Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.5. 2022 LESBÓK 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapoka Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 1.995 Strákústar mikið úrval Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 585 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum Fötur í miklu úrvali frá1.495 Laufhrífur VERÐLEIKAR Allar líkur eru á því að sjávarborð jarð- ar lækki nú verulega, alltént hér á vesturhveli jarðar, en bandaríska fjölskyldudramað This Is Us rann sitt skeið á enda í vikunni. Ekki hefur verið grátið jafnhressilega í sjónvarpi frá því Húsið á sléttunni var upp á sitt besta í sjöunni, eins og ungviðið segir. Breska blaðið The In- dependent gerir sér mat úr þessu og skammar leika sem lærða fyrir að hafa ekki metið frammistöðu Mandy Moore í hlutverki ættmóðurinnar Rebeccu Pearson að verðleikum. Hún eigi þarna leik lífs síns, ekki síst þegar hún leikur upp fyrir sig, en Rebecca sálast í hárri elli undir lok seríunnar. Moore var 32 ára þegar flautað var til leiks og nokkrum árum yngri en börnin hennar, þrí- burarnir sálarhvekktu. Það er að segja leikararnir. Yngri en börnin hennar Leik- og söngkonan Mandy Moore. AFP/Lisa O’Connor AFMÆLI Duran Duran fagna því um þessar mundir að 40 ár eru liðin frá útgáfu breiðskífunnar Rio sem skaut þeim á sporbaug um jörðu. Í skemmtilegu samtali við The Guardian upplýsa John Taylor bassaleik- ari og Nick Rhoades hljómborðleikari sitthvað um tilurð plöt- unnar og ekki síst titillagsins. Taylor segir það hafa verið samið sem opnunarlag á tónleikum undir sterkum áhrif- um frá Chic enda þótt hann sjálfur væri þess ekki um- kominn að taka hljóðfærið til kostanna eins og Bernard Edwards. Rhoades segist á hinn bóginn hafa verið með Karlheinz Stockhau- sen og John Cage á heilanum á þessum tíma. Hver sá það fyrir? Textanum botna þeir félagar ekkert í og trúa að sama máli gegni um skáldið, súrrealistann Simon Le Bon. Fagna fertugsafmæli plötunnar Rio Duran Dur- an í Egilshöll árið 2005. Morgunblaðið/ÞÖK Kaley Cuoco er mikil pabbastelpa. Pabbi eins og grár köttur FÖÐURÁST Faðir bandarísku leikkonunnar Kaley Cuoco var við- staddur upptökur á hverjum ein- asta þætti í gamanflokknum The Big Bang Theory en þeir voru 279 talsins og gerðir á árunum 2007 til 2019. Þetta upplýsti hún í spjall- þætti James Cordens, The Late Late Show, á dögunum. Pabbi gamli mun hafa átt sinn sérmerkta stól á settinu sem hann notaði þó aldrei enda stóð hann allan tímann. „Að því kom að ég gat ekki leikið án hans. Ég hugsaði með mér: Þú getur ekki misst úr núna, þú ert hluti af þættinum,“ sagði Cuoco sem leikur nú í nýjum þáttum, The Flight Attendant, en ekki fylgdi sögunni hvort pabbi væri þar eins og grár köttur líka. Eftir hressilegt rof á tónleika- haldi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar hugsaði Jinjer sér gott til glóðarinnar á þessu vori enda var úkraínska málmkjarnabandið á hraðri uppleið í málmheimum áður en veröldin var pásuð. Fyrirhugaður var Banda- ríkjatúr með engum öðrum en Slip- knot í mars og nú í maí átti Jinjer að leggja upp í sína fyrstu tónleikaferð um Suður-Ameríku, þar sem málm- ur er sem kunnugt er í hávegum hafður. Það fór á annan veg. Rússar réðust inn í Úkraínu og Jinjer sá sitt óvænna og dró sig út úr Knotfest Roadshow. Suður-Ameríkutúrnum var einnig aflýst. „Kæru bræður og systur í Suður- Ameríku,“ sagði Jinjer í yfirlýsingu. „Það er með mikilli sorg og trega í hjarta sem við neyðumst til að aflýsa fyrirhugaðri tónleikaferð okkar nú í maí, auk þess sem við höfum ákveðið að bóka enga nýja tónleika að sinni. Við erum skipuleggjendum þakklát fyrir að hafa svona mikla trú á band- inu og hverju og einu ykkar fyrir að halda í miðana ykkar undanfarin tvö ár en við munum ekki biðja ykkur um að halda þeim lengur … dag einn mun fundum okkar þó bera saman, því er lofað. Jinjer.“ Af þessu má ráða að Jinjer er kom- ið í ótímabundið frí og ástæðan er augljós: Innrás Rússa í heimaland Í pásu út af stríðinu Loksins þegar málmkjarnabandið Jinjer var búið að finna taktinn og komið á siglingu varð það að rifa seglin, fyrst út af heimsfaraldrinum og síðan vegna stríðsins í heimalandinu, Úkraínu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Eugene Abdukhanov hefur lagt bassann frá sér og helgar sig nú hjálparstarfi í Úkraínu. Hvenær Jinjer kemur aftur saman verður tíminn að leiða í ljós. AFP/Rebecca Sapp Söngkonan Tatiana Shmailyuk, eða Tati, eins og vinir hennar kalla hana, er aðsópsmikill frontmaður og öllum sem til þekkja ber sam- an um að hún eigi stóran þátt í velgengni Jinjer á umliðnum árum og misserum. Hún syngur bæði „hreint“ og „óhreint“ og spannar ríflegt svið; hljómar eins og Randy Blythe úr Lamb of God eina stundina og Svala okkar Björgvins þá næstu. Shmailyuk fæddist árið 1987 og hneigðist ung að málmi en eldri bróðir hennar var gítarleikari í slíku bandi sem fáum sögum fer þó af. Hún ólst upp í örbirgð og er ákaflega stolt af uppruna sínum, eins og kom fram í viðtali við málm- gagnið Metal Injection. „Það eru tvær leiðir til að ná árangri,“ sagði hún. „Annaðhvort á maður sæg af peningum eða maður leggur fokk- ing hart að sér! Við heyrum til seinni hópnum. Þegar maður á ekkert hefur maður engu að tapa og allt veltur á þrautseigjunni.“ Hneigðist ung að málmi Tatiana Shmai- lyuk, söng- kona Jinjer.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.