Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.04.2022, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.4. 2022 GARÐYRKJA D aginn tekur að lengja all- verulega, sumardagurinn fyrsti er liðinn og segja má að sannkallað vor sé í lofti. Því er ekki seinna vænna að fara að huga að vorverkunum í garðinum. Steinn Kárason garðyrkjufræðingur og M.Sc. í um- hverfisfræðum hefur árum saman sinnt fræðslu fyrir almenning og eys hér úr sínum viskubrunni. Það eru helst trjá- og runnaklipp- ingar í heimagörðum ásamt sáningu og for- ræktun krydd- og matjurta innandyra sem vert er að sinna á þessum árstíma. Trjá- og runnaklippingar Steinn segir að um þessar mundir sé aðaltrjá- og runna- klippingatímabilið. Almenn- ingur klippi einna helst á vormánuðunum apríl og maí þótt fagmenn klippi að vísu frá hausti og fram á vor. Ekkert er því til fyrirstöðu að snyrta tré og runna yfir sum- arið en síst ætti að klippa um og eftir lauffall. „Það er langþægilegast að átta sig á vaxtarlagi trjánna áður en þau laufgast. Þá sést hvernig er best að bera sig að við klipp- ingarnar. Það er í og með af hagkvæmnis- ástæðum sem maður klippir núna en líka vegna þess að gróðurinn er enn í vetrardvala.“ Það gilda ekki sömu reglur um allar teg- undir trjáa og runna og því nefnir Steinn nokkra helstu flokkana; lauftré, barrtré, blómstrandi runna, limgerði og ávaxtatré. Krónuklipping lauftrjáa Þegar kemur að krónuklippingu lauftrjáa eru nokkur atriði sem hafa ætti í huga. „Það fyrsta sem maður gerir er að fjarlægja allar dauðar greinar, brotnar greinar og greinar sem nuddast saman og særa hver aðra, við köllum það krosslægjur. Eins klippir maður þétta greinarhluta sem myndast til dæmis á birki og kallast nornavendir.“ Vilji menn hafa tréð einstofna má fjarlægja neðstu greinarnar. „Við krónuklippinguna hefur maður í huga að hleypa birtu og lofti inn í krónu trésins og markmiðið er að fá fram fallega lagaða trjá- krónu. Það dregur úr veðurálagi á trén þannig að minni líkur eru á að þau taki á sig vind og snjó og falli um koll. Það er sjónarmið sem vert er að hafa í huga.“ Sú grundvallarregla gildir um klippingarnar að ávallt skal klippa greinarnar af á greina- skilum. Ekki má skilja eftir stubba heldur skal saga í gegnum greinarhálsinn, á mörkum greinar og stofns. „Ef maður klippir handa- hófskennt í gegnum greinarnar þá er hætta á því að stubb- urinn sem eftir verði deyi og rotni og tréð getur skemmst út frá því.“ Sígræn tré Um sígræn tré gilda aðeins önnur sjónarmið. Steinn segir að það sé í lagi að klippa barrtré meira og minna allt árið en þó sé aðal klippingatíminn einkum seinni part vetrar þegar þau eru í dvala eins og á við um lauftrén. „Það eru auðvitað ýmsir möguleikar í klipp- ingum barrtrjáa en fólki lærist með tímanum hversu mikla aðgangshörku er hægt að sýna trjám og runnum við klippingar. Sjónarmið hafa kannski aðeins breyst síðustu tvo eða þrjá áratugi því gróskan er orðin svo mikil að fólki er ekki eins sárt um að klippa eins og var þeg- ar trén voru fá, lítil og lág. Fólk leyfir sér meira núna.“ Eins og gildir um lauftré er gott að hafa í huga regluna um að klippa við greinaskil. „Ef maður ætlar að taka stórar greinar af hávöxn- um barrtrjám, hvort sem það er fura eða greni, þá sagar maður upp að stofninum eða við greinaskil. En ef maður vill klippa greni í keilur sem færist mjög í vöxt, vegna þess að þessi tré geta orðið býsna fyrirferðarmikil í görðum, þá er ekkert mál að fara handahófs- kennt í gegnum allar yngri greinar. En forð- ast skal að skilja eftir stubba á sverari greinum.“ Steinn ráðleggur þeim sem vilja hafa furur lágar og þéttar, til dæmis við inngang húsa, að klípa með fingrunum eða klippa Vaxt- arsprotann af til hálfs þegar hann fer að vaxa gjarna í lok maí. „Plantan verður mun þéttari ef vaxtarsprotarnir eru helmingaðir þegar þeir eru orðnir um 3 cm að lengd.“ Blómstrandi runnar Þegar kemur að klipp- ingum blómstrandi runna segir Steinn að menn þurfi að átta sig á hvaða blómgunareig- inleikum hver tegund er bú- in. „Það sem maður þarf að vita er hvort runninn blómgast á greinum sem uxu í fyrra eða á þeim greinum sem munu vaxa í ár. Fjöldi runna myndar blómin á greinum fyrra árs og ef maður klippir ofan af þeim þá koma hvorki blóm né ber það árið,“ segir hann og nefnir sem dæmi sírenur og berjarunna eins og rifsberja- og sólberja- runna. „Þumalputtareglan þegar maður klippir runna sem hafa þennan eiginleika er að klippa innan úr, eina og eina grein. Í rifsinu þá klippir maður gamlar, dökkar og fúnar greinar til þess að rýma fyrir nýjum greinum sem eru ljósari á lit. Þá fær maður hrynjandi í blómgunina. En það geta líka verið önnur sjónarmið sem gilda og þá er gott fyrir óvana að lesa sér til.“ Rósir Rósir hafa menn flokkað í nokkra flokka eftir vaxtarlagi og blómgunareiginleikum. „Tökum tvö dæmi, ágræddar rósir svokallaðar og runnarósir. Ágræddar rósir eru í hugum margra eins konar sparirósir og blómgast ýmist á einum stilk eða með mörg blóm í klasa. Slíkar rósir eru klipptar seint að vori þegar mesta frosthættan er liðin hjá. Þær rósir sem í daglegu tali eru kallaðar runnarósir hafa á sér mun villtara yfirbragð og eru gjarna klipptar snemma vors. Limgerði Undantekningar eru á þeirri reglu að klippa trjáplöntur aðallega þegar þær eru í dvala. Steinn Kárason garðyrkju- fræðingur hefur um árabil frætt almenning um garðyrkju. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vorverkin í garðinum Steinn Kárason garðyrkjufræðingur tekur saman það helsta sem hafa ber í huga í heima- görðum á vormánuðum, trjá- og runnaklippingar sem og sáningu krydd- og matjurta. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.