Fréttablaðið - 16.08.2022, Qupperneq 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
VERSLANIR:
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI
Péturs Georgs
Markan
n Bakþankar
Ég sit undir kirkjuvegg Hólakirkju,
að Hólum í Hjaltadal. Kláraði
stuttan skokktúr í morgunmildi
ágústmánaðar og er að huga að
deginum. Það er Hólahátíð og
fram undan biskupsvígsla, nýr
vígslubiskup verður kominn til
þjónustu þjóðkirkjunnar áður en
dagur kveður. Gleðileg tímamót,
sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir kveður farsæla þjónustu
og sr. Gísli Gunnarsson tekur til
starfa.
Hólar er hjartastaður í þjóð-
kirkjunni – einn af mörgum. Sögu-
legur staður sem geymir minni
íslenskrar kirkju. Hjartastaður
þar sem þjóð finnur sig heima, að
Hólum.
Leiðin heim vísar að öruggum
stað. Stað þar sem við getum verið
við sjálf, fundið okkur sjálf.
Í frábærri bók, Heim til míns
hjarta, eftir rithöfundinn Oddnýju
Eir Ævarsdóttur, segir frá konu
með brotið hjarta, hún er þreytt og
týnd í lífinu og finnur ekki leiðina
heim til hjartans. Hún ákveður að
láta leggja sig inn á heilsuhæli þar
sem tilraunir eru gerðar með ilm-
vötn og ilmvatnsgerð. Þar er hún
látin lýsa lyktinni af foreldrum
sínum. Foreldrum sínum, sem
ilmuðu af ást. Með þeirri vinnu
náði aðalpersóna sögunnar að
byggja brú á milli heila og hjarta
og þannig rataði hún heim. Heim
til síns hjarta.
Þjóðkirkjan hefur staðið reglu-
lega á tímamótum með þjóðinni
í gegnum aldanna rás. Aðkallandi
samfélagslegar breytingar kalla
á kirkju sem stendur á sterkum
stoðum. Kirkju sem tekur þátt,
kirkju sem hlustar og bregst við.
Hvað sem þær breytingar kunna
að hafa í för með sér verður þjóð-
kirkjan hjartastaður þjóðar, hvar
við öll getum fundið leiðina að
hjartanu – heim að Hólum. n
Heim að Hólum