Norðurslóð - 20.01.2022, Page 1
46. árgangur Fimmtud. 20. janúar 2022 1. tölublað
Í desemberlok barst Jóni
Haraldi Sölvasyni formanni Umf.
Þorsteins Svörfuðar bréf í pósti
stimplað í bak og fyrir með merki
forseta Íslands. Norðurslóð sá
sér ekki annað fært en að birta
bréfið í heild sinni og þakka um
leið forseta vorum fyrir árverkni
í starfi.
Bessastöðum, 27.desember 2021
Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður
Jón Haraldur Sölvason formaður
Hreiðarsstöðum 621 Dalvík
Kæri Jón Haraldur
Á aldarafmæli Ungmenn-
afélagsins Þorsteins Svarfaðar
færi ég stjórn þess og öllum
félögum heillaóskir. Í nýlegu
tölublaði Norðurslóðar las ég um
merka sögu félagsins, öflugt starf
í heimabyggð og stuðning við
æskulýð í tímans rás. Á vefsíðu
þess sé ég sömuleiðis að enn er
Þorsteinn Svörfuður í fullu fjöri.
Megi félaginu farnast vel á næsta
árhundraði, liðsmönnum þess og
samfélaginu öllu til heilla.
Með góðri kveðju,
Guðni Th. Jóhannesson
Heillaóskir frá
forsetanum
Aldarafmæli Umf. Þorsteins Svörfuðar
Stefáns Friðgeirssonar var minnst með fallegri athöfn í Hringsholti þann 29. desember síðastliðinn. Félagsmenn
hestamannafélagsins Hrings riðu fyrir líkfylgdinni frá Árgerði fram í Hringsholt þar sem félagar úr
Gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar stóðu heiðursvörð. Stefán var virkur meðlimur í báðum þessum félögum
og greinilegt að fráfall hans snart marga. Líkfylgdin staðnæmdist í reiðgerði Hringsholts þar sem gangnamenn
og fleiri tóku lagið að vinum og vandamönnum viðstöddum. (Ljósmynd, JK)
Um áramótin urðu tímamót
í útgáfusögu Norðurslóðar.
Hjörleifur Hjartarson lét þá
af ritstjórastörfum sem hann
hefur gegnt í rúma þrjá áratugi.
Arftakar hans eru ekki úr lausu
lofti gripnir. Björk Eldjárn
Kristjánsdóttir (bróðurdóttir
Hjörleifs) og eiginmaður hennar
Jón Bjarki Hjálmarsson munu
taka við útgáfustarfseminni.
Lesendur Norðurslóðar
geta þó huggað sig við það að
Hjörleifur er hvergi nærri horfinn
af síðum blaðsins. Hann mun
bæði aðstoða nýja útgefendur á
meðan þeir slíta barnsskónum
við útgáfustörfin auk þess að vera
tíður greinahöfundur í ókomnum
blöðum.
Nýr ritsjóri ávarpar lesendur
Það er okkur hjónum sannur
heiður að fá að taka við jafn
rótgrónu og öflugu blaði eins
og Norðurslóð. Ég viðurkenni
fúslega að þegar Hjörleifur
bryddaði upp á þessu síðasta
haust reyndi ég í lengstu lög að
komast hjá því að svara einhverju
sem hann gæti hankað mig á
síðar. Mér þótti ég ekki hafa
bein í nefinu til þess að standa
undir viðlíka útgáfustarfssemi.
Það er að vísu ekki hafið yfir
allan vafa að staður og stund
samtalsins hafi haft áhrif á svar
mitt. Þessar örlagaríku samræður
áttu sér stað fram í Stekkjarhúsi,
kvöldið eftir fyrstu göngur. Á
slíkum stundum getur losnað
um málbeinið svo um munar
með tilheyrandi yfirlýsingargleði
og varhugaverðri tiltrú á eigið
sjálf. Í minningunni nefndi Hjöri
þessa hugmynd í hálfgerðu
framhjáhlaupi og ég svaraði í
einhverjum hálfkæringu „það
verður aldrei fyrr en eftir áramót.“
Þar með var ekki aftur snúið. Nú
ríður á að láta vaxa bein úr brjóski
og sigrast á óttanum um eigin
vanmátt.
Tryggir áskrifendur
Hjörleifur fullvissaði mig um
það að áskrifendur Norðurslóðar
væru með einhverju trygglyndasta
fólki sem hann vissi til. Raunar
væru trygglyndi þeirra algert
einsdæmi því engu væri líkara
en að eina leiðin til þess að segja
upp áskriftinni, væri leiðin okkar
allra. Mín einlæga ósk er sú að
trygglyndi áskrifenda sé nær því
að svipa til kattarins sem bindur
traust sitt við húsakynni sín
fremur en hundsins sem fylgir
húsbónda sínum hvert sem hann
fer.
Litlar áherslubreytingar
Maður kemur aldrei fyllilega
í manns stað. Af því leiðir að
breytingar eru óumflýjanlegur
fylgifiskur ritstjóraskipta, hversu
veigalitlar sem þær kunna að
vera. Norðurslóð mun ekki taka
neinum stakkaskiptum, lítið ef
eitthvað vikið frá stefnu fráfarandi
ritstjóra. Blaðið mun áfram
vera vettvangur fyrir málefni er
varða byggðarlagið á einn eða
annan hátt. Hvort sem um er að
ræða málefni líðandi, liðinna eða
ókominna stunda.
Með fyrirfram þökkum,
Jón Bjarki Hjálmarsson
Nýtt blóð í
Norðurslóð
Nýir útgefendur taka við Norðurslóð
Jón Bjarki, Björk og Hrólfur
Ármann.
Ungur nemur, gamall temur.
Virkir dagar 9- 18
Laugardagar 10- 17
Sunnudagar 12- 17
Rúmlega 22ja ára verslunarsögu
Húsasmiðjunnar á Dalvík lauk
um áramótin.
Guðmundur Kristjánsson
verslunarstjóri sagði í samtali
við Norðurslóð að þreifingar
meðal fjársterkra aðila innan
sveitarfélagsins þess efnis að
halda úti byggingarvöruverslun
hafi runnið út í sandinn. Núna sé
unnið að því að tæma húsnæðið en
leigusamningur Húsasmiðjunnar
rennur út 1. mars næstkomandi.
Tíminn einn verður að leiða í ljós
hverskonar starfsemi komi í stað
Húsasmiðjunnar.
Húsasmiðjan horfin
á braut
Merki forseta Íslands
Öll ljós kveikt en enginn heima