Norðurslóð - 26.04.2022, Síða 1
Á Árskógströnd eru hrúturinn
Austri og niðjar hans ekki
einar um það að hafa í sínu
genavopnabúri hið eftirsókna
arfbrigði T-137. Nýverið fundust
fleiri gripir með afbrigðið á
bæjunum Syðri- Haga, Engihlíð
og Stærri- Árskógi.
Jónas Þór Leifsson bóndi á
Syðri- Haga segir í samtali við
Norðurslóð að 9 kindur hafi fundist
með arfgerðina í hjörðinni til þessa
sem telur u.þ.b. 260 vetrarfóðraðar
ær. Í sjálfu sér gætu leynst fleiri
í hjörðinni þar sem aðeins voru
teknar stikkprufur til að byrja
með. Jónas tekur sýni úr lömbum
sem gætu borið arfgerðina áður en
þau eru sett út svo þónokkuð er af
sýnum sem eftir á að greina.
Fé er öllu færra í Engihlíð
þar sem Júlíus Sigurðsson bóndi
á Brattavöllum heldur um 25
kindur. Engu að síður fundust 9
gripir í ekki stærri hjörð. Júlíus
og Jónas eiga það sameiginlegt að
taka niðurstöðunum með mikilli
yfirvegun. Hvorugur þeirra segjast
hafa misst svefn vegna þessa í
það minnsta hingað til. Stutt sé
síðan niðurstöðurnar bárust og
þeir í sjálfu sér lítið farnir að spá í
framhaldið.
Eyþór Einarsson ráðunautur hjá
Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins
segir í samtali við Norðurslóð
að átaksverkefnið sé ennþá í
fullum gangi og enn sé beðið eftir
niðurstöðum úr sýnum. Það hafi
verið vitað eftir erfðarannsóknir
fyrir um 20 árum að T-137
arfgerðina væri að finna í íslenska
stofninum. Þá hafi hins vegar ekki
legið fyrir vísbendingar þess efnis
að arfgerðin gæti verið verndandi
gegn riðu.
Aðgerðaráætlun sé í
undirbúningi en næstu skref séu að
fá staðfestingu á því að arfgerðin sé
í raun og veru verndandi samhliða
því að auka útbreiðslu hennar í
íslenska stofninum. Beðið sé eftir
leyfi frá Matvælastofnun um að
fá hrúta frá skilgreindum sýktum
svæðum á sæðingarstöð séu þeir
með tiltekna arfgerð.
46. árgangur Fimmtud. 26. apríl 2022 5. tölublað
OPNUNARTÍMI
Í KJÖRBÚÐINNI
Á DALVÍK FYLGDU OKKUR Á FACEBOOK
OG FÁÐU NÝJUSTU TILBOÐIN
Virkir dagar 9–18
Laugardagar 10–17
Sunnudagar 12–17
WWW.KJORBUDIN.IS
Tíðindi af T-137
Átaksverkefni í arfgerðagreiningu
Sveitarstjórnarkosningar fóru
fram þann 14. maí síðastliðinn.
1437 voru á kjörskrá en kjörsókn
var heldur dræmari en fyrir
fjórum árum, þá kusu 79,88%
samanborið við 74,6% í ár.
Úrslit kosninganna í
Dalvíkurbyggð voru nokkuð á
skjön miðað við það sem mátti sjá
víða annars staðar á landinu þar sem
Framsóknarflokkurinn bætti við sig
fylgi í mörgum sveitarfélögum.
Í Dalvíkurbyggð nam fylgistap
flokksins tæpum 20% frá fyrri
kosningum og missti hann þar með
einn bæjarfulltrúa.
Katrín Sigurjónsdóttir oddviti
Framsóknarflokksins og starfandi
sveitastjóri Dalvíkurbyggðar
segir greinilegt á niðurstöðum
kosninganna að íbúar vilji
breytingar. Framsóknarflokkurinn
sé tilbúinn í það hlutverk að vera
öflugur minnihluti á komandi
kjörtímabili.
K-listinn fær 3 menn kjörna
Sigurvegarar kosninganna eru
án efa K-listinn en hann hlaut
43,7% atkvæði og 3 menn kjörna.
í sveitastjórn.
D- listi Sjálfstæðisflokks hlaut
32,8 % fylgi. og 2 menn kjörna.
Formlegar viðræður K og D
Þegar þessi orð eru
rituð standa yfir formlegar
s t j ó r n a r m y n d u n a r v i ð r æ ð u r
milli K- listans og D- lista
Sjálfsstæðisflokks. Samkvæmt
heimildum Norðurslóðar ganga
viðræður vel, samhljómur er
mikill milli flokkanna og vinna
við málefnasamning hafin.
Meira varð ekki dregið upp úr
heimildarmönnum að svo stöddu.
Úrslit sveitarstjórnakosninga
K - listinn sigurvegari, Framsókn tapar stórt
Sveitastjórn fyrir kjörtímabilið 2022 - 2026
er eftirfarandi
Helgi Einarsson (K)
Freyr Antonsson (D)
Katrín Sigurjónsdóttir (B)
Katrín Sif Ingvarsdóttir (K)
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir (D)
Gunnar Kristinn Guðmundsson (K)
Lilja Guðnadóttir (B)
Norðurslóð óskar nýrri sveitarstjórn farsældar á komandi
kjörtímabili
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram í blíðskapaveðri í kjölfar mikillar kuldatíðar í byrjun maí. Mikið var um
að vera á Dalvík. Á kosningarskrifstofum flokkanna þriggja svignuðu borðin undan hnallþórum og alskyns
kruðeríi. Kosningadagurinn bar upp á Eurovísíonkvöldinu sjálfu og flokkarnir buðu í Eurovisíon partý samhliða
kosningavökunum sem stóðu fram á rauða nótt.
Stjórnarmyndunarviðræður hafnar milli K- listans og D- lista Sjálfstæðisflokks. f.v. Gunnar Kristinn (K), Helgi (K)
Katrín (D) Freyr (D) Katrín Sif (K) Sigríður Jódís