Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 29
þeirra, Úkraínu, og afleiðingar henn- ar fyrir þjóðina. Lítið hefur heyrst frá meðlimum bandsins frá því að stríðið braust út en í samtali við vef- síðu breska ríkisútvarpsins, BBC, í mars staðfesti Eugene Abdukhanov bassaleikari að hann væri hættur í „dagvinnunni“ til að geta helgað sig hjálparstarfi í þeirri neyð sem skap- ast hefur í landinu. „Í þessum skrif- uðum orðum er hann að setja á lagg- irnar góðgerðarsamtök til að hjálpa hernum og óbreyttum borgurum og mun bráðlega taka saman höndum með vinum sínum og opna neyð- arskýli, þar sem fólk sem hefur orðið illa úti í átökunum getur fengið mat, vatn og skjól,“ sagði í umfjöllun BBC. Brögð eru að því að úkraínskir listamenn hafi fengið yfir sig aur- slettur úr austurvegi en Abdukh- anov kannaðist ekki við það. „Ég hef fengið skilaboð frá einhverjum rúss- neskum aðdáendum okkar, þar sem þeir biðja mig velvirðingar og segj- ast vera þessu andvígir,“ sagði bassaleikarinn sem þá var staddur í austurhluta Kænugarðs. „Ég hef ekki fengið nein reiðileg skilaboð frá Rússum, þar sem reynt er að rétt- læta þetta. Jafnvel þótt einhverjir séu í hernum þá skammast þeir sín of mikið til að nefna það.“ Skömmu eftir þetta sendi Ab- dukhanov einnig frá sér skilaboð á samfélagsmiðlum, þar sem hann kallaði eftir stuðningi við Úkraínu og að innrásin yrði fordæmd. Allir stofnmeðlimir hættir Jinjer var stofnuð í borginni Don- etsk árið 2008 en enginn sem þar kom að málum á enn þá aðild að bandinu. Allir fjórir voru raunar horfnir frá borði árið 2015. Það hlýt- ur að vera met? Gítarleikarinn Rom- an Ibramkhalilov og söngkonan Tatiana Shmailyuk gengu í bandið 2010 og hafa verið þar allar götur síðan. Raunar miðar vefsíða Jinjer upphafið við komu hinnar „ótrúlegu söngkonu og femme fatale“ Shmay- luk. Téður Eugene Abdukhanov kom um borð ári síðar og trymbill- inn Vladislav Ulasevich bættist í hópinn 2016 en þá höfðu fjórir starfsbræður hans komið og farið. Á vefsíðunni kemur fram að Jinjer hafi juðað og puðað í æfingahúsnæð- inu og á smærri tónleikasviðum fyrstu árin en 2013 var vegur bands- ins orðinn það mikill að það var valið Málmband ársins í Úkraínu. Bókuðu giggin sjálf Eftir tvær EP-plötur kom fyrsta breiðskífa Jinjer, Cloud Factory, út 2014. Á vefsíðunni kemur fram að bandið hafi bókað öll gigg sjálft á þessum tíma og „byggt upp orð- sporið augliti til auglitis, aðdáanda fyrir aðdáanda og það sem meira er á sínum eigin forsendum“. Næsta breiðskífa, King of Every- thing, kom út 2016. Þarna var band- ið farið að sækja út fyrir landstein- ana og myndbönd við tvö lög, Pisces og I Speak Astronomy, náðu tals- verðum vinsældum á YouTube. „King of Everything var til vitnis um tónlistarlegan mátt og megin og vöxt bandsins í heild og opnaði flóð- gáttir inn á mun stærri markað sem Jinjer færði sér með glöðu geði í nyt,“ segir á vefsíðu bandsins. Árið 2017 hitaði Jinjer upp fyrir Arch Enemy á Evróputúr bandsins og ári síðar fékk Cradle of Filth þau til að gera slíkt hið sama vestanhafs. Prófíllinn hækkaði hægt og bítandi og þegar þriðja breiðskífan, Macro, kom út 2019 var Jinjer orðið bæri- lega þekkt nafn í málmheimum. Þar var að finna smelli á borð við Judge- ment (& Punishment), Retro- spection og Home Back. Þrátt fyrir að heimsfaraldurinn hafi neglt Jinjer niður heima í Úkra- ínu sat bandið ekki auðum höndum; sendi frá sér tónleikaskífuna Alive in Melbourne 2020, sem tekin var upp einni viku áður en faraldurinn skall á með tilheyrandi samkomubönnum þar um slóðir, og breiðskífuna Wallflowers síðasta sumar. Hún féll í frjóa jörð og bandaríska málm- gagnið Loudwire setti hana meðal annars í 21. sæti yfir bestu plötur ársins. „Wallflowers er ekki bara skref upp á við í framsækna grúv- málminum sem allir aðdáendur Jinj- er dá og þrá, heldur um leið hljóð- rænn suðupottur tæknilegrar tónlistarmennsku, tilfinningalegrar heiftar og ákafrar hljóðrásar sem hæfir andrúmsloftinu í heiminum í dag,“ segir á vefsíðu Jinjer. Það verður víst að duga í bili. Jinjer hefur borið hróður úkraínsks málms víða um lönd. AFP/Rebecca Sapp 29.5. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 139.000 kr. Loksins fáanlegir aftur, í mörgum litum ENDURFUNDIR Óvæntur gestur skaut upp kollinum á tónleikum Iron Maiden í Zagreb í Króatíu á dögunum, Paul Di’Anno, fyrsti söngvari breska bárujárnsbands- ins, en hann hvarf frá borði árið 1982 og Bruce Dickinson tók við. Di’Anno hefur búið þar undanfarið en hann bíður eftir hnéskipta- aðgerð og er í hjólastól. Steve Harris bassaleikari heilsaði upp á sinn gamla félaga fyrir tónleikana en þeir hafa víst ekki ræðst við um árabil. Vel þótti fara á með þeim. Fengu óvæntan gest á tónleika Steve Harris og Paul gamli Di’Anno. Instagram BÓKSALA 18.-24. MAÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Sumar í strandhúsinu Sarah Morgan 2 Allt í blóma Hafsteinn Hafliðason 3 Reimleikar Ármann Jakobsson 4 Maðurinn sem dó tvisvar Richard Osman 5 Hálendishandbókin Páll Ásgeir Ásgeirsson 6 Natríumklóríð Jussi Adler-Olsen 7 Kennarinn sem fuðraði upp Bergrún Íris Sævarsdóttir 8 Hvítserkur María Siggadóttir 9 Fær í flestan sjó Kristín Jórunn Hjartardóttir/ Egill Eðvarðsson 10 Allt og sumt Þórarin Eldjárn 1 Sumar í strandhúsinu Sarah Morgan 2 Reimleikar Ármann Jakobsson 3 Maðurinn sem dó tvisvar Richard Osman 4 Natríumklóríð Jussi Adler-Olsen 5 Hvítserkur María Siggadóttir 6 Gestalistinn Lucy Foley 7 Upplausn Sara Blædel/Mads Peder Nordbo 8 Helkuldi Viveca Sten 9 Skaðræði Jón Pálsson 10 Tíminn sem týndist Julia Dahl Allar bækur Íslenskar kiljur Bækur láta mig hlæja og gráta. Það eru töfrar í fallegum setningum, titlum og sögum. Ég hef alltaf lesið mikið eftir kon- ur og les mikið á ensku. Bel Canto, eftir Ann Patchett, er dæmi um uppá- haldsbók. Þetta er saga um óperu- söngkonu í Suður- Ameríku sem flæk- ist í gíslatöku. Sagan flýtur ljúflega eins og lækur en er full af tilfinningum und- ir yfirborðinu. Eins og margir féll ég fyrir nýstirninu Sally Rooney, sem skrifar ekki í ólíkum stíl. Sér- staklega er ég hrifin af bókinni Normal people, sem skaut henni upp á stjörnuhimininn, en hún er skrifuð af mikilli næmni fyrir mennskunni. Einhverra hluta vegna er ég hrifin af bókum um breysk- leika fólks. The Bad Girl, eftir Mario Var- gas Llosa, er stórskemmtileg og fjallar sannarlega um breyska konu. David Sedaris er uppáhalds- höfundur og það er enn skemmti- legra að hlusta á hann lesa en að lesa bækurnar sjálf. Bækur sem lýsa barnæsku hans, t.d. Naked, eru svo fyndnar að ég hlæ oft hátt ein yfir lestrinum. Það er hressandi að lesa um móður sem er kald- hæðnari en góðu hófi gegnir og ófyrirgefanlega kærulaus. Nýlega er ég farin að leita meira að höfundum fjarri Evrópu og Bandaríkjunum og mér finnast Bernardine Evaristo og Chimam- anda Ngozi Adichie til dæmis æðis- legir höfundar. Það er skemmtilegt að lesa bækur eftir og um konur af gjörólíkum bakgrunni en ég sjálf. Svo les ég spennusögur inn á milli, get engan veginn farið beint úr einni fallegri eða krefjandi bók í aðra – ég þarf að hvíla hugann á milli. Á síðustu árum er ég farin að lesa meira eftir íslenska höfunda og ljóðabækur. Það hlýtur að vera merki um að ég sé orðin kirfilega miðaldra. Að mínum dómi er Af- leggjarinn eftir Auði Övu fallegasta bók sem hefur verið skrifuð á ís- lenskri tungu, hún snerti mína innstu hjartastrengi, áhugaverð og fögur. Ég hef aldrei orðið jafnsnortin af sögu eins og Himnaríki og helvíti, eftir Jón Kalman. Engin sögu- bók, kennslustund eða frásögn hefur gert mér jafn- ljóst hve tilveran á Íslandi var mis- kunnarlaus fyrir fyrri kynslóðir. Ég má til að nefna að mér finnst ný- legur titill eftir Jón Kalman, Fjar- vera þín er myrkur, með þeim alfa- llegustu sem ég hef séð. Ég er nýgræðingur í ljóðalestri en mér þykir sérstaklega vænt um ljóða- bókina Heimskaut eftir Gerði Kristnýju. Ég er engan veginn mesti bóka- ormurinn meðal þeirra sem ég þekki, en mér líður vel innan um bækur. Ég elskaði Borgarbókasafn- ið í ævintýrahúsinu við Þingholts- stræti þegar ég var krakki, líka útibúið sem var í íbúð á Hofs- vallagötu og bókabílinn. Ég heim- sæki oft bókasöfn og bókabúðir þegar ég er í útlöndum og borg- arbókasafnið í Boston, minni gömlu heimaborg, er í uppáhaldi. STEINUNN GESTSDÓTTIR ER AÐ LESA Láta mig hlæja og gráta Steinunn Gestsdóttir er aðstoðar- rektor kennslu og þróunar í Háskóla Ís- lands.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.