Fréttablaðið - 16.08.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 16.08.2022, Síða 30
Þetta ferli hefur oft verið mikið fokk-it og gerum þetta bara. Sem er gott fyrir mig af því að ég á til að ofhugsa hlutina. Brynja Bjarnadóttir AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 V er ð o g v ö ru u p p lý si n g ar í au g lý s i n g u n n i e ru b ir ta r m eð fy ri rv ar a u m p re n tv ill u r. ASPEN Tungusófi í Kentucky koníak áklæði. 253 x 145 x 84 cm. 249.990 kr. NÝTT &SPENNANDI Kynningarafsláttur af völdum vörum VESTA Hár tungusófi. Vinstri eða hægri tunga. Ribcord Antracit áklæði. 300x160x80 cm. Nú 329.990 kr. 369.990 kr. ÖRUM Hægindastóll. Alis grár, grænn, hvítur eða mustard. 105x46x83 cm. Nú 134.990 kr. 149.990 kr. HELGA Sófar í fallegu natur áklæði. 3ja sæta Maxi sófi. 258x100x81 cm. Nú 279.990 kr. 299.990 kr. 3ja sæta sófi. 218x97x81 cm. Nú 239.990 kr. 259.990 kr. KARE BUTLER Standing björn. 18x15,5x34,5 cm. 24.990 kr. NORDAL GARO Kampavínsglas. H27,5 cm. 2.190 kr. Kokteilaglas. H18 cm. 2.490 kr. Vinglas. H23 cm. 2.290 kr. KARE FLUFFY Hægindastóll með snúningsfæti. 76x88x72 cm. 219.990 kr. SKANNAÐU QR KÓÐANN TIL AÐ SKOÐA NÝJA BÆKLINGINN Tónlistarmennirnir Brynja Bjarnadóttir, Baldur Hjörleifs- son og Yaëll Campbell senda frá sér lagið Mildly Insane á föstudaginn, samhliða tón- listarmyndbandi. Myndband- ið er samstarfsverkefni sem kom til eftir tilviljunarkennt samspil úti á götu í Haag. ninarichter@frettabladid.is Brynja hefur getið sér gott orð í tónlistinni síðustu misseri og lag hennar Easier naut vinsælda í íslensku útvarpi í fyrra. Á föstudag sendir hún frá sér nýtt lag í sam- starfi við hollenska listamanninn Yaëll Campbell og samlanda sinn, pródúserinn Baldur Hjörleifsson. Kynntust í Haag „Við Brynja kynntumst þegar við vorum að spila úti á götu,“ segir Yaëll um aðdraganda samstarfsins sem kviknaði í Haag fyrir tveimur árum. Brynja tekur undir það og segir Yaëll hafa spilað lag sem hún hélt mikið upp á, Best part í f lutningi H.E.R. og Daniel Ceasar. „Ég sagði: Ó, ég elska þetta lag,“ segir Brynja. „Ég tók kontaktupp- lýsingarnar hans fyrir samstarf, sagði honum að ég þekkti pródúsera og stakk upp á því að við myndum gera gigg saman,“ segir hún. Brynja hafði samband við Yaëll ári seinna þegar hana vantaði karl- kyns söngrödd í lag sem hún var að vinna að og segist hafa sent honum löng raddskilaboð. Bauð í ferð til Íslands „Ég vissi að ef við ætluðum að gera þetta, þá þyrftum við að vinna þetta saman í stúdíóinu. Mér tókst ekki að fá frí í vinnunni þannig að ég keypti bara miða handa honum til Íslands,“ segir Brynja. „Hálfu ári seinna var ég á Íslandi í upptökum,“ segir Yaëll sem leikur á fjölda hljóðfæra auk þess að syngja. Ferlið gekk þó ekki snurðulaust fyrir sig og Yaëll greindist smitaður af Covid skömmu eftir að hann kom til landsins í desember. Þannig liðu tvær vikur frá komu hans til lands- ins, þangað til tökur gátu hafist. Loksins komst þríeykið í upp- tökuver, með pródúserinn Baldur sem þriðja mann. „Við ákváðum að nota þennan litla tíma sem við áttum eftir, gera lag og sjá hvað kæmi út úr því. Þetta gekk rosalega hratt,“ segir hún. Á það til að ofhugsa hlutina Aðspurð um boðskap lagsins segir Brynja það fjalla um jákvæðni og hugarfarið að vera ekki enda- laust að hugsa um hlutina heldur slá bara til. „Sem kjarnar allt þetta samstarf. Þetta ferli hefur oft verið mikið fokk-it og gerum þetta bara. Sem er gott fyrir mig af því að ég á til að ofhugsa hlutina,“ segir Brynja kímin. „Titill lagsins er Mildly Insane,“ segir Yaëll. „Það meikar engan sens. Að vera létt klikkaður er þversögn, hvað er það eiginlega?“ Hann segir að í hans huga fjalli lagið um mann- eskju sem geri mann létt klikkaðan. „Sem þú vilt sýna allt sem þú hefur upp á að bjóða, og þú vilt að mann- eskjan fíli þig til baka og taki eftir þér,“ segir hann. Marga mánuði með eina trommu Baldur segir ferlið hafa verið skemmtilegt. „Mér finnst gaman að svona samvinnuverkefnum, þegar það er jákvæð pressa og maður þarf að fylgja innsæinu. Í sólóverkefnum get ég verið í marga mánuði að fín- stilla einhverja bassatrommu og það er enginn þarna til að stoppa mig. Það getur verið mjög óskilvirkt vinnuferli, ólíkt því þegar fleiri eru á staðnum til að kasta boltanum á milli,“ segir hann. Straumlínulagað ferli Aðspurður hvernig hafi gengið að landa sameiginlegri hugmynd, svarar Baldur: „Ég held að ferlið hafi verið nokkuð straumlínulagað. Við vorum frekar sammála og við fundum um leið sameiginlegan grunn. Gítarhljóðið minnti svolítið á eitthvað seventís, sálar-rokk, R&B- eitthvað. Það kom okkur á ákveðinn stað,“ segir hann. Aðspurð um hið fullkomna leik- svið fyrir lagið er hópurinn nokkuð sammála. „Í bíl, myndi ég halda. Þetta er góð tónlist fyrir bíltúr,“ segir Brynja. „Ég er sammála,“ segir Yaëll. „Í bílferð seint um kvöld, nær sólsetrinu,“ segir hann. „Já, í ljósa- skiptunum,“ bætir Baldur við. n Helber tilviljun í Haag Brynja, Yaëll og Baldur stefna á frekara sam- starf á næstu mánuðum. MYND/AÐSEND Elvis Presley, lést á þessum degi fyrir 45 árum og eins og sönnum konungi rokksins sæmir er nafn hans enn á allra vörum. Ekki síst um þessar mundir vegna nýrrar bíómyndar Baz Luhrmanns um goðið. Tónlistarferill hans hófst árið 1954 þegar Sam Phillips hjá Sun Records-plötufyrirtækinu sýndi honum áhuga. Fyrsta smáskífan, Heartbreak Hotel, kom út árið 1956 og fór strax á topp vinsælda- lista í Bandaríkjunum. Hann lék í sinni fyrstu kvik- mynd, Love Me Tender, árið 1956 og var kallaður í herinn tveimur árum síðar. Eftir að herskyldunni lauk fór ferill hans á fullt og árin á eftir gaf hann út mörg af sínum vinsælustu lögum. Hann giftist Priscillu Presley árið 1967 og þau eignuðust dótturina Lisu Marie Presley ári síðar. Elvis ánetjaðist vímuefnum og áfengi og lést skyndilega árið 1977. Fimm ár í röð, 2001 til 2006, taldi tímaritið Forbes Presley tekjuhæsta tón- listarmann veraldar, áratugum eftir að hann féll frá. n Elvis yfirgefur bygginguna fyrir fullt og allt n Tímavélin 18 Lífið 16. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.