Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Page 2
Ertu tónlistarmaður? Já, ég hef gert tónlist síðan í menntaskóla. Nú er ég við nám í tónlist við háskóla í Berlín sem heitir Cata- lyst en verð fyrir norðan að vinna í sumar sem bað- vörður í sundlauginni. Er ekki gaman í Berlín? Það er brjálað partí og mikil tónlist. Hvernig tónlist semur þú? Þetta er mitt á milli R&B og popps. Ég spila á gítar og syng og redda mér á önnur hljóðfæri ef ég þarf. Ég gaf út plötu 2019 sem heitir Samband og svo hef ég gefið út stök lög. Hvert stefnirðu í framtíðinni? Ég væri til í að starfa við sönginn og pródúseringu. Hvaða tónleika ertu að fara að halda? Tónleikarnir verða til styrktar Ljónshjarta og eiga að fara í verkefnið Grípum Ljónshjartabörn. Ágóðinn fer í að greiða sálfræðikostnað fyrir börn sem hafa misst foreldra. Þarna verða hljómsveitirnar Karma Brigade og Demo, tónlist- arkonan Mimra og svo ég. Ég vona að sem flestir komi og eigi skemmtilega kvöldstund og láti um leið gott af sér leiða. Þú misstir sjálfur foreldra þína? Já, þetta eru minningartónleikar þeim til heiðurs en í ár eru tuttugu ár síðan þau létust ásamt bróður mínum í húsbruna á Þingeyri. Ég var þriggja ára og man lítið eftir þessu. Morgunblaðið/Hákon ANTON LÍNI HREIÐARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Fyrir Ljóns- hjartabörn Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Ögmundur Jónasson samfélagsrýnir ritaði áhugaverða grein hér í blaðið um liðna helgi, þar sem hann velti fyrir sér hvort snjallt yrði að menn hættu að leggja nafn sitt við greinar sem þeir skrifuðu og birtu opinberlega, þannig að lesendur ættu betra með að einbeita sér að mál- efnunum. Sumsé fara í boltann en ekki manninn, svo við grípum til viðtek- innar líkingar úr sparkheimum. Það er gömul saga og ný að lesendur sjái of- sjónum yfir sumum skríbentum og skyrpi tannholdi og galli yfir blaðið sitt eða tölvuskjáinn, jafnvel áður en þeir hafa lesið fyrstu setninguna í grein við- komandi. Við þær aðstæður er ekki víst að upplýst umræða komist neitt áleiðis. Hugmyndir Ögmundar kallast líka á við kenningar póstmódernista um að höfundurinn sem fyrirbrigði sé löngu steindauður eins og Guð almátt- ugur, Allah hinn mikli og þeir bræð- ur allir. Ekkert verk verði m.ö.o. til fyrr en í hugarheimi lesandans. Fyrir utan hvað þetta er skemmti- leg pæling hjá ráðherranum fyrrver- andi þá er ég ekki frá því að í þessu liggi bullandi sóknarfæri fyrir mitt gamla blað. Öll vitum við nefnilega að keppni er eitt göfugasta form mannlegra samskipta og spurninga- leikir, ekki síst í fjölmiðlum, löngu teknir við sem þjóðaríþrótt okkar Ís- lendinga af sjálfri landsglímunni. „Hvað er maðurinn að fara?“ hugsar þú nú ábyggilega lesandi góður, hristir höfuðið og sýpur á rjúkandi heitu morgunkaffinu. Jú, ég er að tala um keppni í anda söngvaþáttarins The Voice, sem margir kannast við úr sjónvarpi. Hann myndi þá væntanlega kallast The Pen, eða bara Penninn. Það má alveg enn þá notast við íslensku, er það ekki? Hópur skeleggra sam- félagsrýna, umdeildra og minna umdeildra, yrði fenginn til að skrifa greinar og senda nafnlaust inn til blaðsins og fagleg dómnefnd skipuð til að leggja mat á gæði þeirra og erindi, áður en lesendur myndu svo greiða atkvæði um það hvaða greinar kæmust áfram og hvaða greinar yrðu sendar heim. Um leið og grein væri send heim yrði afhjúpað hver hélt á pennanum. Sá hinn sami gæti þá annaðhvort hætt skrifum um aldur og ævi eða gyrt sig í brók og freistað þess að bæta ráð sitt og ná aftur eyrum alþýðu manna. Dómnefnd yrði skipuð á breiðum grunni og án þess að ég ætli að skipta mér af því þá detta mér í hug Ívar Páll Jónsson skrifstofumaður – hann er glöggskyggn á mannlegt eðli – og Kolbrún Bergþórsdóttir – er hún ekki komin í stjórnarandstöðu á Fréttablaðinu og tilbúin að koma aftur í Móana? Formaður dómnefndar yrði svo okkar best klæddi maður, Árni Matthíasson. Ég veit ekki um ykkur en ég sé þessa veislu hreinlega ekki klikka! Er hver? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Hugmyndir Ög- mundar kallast líka á við kenningar póstmód- ernista um að höfund- urinn sem fyrirbrigði sé löngu steindauður. Ragnheiður Milla Bergsveinsdóttir Ekki alltaf, ekki þegar ég mæti á morgunæfingar í sundi. SPURNING DAGSINS Sefur þú út um helgar? Kristoffer Brange Nei, alls ekki. Ég vakna klukkan átta. Berta Eyfjörð Til níu kannski. Rúrik Einar Guðnason Já, ég vakna níu um helgar en klukkan átta á virkum dögum. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Sunnudaginn 29. maí klukkan 20 verða minningartónleikar í Bæjar- bíói til styrktar samtökunum Ljónshjarta. Anton Líni Hreiðarsson kemur þar fram ásamt einvalaliði tónlistarfólks. Miðar fást á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.