Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 KNATTSPYRNA S ynd væri að segja að nýgræð- ingar og boðflennur tækjust á um Evrópubikarinn í dag en Real Madrid hefur unnið mótið lang- oftast allra félaga, 13 sinnum, og Liverpool deilir þriðja sætinu með Bayern München, en hvort félag hefur lyft þeim eyrnastóra sex sinn- um og getur nú jafnað við AC Milan sem býr að sjö titlum. Flestir sparkskýrendur hallast að því að Liverpool sé sigurstranglegra í dag en enginn skyldi afskrifa Madrídinga. Spyrjið bara Paris Sa- int-Germain, Chelsea og Manchest- er City sem þeir hafa slegið út á leið sinni í úrslitin. Það eru sko engir aumingjar með hor, skal ég segja ykkur. Fráfarandi Evrópumeistarar og nýbakaðir landsmeistarar í Frakklandi og Englandi. Pep Guar- diola er enn með asahláku í iðrum eftir ævintýralegt lokaáhlaup Madr- ídinga í undanúrslitunum. Samanborið við þessa Fjallabaks- leið þá krúsaði Liverpool bara í úr- slitin á bundnu slitlagi og þurfti ekki einu sinni að setja nagla undir gegn Inter Milan, Benfica og Villarreal sem öllum að óvörum skaut upp koll- inum í samkvæminu á lokastigum. Spænsku partíljónin rifu sig meira að segja á kassann í seinni leiknum, þangað til Púlaranir fengu nóg og hentu þeim öfugum út. Takk fyrir komuna, piltar, hér eftir er dans- gólfið okkar! Þá voru þeir Emery- ingar búnir að hrista af sér bæði Ju- ventus og Bayern München. Til að gera langa sögu stutta þá hefur einn maður borið Real-liðið á herðum sér í úrslitin, franski mið- herjinn Karim Benzema sem þegar hefur gert 15 mörk í Meistaradeild- inni í vetur í aðeins 11 leikjum. Það er galin tölfræði í bestu deild í heimi. Besti árangur Frakkans í þeirri ágætu deild fram að því var sjö mörk fyrir áratug. Hann státar af þeim mergjaða árangri að hafa skorað í Evrópukeppni á hverju einasta tímabili frá 2005-06. Við erum að tala um 17 tímabil í röð. „Þetta er ekki mennskt,“ eins og Einar Bolla- son myndi orða það ef hann væri að skrifa þessa grein. Markahæsti leikmaður Liverpool í Meistaradeildinni í vetur er Moha- med Salah með átta mörk í 12 leikj- um – sem er alls ekki slæmt heldur. Benzema heyrir til genetískri undrakynslóð sóknarmanna sem harðneita að eldast en hann verður 35 ára síðar á þessu ári. Einnig má nefna Zlatan Ibrahimovic’’ (40 ára), Cristiano Ronaldo (37 ára), Olivier Giroud (35 ára) og Robert Lew- andowski (33 ára). Auðvitað má líka nefna Lionel Messi (að verða 35 ára) í þessu sambandi enda þótt heldur hafi nú bráð af honum í París. Benzema er að ljúka sínu lang- besta tímabili á ferlinum, stendur í 44 mörkum í 45 leikjum í öllum keppnum. Mest hafði hann áður skorað 32 mörk fyrir Real, fyrir ára- tug, og áberandi er hvað hann hefur tekið meira til sín eftir að téður Ro- naldo yfirgaf félagið 2018. Eftir það er hann með tæp 33 mörk að meðal- tali á vetri. „Nú, fyrst aðalkallinn er laus þá skal ég bara vera hann,“ sagði sá franski, bretti upp á var- irnar, yppti öxlum og fékk sér væn- an bita af hvítlauksbrauði. Svo lengi hefur Benzema verið hjá Real, hann kom 2009, að margir þurfa ábyggilega að grafa djúpt til að muna hvar hann lék áður. Nei, nei, þetta er engin gáta. Það var Lyon, heima í Frakklandi. Talandi um það, þá verður Ben- zema á heimavelli í dag en leikurinn verður háður á Fransvangi í hinu geðþekka hverfi Saint-Denis í París. Ef þið eruð á leið utan gerið þá í öllum bænum ráðstafnir með ferðir en ég þekki mann sem horfði á liðið sitt tapa úrslitaleik í Meistaradeild- inni á þessum sama velli, fékk ekki leigubíl á eftir og þurfti að ganga í þrjá tíma heim á hótel. Þegar þang- að var komið var búið að loka barn- um! Enginn verður óbarinn biskup. Liverpool hefur ábyggilega áform um að ganga milli bols og höfuðs á Madrídingum í venjulegum leiktíma, eða til vara í framlengingu, en fari rimman alla leið í vítakeppni þá er lítið að óttast, Rauði herinn er nefni- lega stríðþjálfaður í þeim vísindum og í ofboðslegri æfingu eftir að hafa lagt Chelsea í tvígang í bikar- keppnum heima fyrir. Nú sé ég minn gamla félaga Arngrím Baldursson, sem er að ég held á launaskrá hjá Liverpool, rjúka upp frá morgun- verðarborðinu, slá sér á lær og blóta mér í sand og ösku. „Ætlarðu nú að fara að jinxa þetta, lagsi?“ Nei, gamli minn, hafðu engar áhyggjur, ég hér við lúið lyklaborðið á sveita- setri mínu á Kjalarnesi hef ekkert um útkomuna á Fransvangi að segja. Ég lofa! Auðvitað væri gaman að geta fjarstýrt svona hlutum en því miður, þannig virkar heimurinn víst ekki. En maður á aldrei að brenna af því dauðafæri að grilla að- eins í Púlurum enda er sá söfnuður upp til hópa hjátrúarfyllri en roskn- ustu bændur á Héraði. Þess utan þarf enga spekinga til að telja Þjóðverja sigurstranglegri í vítakeppni en þaðan er jú hershöfð- inginn á Anfield, Jürgen Klopp, góð- kunningi Sunnudagsblaðs Morgun- blaðsins. Og þau hjónin bæði. Ulla og hann. Stjóri Real, Carlo Ancelotti, er frá Ítalíu. Reyndar svaðalegur sigur- vegari líka, búinn að vinna allar stærstu deildir Evrópu, einn manna, og hlýtur að fara að taka við Val. Á harma að hefna En að öllu grilli slepptu þá á Liver- pool harma að hefna en liðið lá fyrir Spánverjunum í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar fyrir fjórum árum. Þegar Gareth Bale gerði eitt af undramörkum Evrópusögunnar og Loris Sven Karius átti ekki sinn besta dag í markinu hjá Liverpool. Bale bætti við öðru marki, eins okk- ar maður Benzema. Sadio Mané skoraði mark Liverpool en leikið var í Kænugarði. Þetta var síðasti úrslitaleikurinn sem Liverpool tapaði en liðið sneri banhungrað aftur ári síðar og lyfti bikarnum eftir sigur á löndum sín- um í Tottenham Hotspur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og Liverpool-liðið orðið mun sterkara og leikmannahópurinn breiðari en bæði 2018 og 2019. Inn eru komnir nokkrir nýir menn sem eru sólgnir í þann stóra. Hitt eru þó verri fréttir að Real Madrid hefur aldrei tapað úrslitaleik eftir að mót mótanna var vatni ausið og endurskírt Meistaradeild Evr- ópu. Við erum að tala um sjö leiki og sjö sigra og síðasta tapið kom 1981. Gegn hverjum? Jú, nema hvað – Liv- erpool. Muniði hver var með sigur- markið? Jú, Alan gamli Kennedy. Hver mun standa í hans sporum í dag? Hver vill ekki vera Kennedy? Hver vill ekki vera Kennedy? Risarnir Liverpool og Real Madrid berjast um sigurlaunin í Meist- aradeild Evrópu á Fransvangi í París í dag, laugardag. Hvor- ugt lið er þar á fram- andi slóðum og þekki maður þau rétt þá mun lítið skilja á milli. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Mohamed Salah, erkiskytta Liverpool, sækist eftir sínum öðrum Evrópubikar. AFP Karim Benzema er markahæstur í Meistaradeildinni í vetur með 15 mörk. AFP ’ Samanborið við þessa Fjallabaksleið þá krúsaði Liverpool bara í úrslitin á bundnu slitlagi og þurfti ekki einu sinni að setja nagla undir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.