Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 Þ etta er það erfiðasta sem ég geri, að fara í viðtöl. Þá þarf ég að vera ég sjálf,“ segir leikkonan ástsæla, Ragnheiður Steindórsdóttir, sem fylgt hefur leiklistargyðjunni alla ævi. Heiða, eins og hún er oftast kölluð, býður í bæinn í fallegt hús sitt á Seltjarnarnesi. Í anddyrinu rekur blaðamaður augun í svarthvíta ljósmynd af foreldrum Heiðu, leikarahjónunum þekktu, Steindóri Hjörleifs- syni og Margréti Ólafsdóttur. Ljóst er að Heiða er lifandi eftirmynd móður sinnar; sama brosið, sami augnsvipur. „Já, finnst þér ekki? Stundum þegar ég er á gangi í bænum og sé spegilmynd minni bregða fyrir í gluggum verslana, bregður mér í brún. Þar er þá móðir mín lifandi komin,“ segir Heiða og brosir. Hún ber aldurinn vel, er kvik í hreyfingum, brosmild og ekki að sjá að hún sé að verða sjö- tug eftir aðeins fáeinar vikur. „Hvern hefði grunað þetta! Það er dásam- legt að fá að vakna á morgnana og sem betur fer er ég svo hress og orkumikil,“ segir Heiða og ekki er annað að sjá en að hún sé í fullu fjöri. Hún leikur sem stendur í tveimur leik- ritum í Þjóðleikhúsinu og sést á skjánum bæði í Brúðkaupinu mínu og Vitjunum. Fékk alla ástina ein „Ég fæddist heima hjá ömmu og afa í Vest- mannaeyjum, því þótt foreldrar mínir hafi búið í Reykjavík, fór mamma til Eyja til að eiga mig. Pabbi var að vinna svo mikið, á daginn í banka, því á þeim tíma var alls ekki hægt að lifa af því að vera eingöngu leikari, og var svo í leikhúsinu á kvöldin. Hann tók líka vaktir sem næturvörður í gamla Landsbankahúsinu,“ segir hún og segir hann einmitt hafa verið á næturvakt í bankanum þegar hann frétti af fæðingu einkabarnsins. „Hann sagðist hafa hlaupið á milli allra fallegu málverkanna og hrópað til þeirra að hann væri orðinn pabbi,“ segir hún og hlær. „Mamma veiktist mikið þegar hún gekk með mig; hún fékk ofvirkan skjaldkirtil og veikindin höfðu áhrif á allt hennar líf. En hún var alltaf glöð og jákvæð þótt hún væri oft mjög lasin,“ segir Heiða, en fleiri urðu börn- in ekki. „Ég er einbirni. Þau langaði í stóran barna- hóp, helst tólf! En svo varð það bara ég. Þessi veikindi mömmu settu strik í reikninginn,“ segir hún og segist hafa átt dásamlega æsku og afar skemmtilega og ástríka foreldra. „Ég fékk alla ástina sem hefði örugglega dugað tólf,“ segir hún og hlær dátt. Foreldrar Heiðu voru landsþekktir leikarar, þótt tímarnir hafi verið aðrir og leikarar þá ekki jafn áberandi og nú. „Fólk fór mikið í leikhús og ég fann alveg fyrir því að fólk þekkti foreldra mína, en það var fyrst þegar pabbi lék í Deleríum Búbónis í Iðnó að ég uppgötvaði hvernig „frægðin“ virk- aði. Þar söng hann sig inn í hjörtu landsmanna með laginu Einu sinni á ágústkvöldi, ungur og fallegur. Þá fór síminn að hringja heima og oft voru það smástelpur á línunni að spyrja: Er Steindór heima? Ég var kannski um tíu ára gömul og fannst þetta mjög asnalegt. Við mamma hlógum mikið að þessu.“ Ætlaði að verða ballerína Foreldrar Heiðu störfuðu bæði í Þjóðleikhús- inu og hjá Leikfélagi Reykjavíkur. „Ég veit ekki betur en að pabbi hafi verið eini leikarinn sem var í öllum opnunarsýn- ingum Þjóðleikhússins og mamma lék í einni þeirra og hlutverkin þeirra þar voru fleiri. En eftir að Þjóðleikhúsið var vígt voru margir sem vildu leggja starfsemi Leikfélags Reykjavíkur niður. Hópur fólks ákvað að það mætti ekki gerast og þau voru þeirra á meðal. Þau helg- uðu Leikfélaginu krafta sína eftir það og ég var oft með þeim í vinnunni. Heima var mikið talað um leiklistina og við sáum allar sýningar í bænum. Leikhúsið heillaði mig og mér leið alltaf vel þar, fannst það bæði skemmtilegt og spennandi en ég ætlaði samt að verða ballerína og byrjaði sjö ára í listdansskóla Þjóðleikhúss- ins. En þegar ég var tólf ára var mér orðið svo illt í fótunum og læknirinn sagði að ég mætti ekki lengur stunda dansinn. Þetta var hrika- legur skellur fyrir tólf ára stelpu og mjög dramatískt. En ég hefði aldrei orðið ballerína; ég hafði hvorki vöxtinn í það né skapgerðina og það var því lán í óláni að vera bannað að dansa ballett.“ Sjö ára gömul steig Heiða fyrst á fjalirnar í Iðnó þegar hún lék í sýningu sem hét Sex persónur leita höfundar. Næst var það í miðjum stúdentsprófum, í verkinu Dómínó eft- ir Jökul Jakobsson. „Ég lék í öllum skólaleikritum og kom fram á skemmtunum. Við vorum tvö leikarabörnin í bekknum, ég og Sigþór heitinn, sonur Bessa Bjarnasonar. Við vorum hringtrúlofuð frá sjö ára aldri, með plathringum, og vorum kær- ustupar allan barnaskólann,“ segir hún og hlær að minningunni. „Við vorum alltaf valin í leikritin og hinum börnunum hefur væntanlega þótt það órétt- látt, þó ég hafi ekki fundið það á þeim tíma.“ Hún segist aldrei hafa verið feimin sem barn þegar hún var á sviði eða að lesa upp ljóð. „Stundum taugaóstyrk auðvitað og það hrjáir mig enn í dag, en mér líður best þegar ég hef karakter og kringumstæður til að fela mig bak við. Sjálfstraustið er oft ansi veik- burða þegar ég þarf að koma fram í eigin per- sónu. Ég er frekar feimin. Ég svitna í lóf- unum, þorna í munninum, titra og skelf ef ég þarf að standa upp á félagsfundi og segja skoðun mína. Það er átak. Að halda ræðu í veislu er bara skelfing. Ég geri það bara helst ekki!“ Hvernig barn varstu? „Ég held ég hafi verið ósköp meðfærileg, samviskusöm og ljúf, enda allir svo góðir við mig. Ég hef samt oft hugsað að ég hefði mátt hafa meira skap.“ „Ég er frekar feimin“ „Ég heyri stundum unga fólkið segja skemmtissögur af leikurum fortíð- arinnar. Ég segi ekki endilega margt þó ég heyri að sögurnar hafi kannski breyst ansi mikið. Maður á ekki að láta sannleikann trufla góða sögu og ein fjöður verður gjarnan að fimm hænum,“ segir leikkonan Heiða. Morgunblaðið/Ásdís Ragnheiður Steindórsdóttir steig fyrst á svið sjö ára gömul og fljótt var ljóst hvert hugur hennar stefndi. Einkadóttir leikarahjóna fetaði í fótspor foreldranna og hefur leikið í leikhúsum, kvikmyndum og sjónvarpi, lengst af í Þjóðleikhúsinu, þar sem hún hefur verið á fjölunum í hartnær fjörutíu ár. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Ég svitna í lófunum, þorna í munninum, titra og skelf ef ég þarf að standa upp á fé- lagsfundi og segja skoðun mína. Það er átak. Að halda ræðu í veislu er bara skelfing. Ég geri það helst ekki!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.