Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 20
Bubbi Morthens er þekktur fyr- ir tónlist sína og textasmíð, en líka fyrir veiði- og bíla- dellu. Undanfarna áratugi hefur hann verið jeppakall og þá eðlilega á jeppum með sprengihreyfil, dísil eða bensín, enda ekki annað í boði. Þeg- ar bílaframleiðandinn Jaguar kynnti sinn fyrsta rafbíl var Bubbi ekki lengi að skipta og ekur nú á Jaguar I-Pace. Í upphafi spjalls okkar rifjar hann upp að Agnar Agnarsson vinur hans hafi flutt inn fyrsta alvörurafbílinn á Íslandi. „1981 eða 1982 var hann að segja að rafmagnsbílar væru fram- tíðin og ég man að ég hugsaði: þetta er bara rugl, hann er geggjaður,“ segir Bubbi, en það sé löngu ljóst að Agnar hafði rétt fyrir sér. Loftslagsváin ofarlega í huga Bubbi segir að loftslagsváin hafi ver- ið sér ofarlega í huga varðandi það að fara í rafmagnið, enda trúi hann því að hlýnun jarðar sé staðreynd, rétt eins og það að jörðin sé hnöttótt, en ekki flöt. „Þegar við bjuggum í Kjósinni voru aftur á móti ekki komnir bílar sem drógu nógu langt, en mér fannst það hlyti koma að því að búinn yrði til bíll sem dregur meira en 300 kílómetra. Þegar Niss- an LEAF kom skoðaði ég þann bíl vel og fór að lesa mér til og svo kom Tesla sem var bylting í umræðunni og sannfærði fólk um að rafmagns- bílar væru raunhæfur kostur.“ Bubbi segir að þau hjónin hafi fengið sér tengiltvinnbíl til að byrja með sem hefði dugað úr Kjósinni langleiðina niður í Mosfellsbæ og þar gat hann hlaðið hann og keyrt heim. „Ég var svo kominn á Volvo- jeppa en var búinn að ákveða að þeg- ar við flyttum í bæinn myndum við fá okkur 100% rafmagnsbíl. Ég skoðaði svo nokkra rafmagnsbíla og prófaði meðal annars Teslu sem er alveg ágæt sem slík; það er ýmislegt í Teslunni sem mér fannst flott og ýmislegt sem mér fannst ekki gott. Sérstaklega fannst mér mörgu ábótavant í innréttingu og hönnun. Alltaf elskað Jagúar Svo sá ég á netinu að Jagúar væri að fara að framleiða rafmagnsbíl, en ég hef alltaf elskað Jagúar, enda bíla- dellukarl. Þegar I-Pace kom á mark- að og rakaði að sér verðlaunum sá ég að þetta væri bíll sem ég þyrfti að skoða. Útlitið á honum var dálítið djarft, eins og Tysonbölkaður bíll, en að sama skapi mjög breiður. Þetta er kappakstursbíll ef þú vilt hafa það, langt yfir 400 hestöfl, en svo er hann með stillingar sem gera að verkum að þú getur aðlagað bílinn þínum akstursvenjum. Þetta er fyrst og fremst lúxus, hann er svo vel hannaður að innan- verðu. Skjárinn er til dæmis ekki of stór, hann ræðst ekki inn í augna- sviðið, eins og í sumum rafbílum. Hann er það passlegur að hann hentar öllum aðgerðum og svo er maður líka með takka sem mér finnst rosalega þægilegt því þegar maður er að ýta á snertiskjáinn þá þarf oft að taka augun af veginum. Hann er líka með fínar lausnir í stýr- inu.“ Skilar sér rækilega í heimilisbókhaldinu Eins og flestir vita eflaust þá dregur úr drægni rafbíla í köldu veðri, en Bubbi segir það hafa komið sér á óvart hve minnkunin sé lítil í raun. „Ég er með hann úti allt árið og yfir sumartímann er hann í svona 440- 450 kílómetra hleðslu í innanbæj- arakstri. Í vetur var ég með hann í þetta 405-420, hann fór ekki lengra niður. Mér fannst þetta eiginlega lygilegt.“ Eldsneytiskostnaður er snar þátt- ur í kostnaðinum af því að eiga bíl og Bubbi segir að það að hafa rafbíla- væðst skili sér rækilega í heimilis- bókhaldinu. Annað viðhald sé líka mun minna, hann fer sjaldnar með bílinn í þjónustuskoðun og hver skoðun sé líka ódýrari, alla jafna þurfi ekki nema að kíkja á tölvuna, og fínstilla stundum. Svo þarf nátt- úrlega að fara yfir bremsur og önnur öryggisatriði. Mikil upplifun að skipta úr bensíni og dísil í rafmagn „Það er mikil upplifun að skipta úr bensín- og dísilbíl í rafmagn – mun- urinn að keyra rafmagnsbíl og bens- ínbíl er svipuð upplifun eins og þeg- ar langafi okkar og langamma fengu gúmmískó í fyrsta skipti, þetta er álíka bylting og að fara úr skinn- skónum. Eitt það fyrsta sem maður tekur eftir eru hljóðgæðin. Jagúarinn er svo vel einangraður að maður upp- lifir að vera nánast í algerri kyrrð. Á móti kemur að maður þarf að vera meira á vaktinni gagnvart fólki, vera mjög fókuseraður niðri í miðbæ til dæmis, vera meðvitaður um það að fólk heyrir ekki í bílnum. Það er hægt að setja hljóð á hann, en það er svo hræðilegt að ég held að fólk myndi deyja ef það heyrði það. Það er líka hægt að velja hljóð inni, mað- ur getur verið með formúluhljóð þegar honum er gefið inn og alls konar, en ég hef hann alveg hljóð- lausan. Ég set hins vegar á svona geimveruhljóð þegar ég er niðri í bæ. Ég hvet alla sem eru á bíl yfirleitt til þess að fara annaðhvort beint í rafmagnið eða fara í tengiltvinnbíl og upplifa að þetta er raunverulegt og það er engin ástæða lengur til að segja nei. Fyrir utan það hvað það er gaman að keyra rafmagnsbíl. Það sem ég er hins vegar rosalega hissa yfir er að þrátt fyrir að það sé sannarlega verið að gera sitthvað skuli ríkisstjórn Íslands og ráða- menn ekki hafa sett meiri kraft í hleðslukerfið. Það er glatað að það sé ekki komið net af hleðslustöðvum í kringum landið svo enginn þurfi að hafa áhyggjur. Það ættu að vera hraðhleðslustöðvar á öllum helstu póstum og ekki tvær, ekki þrjár heldur tíu. Mér finnst að það eigi að að taka af skarið og segja að fram að orkuskiptum munum við fella niður virðisaukaskatt og innflutningsgjöld af rafmagnsbifreiðum.“ Álíka bylting og að fara úr skinnskónum Þegar vinur Bubba Morthens flutti inn raf- magnsbíl fyrir fjörutíu árum hafði hann enga trú á að rafbílar væru framtíðin, en ekur nú um á „Tysonbölk- uðum“ Jaguar I-Pace. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bubbi Morthens féll fyrir Jaguar I-Pace sem hann segir fyrst og fremst lúxus. ’ 1981 eða 1982 var Agnar Agnarsson vinur minn að segja að rafmagnsbílar væru framtíðin og ég man að ég hugsaði: þetta er bara rugl, hann er geggjaður“ 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 BÍLAR Helga rútgá fanEinar bárða - anna magg a - yn gvi ey stein s Alla l augar daga frá k l 9-12

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.