Norðurslóð - 26.04.2022, Page 2
2 – Norðurslóð
Sólinn sendi skæra geisla á tinda
austur fjallanna í kvöldkyrrðinni er
endurspegluðu í blátæra vatninu
er straumhörð áin rann framhjá.
Á bakkanum sat rauðhöfði er var
á leið frá móður sinni eitthvað út
í heiminn. Hin sterka þrá vísaði
honum veginn og gerði honum
flugið ljéttara. Enginn staður fannst
honum fegurri og ekkert kvöld
yndislegra en varð hann að fljúga
eitthvað lengra. Hann lyfti sjér upp
af vatninu og flaug út í endalausann
heiminn. Loks kom hann augu á
ofurlitla fjöru sem blasti við honum
í fjarska. Hann þreytti flugið og
settist á fjöruna sem var með
Starargróna bakka, en í vatninu
sá hann fjöllin standa á höfði er
ljéttur andvarinn kyssti. Ofan við
kjarrivaxinn háls og lynggróna
hóla blöstu við fjallatindarnir er
gnæfði við heiðan himininn. Þarna
var ró og friður. Ómur gleðinnar
hljómaði umhverfis hann en þegar
aftankyrrðin færðist yfir stakk hann
höfðinu undir væng og sofnaði.
Þytur af baðandi vængjum er
þreyttust móti morgunblænum. er
vaggaði þýðlega kjarrinu vestur
af Tjörninni, leistu blundinn
fyrir rauðhöfðanum. Það voru
sundfuglar sem komu og settust í
einum hópi á tjörnina og allir hófu
þeir að syngja nema rauðhöfðinn
einn. Hann hlustaði á, það var
fagur söngur en þá var ein röddin
fegurst. Hann langaði til að syngja
eins og fór að reyna, en þá hættu
allir hinir nema sá sem best söng,
hann söng með rauðhöfðanum og
vildi kenna honum. En hinir vildu
ekki heyra sönginn og jusu til í
vatninu og flugu síðan brott. Þau
tvö voru eftir og sungu hvort öðru
til skemmtunar. Þarna fannst þeim
fagurt og yndislegt, þarna vildu þau
sofa og þreyja, lifa og deyja, og því
lengur sem þau voru hjá tjörninni
því kærari varð hún þeim og ekkert
varð til að rjúfa friðinn. Það var
komið langt fram á vor, jörðin var
þakinn blómskrauti. Vorið hafið
látið í tjé það fegursta og besta
sem það átti og þá var að hugsa
um hreiðurgerðina. Í þröngum
skorningi milli tveggja viðargróna
þúfna var hreiðrið vandlega
fljéttað, í því voru eggin er hún sat
á, og sá um að hafa alltaf hlý. Þetta
var þeirra dýrmætasta eign sem þau
vildu leggja lífið í sölurnar fyrir.
Rauðhöfðinn söng fyrir hana er sat
á hreiðrinu sem kennt hafði honum
að syngja, fyrir hana er vakti hann
með vængjaþyt ásamt félögum
sínum morguninn fyrsta sem hann
dvaldi við þessa tjörn.
Hún hafði setið marga daga á
hreiðrinu er hún morgun einn flaug
fram á tjörnina til að baða sig í
henni. Rauðhöfðinn sat á bakkanum
og horfði á hana. Allt í einu ríður
af ógurleg þruma og hún sem hann
unni barðist blóðug um á tjörninni
helsærð og morðinginn hljóp af
stað og ljét rakka sína elta öndina
á sundi þar til hann náði henni.
En rauðhöfðinn flaug í mörgum
hringjum yfir tjörninni og sá hana
litaða blóði. Það var komið í greipar
morðingjans sem hann vildi sjálfur
hafa dáið fyrir og hreiðrið sem þau
áttu ein varð æti garmsins. Nú var
sárt að lifa og ekkert var sætara
en að deyja. Nú var engin ánægja,
engin fegurð til fyrir honum og
hann flaug harmþrunginn langt í
burtu.
- Alda.
Súlur, tímarit Sögufélags Eyfirðinga, er komið út og
flytur að vanda fjölbreytt efni úr fortíð og nútíð, alls 13
greinar eftir 17 höfunda. Sigurður Aðalsteinsson segir
Kristínu Aðalsteinsdóttur frá flugmannsferli sínum og
lætur fljóta með óborganlega gamansögu af Arngrími
Jóhannssyni.
Meðal annars efnis í Súlum ársins 2022 má nefna
frásagnir af ótrúlegum lífskjörum tveggja kvenna,
hernámsárunum í Hrísey, hinu stórmerka Síldarmin-
jasafni á Siglufirði, séra Jóni í Möðrufelli og niðurlægin-
gu dóttur hans (sem snerist upp í andhverfu sína),
nafna hans Sigurðssyni, trésmíðameistara á Dalvík,
rannsókn á lífsháttum í Svarfaðardal á miðöldum – og
Stóra-Mixmálið er krufið til mergjar.
Sögufélagið fagnar öllum nýjum félagsmönnum en
Súlur eru innifaldar í félagsgjaldinu. Formaður félag-
sins er Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir, gjaldkeri Jón
Hlynur Sigurðsson og ritari Arnór Bliki Hallmundsson.
Bakhjarlar
Þessir styrkja útgáfu
Norðurslóðar
Norðurslóð
Útgefandi: Spássía ehf, Bjarkarbraut 25 620 Dalvík. S. 8461448.
Netfang: nordurslod22@gmail.com
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Bjarki Hjálmarsson
Umbrot: Björk Eldjárn Kristjánsdóttir & Jón Bjarki Hjálmarsson
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Litróf Hagprent ehf., Reykjavík
Hólmfríður Guðrún
Skúladóttir hefur tekið við
kökukeflinu á kaffihúsinu í Bergi
og mun bjóða uppá bakkelsi
næstu þrjár vikur undir nafninu
Kaffi Hófí.
Heimsmeistaramótið í Brús
var loks haldinn þann 20.
apríl sl. eftir tveggja ára pásu.
Keppnin fór fram að Rimum og
var hart barist um gullkambinn að
venju. Heimsmeistarar í brús árið
2022 eru liðið „Team Guðleifur“
en liðið skipar frændurna
Hjörleif Sveinbjörnsson og
Guðna Einarsson. Í öðru sæti varð
liðið „Meðan laufin sofa liggja
spaðarnir andvaka“ með 53 stig
og fráfarandi heimsmeistarar,
liðið „Guðmar“ varð í þriðja sæti
með 49 stig.
Byggðasafnið Hvoll opnar
dyrnar 1. júní og mun verða
opið alla daga frá 10-17. Safnið
býður upp á sumarmiða sem
virkar þannig að gestir greiða
aðeins einu sinni inn á safnið og
getur notað þann aðgöngumiða
allt sumarið! Frítt inn fyrir
18 ára og yngri. Tilvalið fyrir
heimamenn sem vilja sækja
safnið yfir sumarið með gestum
sínum. Annars er margt um að
vera á söfnum Dalvíkur í sumar
og lesendur eru hvattir til að
fylgjast með á samfélagsmiðlum
safnanna næstu daga.
Dalvík Reynir sem spila
í 3.deild unnu frækinn
sigur í Mjólkurbikarnum á Þór
frá Akureyri 2-0 á Dalvíkurvelli.
Dalvíkurliðið var betri aðilinn í
leiknum og uppskar eftir því. Þess
má geta að Þór frá Akureyri spilar
í 1.Deildinni.
Fréttahorn
BRIMARSBRÚ
ART-INN GALLERY
BRIMARSBRÚ
ART-INN GALLERY
BRIMARSBRÚ
ART-INN GALLERY
Fréttatilkynning
frá Súlum
Gluggað í Árblik
Smásagan «Rauðhöfðinn» birtist í Árbliki, handskrifuðu félagsblaði Ungmennafélagsins
Þorsteins Svörfuðar, 4. tölublaði (af 6) ársins 1929. Blað þetta var samið af félagsmönnum og
lesið upp á félagsfundum. Sagan er undirrituð «Alda», en höfundur er að öllum líkindum Anna
Kristín Hjörleifsdóttir frá Gullbringu. Fjölskylda hennar bjó þar tvívegis, síðast 1922-28, en var
nýflutt til Dalvíkur er sagan var skrifuð. Eitthvað var Anna Kristín í vinnumennsku á bæjum í
sveitinni. Síðar varð hún húsfreyja í Hafnarfirði.
Efnið í Árbliki er margvíslegt eins og nærri má geta, frásagnir, hugleiðingar, hvatningar til
félaganna, ljóð, skrýtlur o.s.frv. Ein tegund efnis er þar í furðulega miklu magni, nefnilega
smásögur. Hreinn skáldskapur. Á því rúmlega þriggja áratuga tímabili sem Árblik kom út telst
mér vera þar 65 smásögur! Auðvitað má ekki búast við sömu efnisvöndun í slíku blaði eins og í
skrifum fyrir prentun, en oft er talsverður metnaður í skrifunum. Og höfundarnir afar margir.
Rauðhöfðinn er smásaga í anda dýrasagna sem voru merkileg bókmenntagrein í landinu, og
nokkuð áberandi báðum megin við aldamótin 1900. Þær voru gjarnan skrifaðar í anda
dýraverndar, til að vekja samúð með málleysingjunum í kringum okkur, bæði húsdýrum og
villtum dýrum. Nokkrar sögur í Árbliki eru undir áhrifum frá þeim bókmenntum, þ.á.m. þessi. Um
leið er sagan litið sýnishorn af þeirri bókmenntastarfsemi sem fór fram í Ungmennafélaginu
Þorstein Svörfuði á fyrri árum hans.
- ÞH
S
Ú
L
U
R
X
LV
III 2022
61 61 ÚTGEFANDI: SÖGUFÉLAG EYFIRÐINGA
N O R Ð L E N S K T T Í M A R I T
Frá opnum degi Tvídælu þann 6. júlí 2021. Howell Roberts og Hólmfríður Sveinsdóttir fornleifafræðingar
skýra eðli og tilgang könnunarskurða. Hópurinn er staddur við gríðarstóra skálatóft í Tungufellslandi, á
fornu eyðibýli sem er kallað Krákustaðir. Könnunarskurðurinn sýndi að býlið er frá því fyrir 1104.
Árni Daníel Júlíusson tók myndina.
Efni Súlna 2022:
Bls.
Kristín Aðalsteinsdóttir
ræðir við Sigurð Aðalsteinsson „Ég hef verið lánsamur flugmaður“ .............. 3
Jón Óðinn Waage Beið eftir því að verða frjáls.
Frásögn Jónu Waage .................................. 25
Þorsteinn G. Þorsteinsson Hernámsárin í Hrísey ................................. 33
Þorsteinn E. Arnórsson Rauði búgarðurinn í Naustaborgum ........... 40
Anita Elefsen
og Örlygur Kristfinnsson Saga Síldarminjasafnsins ........................... 49
Þórdís Guðrún Arthursdóttir Saga ömmu minnar, Helgu
Guðrúnar Guðmundsdóttur ........................ 73
Viðar Hreinsson Heittrúarharka og skammarskil.
Af séra Jóni, tíðaranda og
menningarástandi ....................................... 83
Valgerður Valdemarsdóttir,
Þórhildur Valdemarsdóttir,
Hólmgeir Valdemarsson
og Baldvin Valdemarsson Mix. Sagan leiðrétt ................................... 105
Þór Sigurðsson Rafmagnsrofið (16. nóvember 1952) ......... 109
Sveinn Jónsson „Mikið úr vinkli?“ Sögur af Jóni
Sigurðssyni trésmíðameistara á Dalvík .... 113
Bernharð Haraldsson Bílferð sem varð að bók. Fáein orð um
tilurð ritsins „Skriðuhreppur hinn forni.
Bændur og búalið á 19. öld“ ..................... 116
Þórður Vilhjálmsson Vélsmiðjan Oddi 1966-1993, þriðji hluti ... 122
Árni Daníel Júlíusson Tveir dalir í Eyjafirði - Svarfaðardalur og
Hörgárdalur. Rannsóknir á miðaldasögu
og miðaldaleifum 2021 til 2023 ................. 147
Skýrsla stjórnar ....................................... 160
Rithönd „Öldu“
Þórarinn
Hjartarsson