Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022
TÍMAVÉLIN
Þ
egar þú, lesandi góður, verð-
ur kominn inn í frásögnina
hér að neðan muntu
ábyggilega spyrja þig hvort um
rétt ártal sé að ræða, þannig að
best er að taka bara skýrt fram
strax hér í upphafi að atburðirnir
sem hér er lýst áttu sér stað á því
herrans ári 1952 en ekki 1252,
þegar öld Sturlunga stóð sem
hæst, eins og jafnvel mætti ætla.
En alla vega. Aðfaranótt sunnu-
dags seint í maí 1952 heimsótti
hópur manna bæinn Skáldsstaði í
Saurbæjarhreppi í Eyjafirði.
Ruddust þeir, að því er fram kom
á baksíðu Morgunblaðsins, inn í
bæinn með ofbeldi og frömdu
meiðingar á fólki. Fram kom að
málið hefði verið kært til bæjar-
fógetans á Akureyri og væri í
rannsókn.
Málsatvik voru þau að téða nótt
komu fimm menn í bíl frá Akur-
eyri fram að Skáldsstöðum. Meðal
þeirra var Akureyringur sem við
skulum kalla hér Brand. Barði
hann að dyrum á Skáldsstöðum og
hugðist tala við stúlku, er þar var
til heimilis. Aðkomumenn voru, að
bifreiðarstjóra undanteknum,
nokkuð við skál.
Bóndinn á Skáldsstöðum kom til
dyra. Vildi hann ekkert hafa með
aðkomumenn að sælda, vísaði
þeim á brott og lokaði dyrum.
Hugðist bera eld
að húsum
Fauk þá í Brand og bitnaði reiði
hans á gluggarúðu á bænum.
Kveikti hann síðan í bréfi og
hugðist bera eld að húsum. Skarst
þá bifreiðarstjórinn í leikinn og
tókst að koma í veg fyrir slíkt
gjörræði.
Brandur barði nú aftur að dyr-
um og birtist bóndi þar enn. Hóf-
ust nú átök þeirra á milli og urðu
þar sviptingar allsnarpar. Barst
leikurinn inn í bæinn. Er þar var
komið reyndi einn liðsmanna
Brands að skakka leikinn, en fékk
ekki að gert.
Sviptingar þeirra Brands og
bónda héldu áfram og er að rúmi
einu í bænum kom hafði Brandur
bónda undir. Í sama mund gekk
stúlka sú, er Brandur vildi ná tali
af, gegnum herbergið og inn í
næsta. Sleppti Brandur þá bónda
og hvarf á eftir stúlkunni. Vildi ná
tali af henni og fá hana með sér.
Neitaði stúlkan því með öllu.
Bóndi flúði nú bæinn og hugðist
leita mannhjálpar. Gamall maður,
er á Skáldsstöðum var, tók þá að-
komumenn tali, og vildi sefa þá og
bauð þeim kaffi. Höfnuðu aðkomu-
menn því, en buðu gamla mannin-
um snafs í staðinn. Engum sögum
fer af því hvort hann þáði það. Er
hér var komið sögu sáu aðkomu-
menn hóp manna nálgast og töldu
vænlegast að hverfa á brott. Og
lauk rimmunni þar með.
Að endingu var tekið fram í
fréttinni að frásögn þessi væri
samhljóða frásögn fimmmenning-
anna frá Akureyri.
Lömbin lífguð við í
eldhúsum
Mikið gekk á þessa viku vorið
1952 en einnig var frá því greint á
baksíðu Morgunblaðsins þennan
sama dag að aðfaranótt þriðju-
dagsins áður hefði ofsa norð-
vestan og norðan krepjuhríð með
mikilli snjókomu gengið yfir
Vatnsdal. Veðurhæðin komst allt
upp í 10 vindstig.
Gil og lautir fylltust af snjó og
fennti fé á ýmsum stöðum eða
varð fast í sköflum. Miklir erfið-
leikar voru að koma lambám í hús,
þar sem lömbin urðu máttlaus af
kulda og var lambadauði mikill.
Það var lítið um svefn þessa
nótt, þar sem hver verkfær maður
var við björgunarstörf til morg-
uns. Voru mörg lömbin vermd og
lífguð í eldhúsunum af kvenfólk-
inu, sem einnig tók virkan þátt í
því starfi, sem þarna þurfti að
vinna.
Nokkur kaldhæðni í þeim gjörn-
ingi enda hafa þau svo væntanlega
síðar verið elduð í þessum sömu
eldhúsum um haustið. Elstu menn,
sem voru raunar með zetu á þess-
um tíma, mundu ekki slíkt voðaá-
hlaup í maílok en enn þá var
hvasst og kalt. „Jörð var áður vel
gróin og sprettuútlit gott, hvaða
afleiðingar sem þetta fárviðri
kann að hafa í för með sér,“ stóð í
Morgunblaðinu.
Slæmt útlit með fénað
Ekki var staðan skárri á Hofsósi.
„Undanfarna tvo daga hefir verið
ofsaveður af norðri með snjókomu
og stórsjó,“ skrifaði fréttaritari
Morgunblaðsins. „Til dala hefir of-
ankoma verið mikil og fé fennt
þar, en minna snjóað í útsveitum.
Slæmt útlit er með fénað, ef ekki
hlýnar fljótlega. Um tíu síma-
staurar brotnuðu á milli Hofsóss
og Sauðárkróks og vegurinn á
þessari leið varð ófær. Var hann
ruddur með ýtu í dag.“
Suður-Þingeyjarsýsla slapp ekki
heldur en skemmdir urðu í aftaka-
veðri með frosti og snjókomu á
húsum og mannvirkjum. Í inn-
sveitum voru mannhæðardjúpir
skaflar. Háspennulínan til Akur-
eyrar rofnaði, járnþök fuku af
gripahúsum í Mið-Hvammi og
Hvammi í Aðaldal og fleiri
skemmdir urðu.
Margir bændur voru búnir að
sleppa lambfé og náðist það með
naumindum í hús. „Er allt sauðfé
á gjöf í dag. Mun það valda bænd-
um miklum óþægindum, ef löng
innistaða verður, enda fara hey að
ganga til þurrðar sumsstaðar,“
stóð í Morgunblaðinu.
Já, maí er sannarlega ekki allur
þar sem hann er séður.
Frömdu meiðingar á bóndabæ
Hópur manna ruddist
með ofbeldi inn á bæ-
inn Skáldsstaði í Saur-
bæjarhreppi og framdi
meiðingar á fólki vorið
1952. Þeir vildu ná tali
af stúlku sem þar var til
húsa. Um sama leyti
var aftakaveður víða
nyrðra og blása þurfti
lífi í blessuð lömbin í
eldhúsum í Vatnsdal.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sauðfé lenti í stökustu vand-
ræðum í krepjuhríðinni nyrðra
undir lok maí árið 1952.
Morgunblaðið/RAX
Menn létu hnefana tala á
Skáldsstöðum fyrir sjötíu ár-
um og barst leikurinn víða.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
’
Bóndi flúði nú bæinn
og hugðist leita
mannhjálpar. Gamall
maður, er á Skáldsstöðum
var, tók þá aðkomumenn
tali, og vildi sefa þá og
bauð þeim kaffi.
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum