Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Qupperneq 10
STÚDENTAR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 „Hún fór í Verzló og varð svo stúdent frá Kvennó. En mér tókst að sannfæra börnin hennar Sigrúnar að fara í MR og þau gerðu það.“ Stefnir á hærri einkunn en afi Það er kominn tími til að heyra aðeins í Tryggva yngri, sem setið hefur hjá okkur og hlustað á afa sinn rifja upp gamla tíma. Tryggvi segir menntaskólanámið hafa gengið afar vel og að skólinn hafi verið skemmtilegur, en hann útskrifaðist nú á föstudaginn frá nátt- úrufræðideild MR. Hann byrjar á að segjast enn vera að finna út úr því hvað tekur við í haust. Þegar viðtalið var tekið voru allar einkunnir utan stærðfræði komnar í hús. „Ertu kominn upp fyrir mig?“ spyr afinn spenntur. „Ég á eftir að fá úr ólesinni stærðfræði, þannig að ég veit það ekki. Ég hef smá svig- rúm til að ná því,“ segir hann. „Strákskrattinn stefnir að því að verða hærri en ég og ég verð að sætta mig við það. Ég er samt ekkert leiður yfir því,“ segir Tryggvi eldri og hlær. Blaðamaður fær það út úr honum að stúd- entseinkunnin hafi verið 8,72. Og þú ætlar að verða hærri en afi? „Ég stefni á það!“ segir ungi stúdentinn og brosir. Talið víkur að félagslífi og náminu sjálfu. „Covid truflaði félagslífið. Ég stundaði það mest í sjötta bekk enda hafði ég þá eignast fleiri vini,“ segir Tryggvi og segir afa sinn ekki hafa þurft að sannfæra sig um að fara í MR. „Það var alltaf MR. Bróðir minn og systir voru á undan mér þar og ég hafði heyrt frá þeim hræðilegar sögur af miklu álagi og var því búinn að búa mig undir mikla erfiðleika. En þetta var miklu auðveldara en ég bjóst við,“ segir hann og segir kennarana hafa verið afar góða og skemmtilega. „Líffræðin var skemmtileg og efnafræðin. Jarðfræðin var líka skemmtileg,“ segir hann. Tryggvi Ásmundur segist eins og afi hans eiga afar góða félaga úr skólanum þó hann nefni það ekki klíku, og segist svolítið hafa stundað böllin. Ertu kominn með kærustu? „Nei, ég er ekki svo heppinn, því miður,“ segir hann sposkur. Þetta voru margar langar nætur Hefur þú leitað til afa þíns og fengið aðstoð við námið? „Já talsvert, alla vega í sögu. Það er svo mikið efni og það er þægilegra að afi útskýri það fyrir mér,“ segir hann og segist einnig hafa leitað til hans og beðið um góð ráð. „Í lesinni stærðfræði þarf maður að standa fyrir framan kennara og prófdómara og í fimmta bekk var ég gríðarlega stress- aður. Þess vegna hringdi ég í afa fyrir munn- lega stúdentsprófið í stærðfræði til að fá góð ráð.“ Hvaða ráð gafstu unga manninum? „Ég gaf honum þau ráð að sofa vel nóttina fyrir prófið, líta ekki í bók í klukkutíma áður en hann gengi upp, jafnvel fara í smá göngu- túr. Slaka vel á og ganga rólegur inn. Hugsa sig rólega um áður en hann byrjaði að tala eða svara spurningum. Það liggur ekkert á. Kenn- arinn getur vel beðið. Ég hef sjálfur verið kennari og séð fólk alveg lokast í munnlegum prófum.“ Tryggvi Ásmundur segir þessi ráð hafa hjálpað sér. Hann segist hafa lært vel fyrir stúdentsprófin. „Þetta voru margar langar nætur,“ segir hann. „Þá hefur hann brotið reglur afa síns; ég sagði honum að hann þyrfti alltaf að fá fullan svefn. Þarna kemst upp um hann,“ segir afinn í gríni. En þótt þessi regla hafi verið brotin, fór Tryggvi Ásmundur að ráði afa síns og snerti ekki áfengi menntaskólagönguna. „En daginn eftir að ég kláraði síðasta stúd- entsprófið fékk ég mér smávegis í partíi. Strákarnir eru búnir að vera í þrjú ár að reyna að sannfæra mig um að fá mér í glas,“ segir hann og brosir. „Það leið nú ekki heldur langur tími hjá mér,“ segir Tryggvi eldri og hlær. Iðni, siðprýði og framfarir Talið berst að dimmisjón og segir Tryggvi Ás- mundur að bekkur hans hafi klæðst búningum teiknimyndafígúranna Lilo & Stitch. Afi hans upplifði öðruvísi skólalok. „Þetta búningavesen var ekki byrjað þegar ég útskrifaðist sem betur fer. Við fórum á lóð- ina fyrir framan skólann og það var sungið og hrópað og um kvöldið var borðhald og ball. Stúdentsdagurinn sjálfur var mjög skemmti- legur. Það var athöfn á sal og síðan var tekin mynd af okkur á tröppunum og svo var ball kvöldið eftir á Hótel Borg. Ég man vel eftir þessu balli.“ Bauðstu dömu upp í dans? „Já, ég held ég hafi látið mig hafa það,“ seg- ir hann og hlær dátt. „Við vorum 18 strákar í mínum bekk og ég fékk að bjóða þeim heim í kaffi, en það var ekki á sjálfan útskriftardaginn. Stúdentsveislan var haldin heima í stofu. Þá kom bara nánasta fjölskylda. Stúdents- veislur voru miklu minni þá en nú,“ segir hann og segist muna vel eftir einni stúd- entsgjöf. „Kristinn Ármannsson rektor og Þóra kona hans voru miklir vinir foreldra minna. Þau gáfu mér í stúdentsgjöf áritaða bók en það var bókin Jörð í Afríku eftir Karen Blixen á dönsku“. Nú, 65 árum eftir stúdentsveislu Tryggva, verður veisla fyrir Tryggva Ásmund í fallega húsinu við Laufásveg. Vinur afa hans úr gömlu klíkunni, Guðmundur Kr. Guðmundsson arki- tekt, mun ekki láta sig vanta. Þeir tveir sem eftir eru úr klíkunni gömlu eiga sjálfsagt eftir að rifja upp margt þennan dag á meðan Tryggvi nýstúdent býr til minningar sem end- ast munu út ævina. Hvernig tilfinning er það að klára mennta- skóla? „Það er mjög góð tilfinning og ég er spennt- ur fyrir framtíðinni. Veislan verður hér í hús- inu og ég býð 60-70 manns. Svo verður partí um kvöldið og á laugardaginn júbílantaball,“ segir Tryggvi og Tryggvi eldri segist ætla að mæta í Háskólabíó, horfa á barnabarnið út- skrifast og halda sjálfur upp á 65 ára stúdents- afmælið. Við förum að slá botninn í skemmtilegt við- tal í fallegu stofunni í fjölskylduhúsi þeirra nafna. En áður en blaðamaður heldur á brott dregur afinn fram gamla bók sem faðir hans Ásmundur biskup átti eitt sinn. Hana fékk hann í MR sem viðurkenningu fyrir „iðni, sið- prýði og framfarir“ eins og ritað er á hana. Bókin Menneskeaandens sejre frá 1904 fjallar um uppfinningar. „Ég ætla að gefa stráknum þessa bók, hún er nokkuð merkileg.“ Tryggvi Ásmundur Briem varð stúdent frá MR á föstudaginn og afi hans, Tryggvi Ásmundsson, er 65 ára stúdent frá sama skóla. Stúdentsveislur nafnanna eru báðar haldnar í sama húsinu við Laufásveg. Vinir fyrir lífstíð og samstúdentar, frá vinstri; Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt, Björn Björnsson professor í guðfræði, Þórður Þorbjarnarson borgarverkfræðingur, Tryggvi Ásmundsson læknir og Ólafur B. Thors lögfræðingur og forstjori. Tveir eru enn á lífi, Tryggvi og Guðmundur. Ljósmynd/Ósvaldur Knudsen ’ Í lesinni stærðfræði þarf mað- ur að standa fyrir framan kennara og prófdómara og í fimmta bekk var ég gríðarlega stressaður. Þess vegna hringdi ég í afa fyrir munnlega stúdentsprófið í stærðfræði til að fá góð ráð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.