Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Blaðsíða 2
Hvað ertu að gera á Siglufirði?
Ég er lærð leikkona sem endaði í hótel- og veitingarekstri og
flutti á Siglufjörð þar sem við hjónin rekum Kaffi Rauðku,
Hannes Boy og veitingastaðinn Sunnu á Hótel Siglufirði.
Leikverkið Síldarstúlkur, hvernig kom það til?
Þegar ég kom fyrst á Siglufjörð og fór að skoða Rauðku sá
ég strax að loftið þar væri fullkomið fyrir leikhús. Ég hafði
unnið sem sýningarstjóri í Landnámssetrinu á sýningunni
Brák og Mr. Skallagrímsson og fannst að það gæti verið
skemmtilegt að setja hér upp einleik. Það lá beinast við að
segja hér sögu síldarstúlkna. Ég og Andrea Elín Vilhjálms-
dóttir skrifuðu handritið saman.
Hvar fundu þið efni til að vinna úr?
Við unnum verkið upp úr viðtölum við fólk sem upplifði síldar-
ævintýrið. Aníta, safnstjóri á Síldarsafninu, tók viðtöl við
fjöldann allan af fólki sem við fengum að hlusta á. Svo lásum
við mikið af blaðagreinum. Við fengum líka mikið af sögum frá
mömmu hennar Andreu sem vann í síld í gamla daga.
Var ekki erfitt að velja úr sögunum?
Jú, svakalega erfitt. Við erum búnar að breyta einleiknum
mjög oft. Við ætluðum að sýna miklu fyrr en þurftum að
fresta vegna Covid sem var kannski lán í óláni því verkið er
mun betra núna. Í verkinu kynnumst við þremur konum;
einni frá Siglufirði, einni aðkomustúlku og einni sem var uppi
um 1900.
Var síldarævintýrið eintóm rómantík eða
þrælavinna?
Kannski bæði, það fer eftir hver segir frá.
HALLDÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Rómantík og
þrælavinna
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022
E
ina leiðin til að komast af skerinu er að sjálfsögðu með flugi, nema maður
kjósi að keyra á Seyðisfjörð og taka Norrænu. Undirrituð skellti sér
með lágfargjaldaflugfélaginu Wizzair til Rómar um páskana. Reyndar
voru miðarnir svo sem engir smáaurar, tæpar sextíu þúsund krónur stykkið,
keyptir fyrir stríð. En flugið var beint sem var kostur.
Eftir dásamlega páskaferð var haldið heim á leið. Ég ætla ekkert að þreyta
ykkur með sögum af því að engar samlokur voru til í vélinni, hvoruga leiðina, að
við fengum ekki sætin með aukafótaplássi sem við bókuðum á heimleiðinni, eða
að maðurinn fyrir aftan var með
munnræpu dauðans og hélt að hann
þyrfti að tala hærra en ella vegna
grímunnar. Ég ætla heldur ekki að
segja ykkur frá konunni í næstu röð
sem hóstaði stanslaust í fimm tíma og
tók alltaf grímuna frá andlitinu á
meðan.
Já, eins gaman og það er að fara til
annarra landa er óhætt að segja að
flugferðir eru hundleiðinlegar. Lúx-
usvandamál, ég veit.
Nei, heldur vil ég tala um nokkrar
sérkennilegar tilkynningar sem bár-
ust í gegnum kallkerfið. Þegar lent
var í Keflavík beið vélin í tíu mínútur nokkrum metrum frá rananum af því að
„vélin þurfti að kæla sig niður“. Þetta hef ég aldrei heyrt áður og ýmsar spurn-
ingar vöknuðu. Var vélin að ofhitna? Var einhver að fara að brenna sig sem færi
þá frá borði? Myndi kvikna í rananum? Ég skildi ekkert.
Loks þegar dyr var opnuð drifu sig út fremstu farþegarnir, eins og vera ber.
Smá töf var á einhverjum og myndaðist þá tómt bil í gangveginum. Þá stöðvaði
flugfreyjan þá sem voru á útleið því þyngdarpunkturinn var „rangur“. Nú
skildi ég ekkert aftur. Var sem sagt vélin að fara að sporðreisast og pompa á
rassinn af því að fleiri voru aftur í en fram í? Og skiptir þá einhverju máli að
stöðva örfáar áttatíu kílóa manneskjur? Ef ég skil Google rétt er ein full vél um
300-400 tonn. Geta þá tíu manneskjur gert gæfumuninn að halda vélinni frá því
að sporðreisast? Þetta var ég allt að hugsa á leiðinni út. Það rifjaðist þá upp að
eitt sinn var ég í vél sem var svona 70% full. Fyrir flugtak bað flugliðinn örfáar
manneskjur að færa sig yfir á hina hlið vélar til að halda betra jafnvægi. Í
alvöru? Ég sé fyrir mér vél þar sem öðrum megin eru mjóir og hinum megin
digrir. Vélin flýgur þá væntanlega á hlið alla leiðina eða hvað? Nú þarf einhver
flugvélaverkfræðingur að hafa samband og útskýra þessa hluti fyrir okkur far-
þegum. Og að lokum, það er árið 2022. Er ekki hægt að hanna kallkerfi flug-
stjóra þar sem maður heyrir orð af því sem þeir segja?
Leyndardómar
í háloftunum
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Ef ég skil Google rétt
er ein full vél um 300-
400 tonn. Geta þá tíu
manneskjur gert gæfu-
muninn að halda vélinni
frá því að sporðreisast?
Sigga Vala Þórarinsdóttir
Það leggst vel í mig! Loksins komið
sumar og birta. Yndislegt!
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
leggst
sumarið
í þig?
Sævar Stefánsson
Bara vel! Nú ætla ég að fara að
ferðast innanlands og svo til Spánar
með haustinu.
Carolina Bostolache
Það verður vonandi mjög skemmti-
legt. Ég er búin að plana tvær utan-
landsferðir.
Karl Brynjar Hjálmarsson
Miðað við að það var ekki frost á
sumardagurinn fyrsta þá leggst
sumarið betur í mig.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Einleikurinn Síldarstúlkur verður sýndur á Kaffi Rauðku á Siglu-
firði dagana 24. apríl til 7. maí. Halldóra Guðjónsdóttir leikur
einleik ásamt Margréti Arnardóttur harmonikkuleikara en leik-
stjóri er Andrea Elín Vilhjálmsdóttir. Miðar fást á tix.is.
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is