Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 8
STÚDENTAR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022
Á
Laufásvegi stendur hvítt stein-
hús sem hefur þá sérstöðu að
hafa tilheyrt sömu fjölskyldu
síðan það var byggt árið 1929.
Það var Ásmundur Guð-
mundsson dósent, síðar biskup, sem byggði
það ásamt föðurbróður sínum, Magnúsi
Helgasyni skólastjóra Kennaraskólans.
Magnús var barnlaus, en Ásmundur átti
stóra fjölskyldu. Síðar bjó þar einn sona
hans, Tryggvi Ásmundsson læknir. Þar næst
tók dóttir Tryggva við húsinu, en þar býr
hún nú ásamt manni og börnum, þar á meðal
nýstúdentinum og nafna föður hennar.
Tryggvi yngri er því af fjórðu kynslóðinni
sem býr í þessu fallega húsi. Tilefni heim-
sóknar blaðamanns er að spjalla við þá
nafna, en Tryggvi eldri er einmitt 65 ára
stúdent í ár, en báðir eru þeir stúdentar frá
Menntaskólanum í Reykjavík. Stúdents-
veislur Tryggvanna tveggja eru því haldnar
á nákvæmlega sama stað, í sömu stofu, með
65 ára millibili.
Stórir draumar klíkunnar
Það er ekki úr vegi að byrja á að rifja upp
minningar menntaskólaáranna og bera sam-
an bækurnar. Tryggvi eldri hefur fyrstur
orðið.
„Þegar ég var í MR skiptust nemendur í tvö
horn; þeim sem fannst óskaplega gaman í skól-
anum og hinum sem fannst hræðilega leið-
inlegt. Ég var svo heppinn að mér fannst
óskaplega gaman. Það byggðist á því að ég var
í klíku. Við vorum fimm saman og það var allt-
af skemmtilegt hjá okkur,“ segir Tryggvi en
hann var í stærðfræðideild. Á þeim tíma voru
deildirnar tvær; máladeild og stærðfræðideild.
Tryggvi, sem lagði svo fyrir sig lungnalækn-
ingar, segist alls ekki hafa ætlað sér að verða
læknir, en vinahópurinn hafði áhrif á valið.
„Við fimm ákváðum að enginn okkar ætti að
fara í sama fag. Við ætluðum okkur stóra hluti
og yrðum því að mennta okkur á breiðu sviði.
Framan af átti ég að verða verkfræðingur og
annar vinur minn læknir. Síðan snerist það við
því hann var kominn með kærustu og okkur
þótti sýnt að hann myndi þurfa að fara að
stofna heimili. Þess vegna snérum við þessu
við í sjötta bekk; ég yrði læknir en hann verk-
fræðingur,“ segir hann og þetta voru því sam-
antekin ráð.
„Hinir stóðu allir við sitt. Einn varð guð-
fræðingur, annar lögfræðingur, sá þriðji arki-
tekt, fjórði verkfræðingur og ég læknir.“ segir
hann.
Vinirnir héldu góðu sambandi alla ævi, en
þrír þeirra eru nú látnir.
„Vinskapurinn hófst áður en við fórum í
MR. Guðmund Kristin Guðmundsson þekkti
ég frá fæðingu og man ekki eftir mér öðru vísi
en við værum vinir. Á Fjólugötu bjó Ólafur B.
Thors, en við Guðmundur hittum hann í Ís-
aksskóla. Leikfélagi hans var Þórður
Þorbjarnarson og við kynntumst honum í
barnaskóla. Í gagnfræðaskóla bættist við
Björn Björnsson, en þeir Guðmundur Kr.
höfðu kynnst í barnaskóla. Í landsprófi vorum
við orðnir óaðskiljanlegir og vinskapurinn
entist ævilangt.“
Datt ekki í hug að drekka áfengi
Fannst þér námið í MR erfitt?
„Nei, ekki svoleiðis, en þetta var heilmikil
vinna. Enginn okkar vinanna var nokkurn
tíma í fallhættu og við tókum allir góð
stúdentspróf. Við Þórður lásum saman stærð-
fræði, en hinir voru í máladeild. Félagslífið var
mjög gott og Óli var inspector,“ segir Tryggvi
og segir þá félaga auðvitað hafa átt marga
fleiri vini í skólanum.
„En við tókum engan inn í klíkuna,“ segir
hann og hlær.
Tryggvi segir þá alla hafa verið mikla reglu-
menn.
„Ég var nú ekki duglegur að stunda
menntaskólaböllin, enda lítill dansmaður.
Enginn okkar smakkaði vín fyrr en eftir stúd-
entspróf og ég hef sagt mínum barnabörnum
að halda þeirri reglu. Sumir sögðu nú eftir á að
við hefðum bætt okkur það upp seinna en ég
vil nú helst ekki taka undir það,“ segir Tryggvi
kíminn.
„Við höfðum óskaplega gaman af lífinu og
þurftum ekkert áfengi. Okkur datt það ekk-
ert í hug,“ segir Tryggvi og segir engan nema
Þórð hafa náð sér í kærustu á þessum árum.
Útskriftarhópurinn 1957 var mun minni en
nú.
„Við vorum nákvæmlega hundrað sem urð-
um stúdentar saman,“ segir Tryggvi, en börn-
in hans eru þrjú og fóru tvö þeirra í Mennta-
skólann í Reykjavík.
„Sigrún mamma hans var svolítið erfið,“
segir hann í gríni og á við dóttur sína, móður
nýstúdentsins.
Tryggvi Ásmundur fékk mörg
góð ráð frá afa sínum og
nafna, Tryggva Ásmundssyni, á
menntaskólaárunum.
Morgunblaðið/Ásdís
Stúdent 65 árum á eftir afa
Tryggvi Ásmundsson læknir og Tryggvi Ásmundur Briem eru báðir stúdentar frá MR þó 65 ár séu á milli útskrifta.
Tryggvi eldri hefur aðstoðað nýstúdentinn í námi og gefið honum mörg heillaráð.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’
Við fimm ákváðum að enginn
okkar ætti að fara í sama fag.
Við ætluðum okkur stóra hluti og
yrðum því að mennta okkur á
breiðu sviði. Framan af átti ég að
verða verkfræðingur og annar
vinur minn læknir.