Fréttablaðið - 16.08.2022, Blaðsíða 9
Staðreynd-
in er sú
að WOW
skilaði
gríðarleg-
um verð-
mætum
inn í sam-
félagið
með um
1.500
starfsmenn
þegar mest
lét og á
fyrsta árs-
fjórðungi
2018
fluttum
við fleiri
farþega
heldur en
Icelandair.
Sæll, Óttar.
Ég hef ekki lagt það í vana minn
að svara misgáfulegum skrifum um
mig eða WOW air en pistill þinn í
Fréttablaðinu síðastliðinn laugar-
dag var svo fullur af rangfærslum
og dylgjum að ég á erfitt með að
láta það kyrrt liggja fyrir utan það
að boðskapurinn í þessum skrifum
þínum sem fjölmiðlamaður og geð-
læknir eru fyrir neðan allar hellur.
Aðalinntak greinar þinnar virð-
ist vera að ráðherrar hafi gert stór-
kostleg mistök með því að koma í
opnun á Sjóböðunum í Hvammsvík
þar sem ég, samkvæmt þinni skil-
greiningu, er gjaldþrota auðmaður
og hvernig dettur þeim í hug að sýna
sig með slíkum manni? Hér eru sem
sagt skilaboðin þau að ef einhverj-
um mistekst þrátt fyrir að hafa átt
farsælan feril þá ber að hafna við-
komandi, setja til hliðar og útskúfa.
Að sama skapi, átti undirritaður að
gefast upp og leggjast í kör og hætta
frekari frumkvöðlastarfsemi og
uppbyggingu? Ég vona svo sannar-
lega að þetta séu ekki ráðin sem þú
gefur þínum skjólstæðingum.
Þér til upplýsingar þá er ég í dag
hvorki gjaldþrota né auðmaður,
enda illmögulegt að vera hvort
tveggja í senn.
Ég var vissulega nærri persónu-
legu gjaldþroti eftir fall WOW enda
lagði ég allt undir og meira til og
var í gríðarlegum persónulegum
ábyrgðum. En þökk sé góðum
vinum, fjölskyldu og mikilli vinnu
hefur mér tekist að vinna mig upp
á nýjan leik og vona að ég geti verið
fyrirmynd í því að gefast ekki upp
þó að á móti blási. Ég hef verið
mjög lánsamur að vinna ítrekað
með frábæru fólki og komið að
uppbyggingu tuga fyrirtækja sem
mörg hver þóttu ekki mjög lífvæn-
leg þegar farið var af stað. Þetta átti
svo sannarlega við um OZ á sínum
tíma sem við seldum til Nokia fyrir
metfé á þeim tíma, Íslandssíma sem
lifir enn góðu lífi nú undir merkjum
Sýnar, og endurreisn MP Banka, nú
Kviku, sem hefði líklega aldrei orðið
af ef ég hefði ekki leitt hóp fjárfesta
skömmu eftir hrun þegar enginn
vildi snerta banka með töng. Þessar
fjárfestingar og uppbygging gerðu
mig að auðmanni á þeim tíma sem
svo aftur gerði mér kleift að setja
um fjóra milljarða í stofnun og
uppbyggingu WOW air. Skora ég á
þig að rýna í ágæta grein eftir Egil
Almar Ágústsson, Hagsmunir flug-
félaga og samfélagsins, sem birtist
í Viðskiptablaðinu í maí 2021 til að
fræðast nánar um áhrif WOW en
þar ályktar hann að fjárfesting mín
í WOW air hafi verið besta fjár-
festing Íslandssögunnar fyrir alla
nema mig.
Það er nefnilega afskaplega
mikil einföldun að taka punkt-
stöðu WOW við gjaldþrotið og
dæma félagið eingöngu út frá því.
Staðreyndin er sú að WOW skilaði
gríðarlegum verðmætum inn í
samfélagið með um 1.500 starfs-
menn þegar mest lét og á fyrsta
ársf jórðungi 2018 f luttum við
fleiri farþega heldur en Icelandair.
Það sama ár skilaði WOW um 120
milljörðum í gjaldeyristekjur fyrir
þjóðarbúið, meira heldur en saman-
lagður áliðnaðurinn allur það árið.
Ísland er komið til að vera sem öfl-
ugur ferðamannastaður og er ég
stoltur af aðkomu WOW að þeirri
uppbyggingu og ekki síst þeirri
þekkingu og reynslu sem varð til í
þeirri uppbyggingu sem við stóðum
fyrir. Þú nefnir Suðurnesin sérstak-
lega, minn heimabæ, en þar var yfir
25% atvinnuleysi þegar ég stofnaði
WOW en á örfáum árum var þar
orðið neikvætt atvinnuleysi og þó
að vissulega setti fall WOW strik í
reikninginn til skamms tíma þá er
uppbyggingin á Suðurnesjum líka
varanleg og verið hefur gaman að
fylgjast með og taka þátt í henni
áfram. Ég er ekki að rifja þessa sögu
upp til að slá mig til riddara heldur
eingöngu að benda á rangfærslur
í skrifum þínum og hversu vafa-
samur boðskapurinn er sem leynist
í honum.
Augljóslega á líka að reyna að
koma ódýru höggi á ráðherra fyrir
að voga að sýna sig með svona
óráðs manni eða að taka þátt í upp-
byggingu á landsbyggðinni þar sem
Hvammsvík Sjóböð eru núna orðin
stærsti vinnuveitandi Kjósarhrepps.
En líkt og Suðurnesin forðum daga
þá tel ég augljóst að Hvalfjörðurinn
á mikið inni.
Ólíkt þér þá tel ég það bráðnauð-
synlegt að íslenskir ráðamenn styðji
við atvinnulífið, búi því til umgjörð
og farveg þannig að þar eigi sér stað
eðlileg samkeppni, uppbygging og
nýsköpun, sama hvaða flokki þeir
tilheyra. Það er okkur sönn ánægja
að bjóða þér í heimsókn til okkar í
Hvammsvíkina og kynna fyrir þér
þá uppbyggingu sem á sér stað í
Hvalfirðinum. n
WOW skilaði meiru en allur
áliðnaðurinn – Óttari svarað
Skúli Mogensen
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fjölbreytt fréttaumfjöllun í opinni dagskrá
fyrir fólkið í landinu. Úrvalslið fjölmiðlafólks
fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að
fá til sín góða gesti til að ræða helstu mál
líðandi stundar.
Þátturinn er sýndur á Hringbraut og
frettabladid.is
ÞRIÐJUDAGUR 16. ágúst 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ