Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.05.2022, Síða 32
„Það er verið að frumflytja verk mitt SOS-
sinfóníu sem snýst um hjálparbeiðni og leiðina til
bjargar; leiðina frá myrkrinu í ljósið,“ segir tón-
skáldið Jón Hlöðver Áselsson en á tónleikunum
spilar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og fara
tónleikarnir fram í Menningarhúsinu Hofi í dag,
sunnudag 29. maí, klukkan 16.
Ljósið kemur langt og mjótt
„Verkið byrjar á neyðarkalli og má sjá textann á
skjá fyrir ofan. Þar má sjá meðal annars texta úr
Jóhannesarguðspjalli: Ljósið lýsir í myrkinu og
myrkrið nær ekki að kæfa það. Ég enda svo með
að vinna með texta úr íslensku þjóðlagi og textann
Ljósið kemur langt og mjótt,“ segir hann, en Jón
Hlöðver fékk flugmanninn Arngrím Jóhannsson
til að morsa fyrir sig.
„Arngrímur er stórkostlegur snillingur að
morsa. Ég hafði heyrt hann morsa eitt sinn en
hann var loftskeytamaður áður en hann fór að
fljúga. Mér fannst svo skemmtilegur þessi taktur
en ég hef lengi haft áhuga á djassi þannig að þetta
kveikti í mér. Mér fannst þá að það gæti verið
gaman að spreyta sig á því að tengja þetta saman
við sinfóníu,“ segir Jón Hlöðver.
Sinfónía Jóns Hlöðvers tekur um 40 mínútur í
flutningi en eftir hlé leikur sinfóníuhljómsveitin 5.
sinfóníu Ludwigs van Beethovens, Örlagasinfón-
íuna. Bjarni Frímann Bjarnason verður stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á tónleik-
unum. Á undan verður Kjartan Ólafsson með
erindi um verkin. Miðar fást á tix.is. asdis@mbl.is Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Spilað á morstæki
Í Hofi á Akureyri verður í dag
frumflutt ný sinfónía þar sem
morstæki kemur við sögu.
Arngrímur Jóhannsson
flugmaður, Jón Hlöðver
Áskelsson tónskáld og
Bjarni Frímann Bjarnason
stjórnandi eru gott teymi.
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2022
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 539.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 559.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 479.000,-
TRATTO model 2811
L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,-
L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Það var líf og fjör í kvikmynda-
húsum Reykjavíkur um þetta
leyti fyrir níutíu árum, sumsé
1932. Á þeim árum var forsíða
Morgunblaðsins helguð auglýs-
ingum og bíóin voru þar í önd-
vegi, efst á síðunni.
Nýja bíó sýndi Skírlífa Jósep,
þýska tal-, hljóm- og söngva-
skopmynd í 8 þáttum. Aðal-
hlutverk léku Harry Liedtke,
Ossi Oswalda og Feliz Bressart.
„Bráðskemtileg mynd, er sýnd
hefir verið undanfarna mánuði í
Berlín og Kaupmannahöfn og
hlotið mikla aðsókn og góða
dóma,“ stóð í auglýsingunni.
Barnasýning var kl. 5 og al-
þýðusýning kl. 7 en sýningin kl.
9 var ekki eyrnamerkt neinum
sérstökum hópi en draga má þá
ályktun að þá hafi broddborg-
arar verið sérstaklega velkomn-
ir án þess að börn og alþýða
væru að þvælast fyrir þeim.
Í kaupbæti var boðið upp á
talmyndafréttir og aukamynd-
ina Hraustmennið frá Arizona
sem var „spennandi tal- og
hljóm Cowboysjónleikur í 8
þáttum“.
Í Gamla bíói var verið að sýna
Miljón, sem var „afar skemtileg
frönsk óperettumynd í 8 þátt-
um“. Aðalhlutverkin léku Anna
Bella og Rene Lefebvre.
GAMLA FRÉTTIN
Tal-, hljóm-
og söngva-
skopmynd
Oft var örtröð fyrir utan Gamla bíó. Ætli þetta hafi verið alþýðusýning?
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Harry Styles
poppstjarna
Gísli Örn Garðarsson
leikari og leikstjóri
DJ Margeir
fjöllistamaður