Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Page 19
stað meiri breytingar á bílamark- aðinum á þessum áratug heldur en við höfum séð á síðustu 100 árum. Þetta á ekki bara við um nýja fram- leiðendur heldur líka er viðkemur tækni og orkugjöfum. Við hér á Ís- landi stöndum náttúrulega mjög framarlega þegar það kemur að orku- skiptunum en einungis Noregur er kominn lengra á veg en við. Síðan verður spennandi að sjá þróunina á annarri tækni á borð við nettengda bíla og aukinni sjálfkeyrandi tækni.“ „Þetta er í raun ekkert flók- ið“ — Kvíði yfir því hve langt maður mun ná á hleðslunni, er það sem oftast bar á góma þegar fyrstu Nissan LEAF- bílarnir komu á markað hér (með 24 kWh rafhlöðu, ef ég man rétt). Er fólk almennt hætt að hafa áhyggjur af slíku? „Við grínumst stundum með það að drægnikvíði hafi verið landlægur kvilli fyrir nokkrum árum en hann er nú næstum úr sögunni. Það munaði mikið um það að 40 kWh rafhlöð- urnar komu og núna eru margir bílar komnir með 60-70 kWh rafhlöður og á sama tíma hefur hleðsluhraði aukist mikið, bæði í bílunum sjálfum sem og öflugri hraðhleðslustöðvar eru komn- ar upp. Þegar fólk tekur skrefið yfir í hreinan rafbíl þá krefst það auðvitað þess að það getur þurft að skipu- leggja lengri ferðalög betur en fólk er nú almennt fljótt að komast uppá lag- ið með það og sér að þetta er í raun ekkert flókið.“ — Kramið í rafbílum er mun ein- faldara en í bílum með sprengihreyfil, en þeir eru miklu þyngri. Fylgja því einhver sérstök vandamál? „Þyngri bílar slíta að sjálfsögðu dekkjum hraðar en þeir léttari, það segir sig sjálft. Aðalatriðið er bara að velja sér góð dekk og síðan er aukin drægni á sumardekkjum en vetr- ardekkjum þannig að það getur borg- að sig að hafa sitthvorn ganginn uppá sumarferðalögin innanlands.“ Snýst bara um að stinga í samband — Verð á bílum er eðlilega misjafn eftir íburði og markaðssetningu (sum merki eru dýrari af því þau eru dýr- ari), en hvað með rafhlöðurnar og tæknina í kringum þær; er mikill munur á kraminu tæknilega (hitari / kæling, hleðsluhraði o.s.frv.)? „Það eru flestar rafhlöður í dag með hitastýringu sem er annaðhvort stýrt með loft- eða vökvatækni. Síðan getur verið mismunandi efna- samsetning í rafhlöðunum sem getur haft áhrif á drægni og hleðsluhraða í hita eða kulda. Varðandi hleðsluhraða þá er það mjög mismunandi. Í heima- hleðslu er til að mynda algengt að hleðsluhraði sé á bilinu 6,6 kW til 22 kW, en það er háð þeim straumbreyti sem er innbyggður í bílunum og einn- ig því hvort hleðslustöð sé tengd eins eða þriggja fasa rafmagni. Ástæðan fyrir því að það þarf straumbreyti í bílana er að rafhlöðurnar eru alltaf með jafnstraum (DC) en rafmagns- kerfið okkar er með riðstraum (AC). Þegar það kemur að hraðhleðslu þá er þessi straumbreytir (AC/DC) í stöðinni sjálfri og hleðslunetið okkar samanstendur af 50 kW, 150 kW og 350 kW stöðvum. Þegar hlaðið er í hraðhleðslustöð þá fer rafmagnið beint inn á rafhlöðu bílsins og inn- byggði straumbreytir bílsins er því ekki flöskuhálsinn í því ferli og hleðsluhraðinn er því mun meiri. Hraðhleðslugeta bíla er hins vegar mismunandi og getur verið frá 50 kW uppí 250 kW þannig að flöskuhálsinn í hraðhleðslunni getur því annaðhvort verið bíllinn eða hleðslustöðin sjálf. Einnig hafa ytri aðstæður á borð við útihitastig áhrif á hleðsluhraðann. Þetta getur hljómað mjög flókið en í raun snýst þetta bara um að stinga í samband og njóta þess að vera á raf- bíl.“ Mælir hiklaust með heimahleðslustöð — Þú ert á á rafbíl: Hvernig hefur hleðslan reynst á honum í mesta vetr- arkulda? „Ég hef verið með rafbíl á heim- ilinu síðastliðin sex ár og það hefur aldrei verið vesen. Auðvitað er eyðsl- an meiri á veturna þar sem meiri orka fer í að halda bílnum heitum sem og að akstursaðstæður eru mun meira krefjandi og það getur munað svona 20-30% yfir köldustu mán- uðina. Kosturinn við það að hafa upp- hitaðan bíl og þurfa aldrei að skafa á morgnana vegur aftur á móti mun þyngra en smá tap á drægni.“ — Þegar bílar eru farnir að draga 4-500 kílómetra á hleðslu, þarf vænt- anlega ekki að hlaða þá nema tvisvar til þrisvar á mánuði miðað við með- alakstur. Er hleðslustöðvanetið orðið það gott að maður ætti að hætta að hugsa um heimastöð? „Ég myndi hiklaust mæla með heimahleðslustöð þar sem það er ekki bara svo miklu þægilegra heldur er alltaf ódýrast að hlaða heima hjá sér. Almenningshleðslustöðvar eru hins vegar nauðsynlegar og án þeirra munu orkuskiptin ekki ganga upp þar sem við Íslendingar erum töluvert á ferðinni og svo mun bílaleiguflotinn rafvæðast á næstu árum og ekki hleð- ur ferðamaðurinn heima hjá sér.“ Innviðir í aðalhlutverki Verð á rafbílum og þjónusta við þá skipta máli, en einna mestu þó að inn- viðir séu í lagi: að hægt sé að hlaða bílana, og þá á sem skemmstum tíma, hvert sem langförull ratar. Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri hlaða hjá ON, Orku nátt- úrunnar, segir vel gangi að koma upp hleðslustöðvum um land allt þar sem ON sé með samning um uppsetningu, „nema á Reykjanesi þar sem allt hef- ur verið stopp í á annað ár vegna þess að erfitt hefur verið að ákveða hvern- ig þessum málum er best háttað á svæðinu. Sveitarfélögin eru komin mislangt í þessum efnum en þau eiga það flest sameiginlegt að vera mjög áhugasöm um að gera það sem þau geta til að flýta fyrir orkuskiptum. Hverfahleðslur ON hafa fengið ótrú- lega góðar viðtökur en þær eru víða í Garðabæ, Reykjavík og núna í Mos- fellsbæ.“ Mikill meðbyr með orkuskiptum Sigurður Ástgeirsson fram- kvæmdastjóri Ísorku segir að það gangi líka vel að koma upp stöðvum Ísorku um land allt og að fyrirtækið finni fyrir uppsafnaðri spennu eftir COVID, bæði í að setja upp stöðvar sem og að framleiða þær. „Sumir framleiðendur glíma við hrávöru- skort á meðan aðrir hafa hreinlega ekki undan. En allt er þetta á réttri leið enda mikill meðbyr með orku- skiptum hér á landi sem og erlendis.“ Hann segir að sé litið til sveitarfélaga þá hafi Reykjavíkurborg staðið sig vel í að styrkja fjöleignarhús og koma upp hleðslustöðvum fyrir þá sem ekki hafa tryggan aðgang að hleðslu heima. „Hafn- arfjörður hefur líka sett upp hraðhleðslustöð og hæghleðslu- stöðvar með miklum sóma, Vestmanna- eyjar hafa sömuleiðis stutt við innviði með upp- setningu á hleðslustöðvum og önnur sveitarfélög hafa einnig lagt hönd á plóg. Síðan er alltaf spurning hvert hlutverk sveitarfélaga sé á þessum markaði. Við trúum mikið á einka- framtakið og að þjónusta á hleðslu- stöðvum sé á samkeppnismarkaði.“ Þeir telja báðir að ekki sé langt í land með að samfélagið sé fyllilega rafbílavætt. Sigurður segist sjá það fyrir sér að á næstu þrem árum eða svo verði smærri fólksbílar og bíll númer tvö á heimili almennt rafbílar og einnig hafi áhugi fyrirtækja á raf- bílum aukist til muna í takti við hag- kvæmni í framleiðslu og bættum inn- viðum. „Í dag er mikill fókus settur á þá bíla sem einfalt er að skipta yfir á rafmagn. Hinir munu fylgja hratt á eftir. Þeir sem eru með sérþarfir verða því að halda í sér andanum og bíða smá í stað þess að tala niður raf- bíla af því að þeir henta þeim ekki. Með tilkomu markmiða sumra Evr- ópuríkja með að banna nýskráningu fólksbíla á bensín og dísil 2025 er ljóst að þetta gerist mjög hratt. Hraðar en margir þora að trúa.“ Allir annaðhvort búnir eða á leiðinni að fá sér rafbíl „Umræðan er sem betur fer hætt að snúast um það hvort rafbílar séu fram- tíðin eða ekki,“ segir Guðjón. „Við fáum ekki betur séð en að það séu allir ann- aðhvort búnir eða á leiðinni að fá sér rafbíl. Hversu langan tíma það tekur að samfélagið verði fyllilega rafbíla- vætt fer mikið eftir áframhaldandi stuðningi ríkisins að mínu mati. Það að kaupa sér bíl hvort sem það er rafbíll eða ekki er kostnaðarsöm fjárfesting. Ef ríkið fer að setja miklar álögur á rafbíla þá mun það alltaf hægja á raf- bílavæðingu og þá sjálfkrafa á upp- byggingu innviða en mér finnst frekar ólíklegt að þróunin muni eitthvað stoppa núna.“ Eins og fram kemur fyrir ofan þá hafa rafhlöður í rafbíla stækkað umtals- vert á síðustu árum og svo komið að bílar eru margir farnir að draga 300- 500 kílómetra á hleðslunni. Brynjar Elefsen Óskarsson mælir eindregið með heimahleðslustöð og þeir Sigurður og Guðjón taka í sama streng. „Það er mín skoðun að heimahleðslan sé það þægileg að ég mun aldrei vilja neitt annað,“ segir Guðjón og bætir við að Ís- landi sé mun ódýrara að koma upp hleðslustöðvum heima hjá flestum og nýta þá hraðhleðslur þegar fara á lengri ferðir eða þegar meiri notkun var á bílnum en gert var ráð fyrir þann daginn. „Þar sem innviðir fyrir heima- hleðslu eru mjög kostnaðarsamir eða þar sem notendur eiga ekki stæði er hagkvæmast að byggja upp innviði eins og hverfahleðslur sem ON og fleiri hafa byggt upp með sveitarfélögum og fyr- irtækjum.“ Þeir sem geta hlaðið heima munu ávallt kjósa það „Það er alveg ljóst að þeir sem geta hlaðið heima munu ávallt kjósa það fremur en að hlaða á almennum hleðslustöðvum,“ segir Sigurður. „Á móti þá tel ég að með þróun meiri hleðsluhraða á hraðhleðslu þá mun- um við sjá bíla með minni drægni. Margir sem aka rafbíl og hlaða heima átta sig fljótlega á því að þeir þurfa einungis 500 km drægni 1–2% af árinu. Eftir nokk- ur ár þegar inn- viðir hafa stækk- að og meiri hleðsluhraði kem- ur þá er líklegt að fólk kjósi að spara í bílakaupum. Þá munu eflaust margir kjósa 200-300 km drægni og meiri hleðsluhraða á hraðhleðslu fyr- ir þessi 10% á árinu sem þeir reyna á þolmörk drægninnar. Þetta á sérstaklega við þá sem eru að endurnýja rafbílinn sinn eftir 2 – 3 ár. Þeir koma þá reynslunni ríkari og vita betur hvað hentar þeim. Margir munu kjósa mikla drægni og greiða því meira fyrir stóra rafhlöðu, aðrir munu velja minni rafhlöðu út frá reynslu og hvað hentar þeim.“ Best að velja skalanlegt kerfi Aðspurður um að hverju þurfi að hyggja ef fólk ætli að koma sér upp hleðslustöð heima segist Sigurður mæla með því að fólk hafi allt á einni hendi, hleðslustöðina og uppsetn- inguna. „Með því eru litlar líkur á því að viðskiptavinur lendi á milli aðila ef það koma upp vandamál. Við höfum séð mörg dæmi þar sem rafbílaeig- andi getur ekki hlaðið og sá sem seldi stöðina bendir á þann sem setti stöð- ina upp, sem bendir svo aftur á stöð- ina eða bílinn. Á sama tíma er mikilvægt að vera með rafvirkja sem hefur löggildingu og þekkingu á uppsetningu á hleðslu- stöðvum. Það er ekki alltaf best að tala við vin sinn og láta hann redda því. Fólk er að kaupa bíla fyrir milljónir, ekki spara í uppsetningunni. Á sama tíma fá einstaklingar allan VSK af upp- setningu og hleðslustöð og því engin ástæða að styðja við svarta hagkerfið.“ Guðjón segist ráðleggja öllum sem hyggist koma sér upp hleðslustöð heima að hugsa kerfin til framtíðar og þá sérstaklega í fjölbýlishúsum. „Það er nauðsynlegt að kerfin ráði við álagsstýringu til að deila því afli sem er til staðar og það sé gert á sem skynsamastan hátt. Það er best að leita tilboða hjá sem flestum og velja kerfi sem er skalanlegt til framtíðar.“ Colorbox ’ Ekki spurning, það munu eiga sér stað meiri breytingar á bíla- markaðinum á þessum áratug heldur en við höfum séð á síðustu 100 árum. 29.5. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.