni. „Einangrun er ekki góð þeg- ar fólki líður illa,“ segir Titti og þau benda á að talið sé að fimm til sex hundruð sjálfsvígstilraunir séu gerð- ar á Íslandi árlega og að á bilinu 40 til 50 manns látist. „Það er hlutfalls- lega með því mesta sem þekkist í heiminum,“ segja þau. „Við eigum ekki að sætta okkur við þetta,“ segir Helgi. „Þess vegna þarf að styðja betur við bakið á þeim samtökum sem hafa burði til að láta til sín taka á þessum vettvangi. Starf þeirra byggist á frjálsum fram- lögum, sem er til háborinnar skammar. Svona samtök verða að geta skipulagt sitt starf lengra en bara nokkra mánuði fram í tímann.“ Þau segja sjálfsvíg til að mynda mun stærra vandamál en banaslys í umferðinni. „Ég vil ekki gera lítið úr þeim en þetta er eigi að síður stað- reynd. Við þurfum á samstilltu átaki að halda til að koma í veg fyrir sjálfsvíg.“ Titti segir viðhorfið líka þurfa að breytast. „Það gengur ekki að geð- deild sé lokað klukkan 17 á daginn. Hvað þýðir það fyrir einstakling sem er á tæpasta vaði og ætlar að fyrir- fara sér klukkan 18?“ Helgi og Titti hafa væntingar til þess að myndin bæti mögulega ein- hverju við forvarnir. „Þegar maður er að vinna svona mynd þá er maður í einhverju flæði en núna þegar sam- talið við áhorfandann er að byrja sér maður sitthvað fleira. Okkur hefur til dæmis verið bent á, að þar sem fókusinn sé á upplifun þeirra sem eftir sitja þá gæti það haft áhrif á einhvern sem er að íhuga sjálfsvíg.“ Titti nefnir líka vini hins látna en sama stoðnetið grípi þá yfirleitt ekki og nánustu fjölskyldu. „Í sumum til- vikum eru vinir jafnvel nánari en fjölskyldan. Hvert eiga þeir þá að leita með sína sorg?“ Til stendur að fara með myndina víða um land og efna til samtals við áhorfendur að sýningu lokinni með þátttöku fagaðila. „Við vonumst eftir góðu og heiðarlegu samtali,“ segja Titti og Helgi. „Rjúfum þögnina!“ Helgi Felixson og Titti Johnson eru höfundar heimildarmyndarinnart Út úr myrkrinu. Morgunblaðið/Ásdís 17.4. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 SÝSL Gamla gítargoðið Jimmy Page segir margt en þó ekki neitt í nýju viðtali við tímaritið Classic Rock. „Ég er að vinna að ýmsu,“ upplýsir hann. „Það er ekkert eitt, heldur margt, en ég tel ekki rétt að gefa vísbendingar ef ekkert skyldi verða úr því. Svo gæti það líka allt misskilist.“ Hann gefur þó sterk- lega í skyn að fleiri listamenn komi að málum enda hafi hann aldrei verið hrifinn af að vinna einn. „Ég fór ekki í músík til að gera það – heldur til að músísera saman.“ Allt og ekkert á prjónunum Jimmy Page í Laugardalshöllinni 1970. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson BÓKSALA 6.-12. APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Helkuldi Viveca Sten 2 Natríumklóríð Jussi Adler-Olsen 3 Systirin í storminum Lucinda Riley 4 Upplausn Sara Blædel/Mads Peder Nordbo 5 Dauðinn og mörgæsin Andrej Kúrkov 6 Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu Olga Tokarczuk 7 Kvöld eitt á eyju Josie Silver 8 Þernan Nita Prose 9 Miðnæturbókasafnið Matt Haig 10 Úti Ragnar Jónasson 1 Risasyrpa – aðalsættir Walt Disney 2 Búkolla Gunnar Andreas Kristinsson / Böðvar Leós 3 Brandur flytur út Sven Nordqvist 4 60 ótrúlegar staðreyndir – geimurinn Ýmsir höfundar 5 Depill í leikskólanum Eric Hill 6 Ísadóra Nótt fer á ballettsýningu Harriet Muncaster 7 Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry 8 Litlir könnuðir – veröld dýranna Ýmsir höfundar 9 Hvar er Andrés? Walt Disney 10 Risaeðlugengið – ferðalagið Lars Mæhle/Lars Rudebjer Allar bækur Barnabækur Að reyna að velja nokkrar bækur sem hafa snert mig er alveg smá flókið, því það eru alls konar bæk- ur sem ég hef heillast af og ég virðist taka mismunandi þema í tímabilum, eða kannski eftir skapi hverju sinni, hvort það eru spennu-, ævisögur eða ævintýri. Hljóðbækur eru sennilega það besta (eða versta) sem hefur kom- ið fyrir svona smá ofvirka konu eins og mig, þar sem ég get haldið áfram að gera alls konar á sama tíma og ég hlusta, og því er ég bú- in að hámhlusta á bækur síðustu ár á milli þess sem ég tek pásur og hlusta á hlaðvörp. En ég á góðan enskan vin sem mataði mig á alls konar bókmenntum frá því ég var 17 ára og þegar ég horfi til baka átta ég mig á, hvað hann hafði mikil áhrif á hvað ég las. Margar af þeim bókum sem hann gaf mér leiddu svo af sér að ég las allar bækur eftir þann höf- und í kjölfarið, en bækurnar sem hann kynnti mér fyrir voru t.d. About a Boy eftir Nick Hornby, The Seagull eftir Anton Checkov, The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger og The Beach eftir Alex Garland. Einnig má nefna Pride and Prejudice sem ég las hjá systur minni sem bjó í Englandi á þeim tíma. Ég varð alveg ástfangin af karakterunum og rétt eftir að ég klár- aði bókina sá ég auglýsingu á BBC að það væri verið að fara að sýna P&P-þáttaröðina og hjartað tók kipp. Það var eins og að hitta gamla vini að horfa á þættina. Síð- an var það þegar ég flutti til Lond- on 2001 að vinkona mín gaf mér How to Win Friends and Influence People, Dale Carnegie sem ég var stanslaust með í eyrunum (í mp3- spilaranum) og hlustaði á aftur og aftur og mótaði mig mjög mikið og endurspeglaði hvernig ég vildi haga mér í lífi og vinnu. Mexíkósk vinkona mín gaf mér svo The Shadow of the Wind eftir Carlos Ruiz Zafon, sem var geggj- uð, en ég las hana þegar ég bjó í Amsterdam. Ég er með frekar lé- legt langtímaminni, en ég tengi bækur alltaf mjög sterkt við hvar ég var, hvernig mér leið og hvað ég var að gera. Síðustu ár hafa þessar bækur hins- vegar staðið upp úr: Eleanor Oliphant is Completely Fine er ótrúlega fyndin, falleg og einlæg saga, eins og Maður sem heitir Ove, Bækur B.A. Paris hafa ótrúleg „plot tvist“, og þá helst Behind Closed Doors. Total Recall fannst mér ferlega skemmtileg, Arnold Schwarze- negger hefur átt ótrúlega skraut- lega ævi, fylgt innsæi sínu og tekið alls konar áhættu í lífinu sem mér fannst mjög áhugavert og veitti mér innblástur. Educated eftir Tara Westover var einnig ótrúleg ævisaga. Hlakka til að lesa (hlusta) meira á ævisögur á næstu árum, aldurinn kannski aðeins farinn að segja til sín. VALA STEINSDÓTTIR ER AÐ LESA Hámhlustar á bækur Vala Steins- dóttir er framkvæmda- stjóri Sóley Organics. ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.