Norræn tíðindi - 01.05.1964, Side 2
Norrœnar bókanefndir
Að frumkvæði Norræna félagsins var nýlega stofnuð bókanefnd til að
efla þátt okkar Islendinga í norrænu samstarfi á sviði bókmennta og bóka-
miðlunar. Slíkar bókanefndir hafa verið skipaðar í nágrannalöndunum til
að örva samstarf frændþjóðanna á þessu sviði.
Nefndin er skipuð fulltrúum frá Norrænu menningarmálanefndinni,
samtökum rithöfunda, bókaútgefenda og bóksala, og ennfremur eiga bóka-
fulltrúi ríkisins, útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Norræna félagsins sæti
í nefndinni. Formaður nefndarinnar er Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri.
Aðrir nefndarmenn eru: Gísli Ólafsson, bókaútgefandi; Grímur Gíslason,
framkvæmdastjóri; Guðmundur G. Hagalín, bókafulltrúi ríkisins; Sigurður
Bjarnason, ritstjóri; Stefán Júlíusson, rithöfundur og Magnús Gíslason, fram-
kvæmdastjóri N. F. og er hann ritari nefndarinnar.
Bókanefndin hefur haldið fundi undanfarið og rætt um nokkur að-
kallandi verkefni á þessu sviði, — m.a. um bókasýningar og bókmenntakynn-
ingar og um nauðsyn þess að fá fleiri góð skáldrit íslenzk þýdd og gefin
út í nágrannalöndunum, og ennfremur að gera athugun á þvi hvaða skáld-
verk hafa þegar verið þýdd.
Ennfremur hefur nefndin rætt nauðsyn þess að finna leiðir til að auka
kynni frændþjóðanna af íslenzkum nútímabókmenntum, með því m.a. að
hlutast til um, að greinar um íslenzkar bókmenntir birtist við og við i nor-
rænum blöðum og tímaritum, og að efnt verði til kynningaþátta um ís-
lenzkar bckmenntir bæði almennt og þátta um einstakar bækur og höfunda
i útvarpi og sjónvarpi á Norðurlöndum.
Bókanefndin vill einnig örva miðlun og lestur norrænna úrvalsrita á
Norðurlandamálum meðal íslenzkra lesenda, og athuga í því sambandi hvað
til er af slíkum ritum á frummáli eða þýddum á íslenzku, í bókasöfnum
hérlendia.
Mikilvæg verkefni bíða úrlausnar á þessu sviði. Það er fagnaðarefni,
að þeir aðilar, sem hér eiga hlut að máli skuli nú hafa tekið höndum
saman um þessi mál, svo að tilviljunin ein ráði því ekki, hvernig þessi
mál þrcast i framtíðinni.
Ennfremur hefur verið skipuð þriggja manna nefnd í samvinnu við
Norrænu menningarmálanefndina, sem hefur það hlutverk að annast fyrir-
greiðslu á þýðingum íslenzkra visinda- og fræðirita á Norðurlandamál. 1
þeirri nefnd eru: Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, Halldór Halldórsson,
prófessor og Magnús Gíslason, framkvæmdastjóri N. F. Nokkur vísindarit
hafa þegar verið þýdd á dönsku og norsku og fáein hafa þegar verið valin
til viðbótar.
IMámskeið fyrir æskufólk frá íMorðurlöudum
Á vegum Norræna félagsins verð-
ur efnt til noræns æskulýðsnám-
skeið hér á landi í ágústmánuði í
sumar.
Sex fulltrúum frá hverju landanna
í Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Sviþjóð og 3—4 unglingum frá Fær-
eyjum hefur verið boðin þátttaka.
Norrænu félögin í hlutaðeigandi
löndum munu velja þátttakendurna
úr hópi umsækjenda.
Norrænu gestirnir munu koma sjó-
leiðis 6. ágúst og fara utan 4. sept.
Dvölinni verður þannig háttað að
fyrst verður vikudvöl, kynning og
nám, á heimavistarskóla í sveit. Síð-
an 10—12 daga dvöl á sveitaheimili,
svo dvalist nokkra daga á heimavist-
arskóla að nýju og að lokum dvalið
2—3 daga í Reykjavík.
Þátttakendur greiða ferðirnar en
fá uppihald, kennslu og leiðbeining-
ar hér þennan mánaðartíma er að
mestu ókeypis. Norræna félagið hef-
ur fengið fjárhagsstuðning úr ríkis-
sjóði til þessarar fyrirgreiðslu, sem
skoða má viðleitni til þess, að gera
þá mikilvægðu nemendamiðlun gagn-
kvæma sem félagið hefur annast á
undanförnum árum.
Á síðustu tveimur áratugum hafa
mörg hundruð íslenzk ungmenni
notið ódýrar eða ókeypis skólavistar
á norrænum æskulýðsskólum fyrir
milligöngu félagsins.
NÁMSKEIÐ í SUMAR
NÁMSKEIÐ FYRIR ÆSKUFÓLK
27. juni—2. juli Sverige
„Nordisk kunstkursus for ungdom“
28. juni—5. juli Danmark
Kursus for nordiske lærerstuder-
ende
28. juni—4. juli Sverige
Nordisk ungdomskursus
19. —26. juli Danmark
,,Norden“s ungdomsuge
3.—8. august Norge
,,Norden“s ungdomsstævne
3.—9. august Finland
Nordisk ungdomskursus
20. —24. oktober Danmark
Nordisk gymnasiastmode
28. dec. 1964—4. jan. 1965 Norge
Nordisk gymasiastæve
ÖNNUR NÁMSKEIÐ
15.—18. juni Sverige
„Nordisk ekonomi p& láng sikt“
18.—22. juni Sverige
Nordisk midsommer
23. —30. juni Sverige
„Visa, lek och dans i Norden"
3.—18. juli Sverige
„Det litterara verkets logik“
5.—11. juli Sverige
„Farg och form i hemmiljö"
5. —12. juli Danmark
Ferieophold for medlemmer
6. —8. juli Finland
,,Norden“s kongres i Helsingfors
10.—16. juli Sverige
Lærerkursus. „De nordiska f jállens
natur“
12.—18. juli Sverige
„Norden i dag“
12.—19. juli Danmark
Nordisk kulturuge
27. juli—2. august Sverige
Nordisk lærerkursus. „Den svára
lyriken“
2.—8. august Sverige
„Nordiskt 1500-tal“
10.—15. august Norge
Nordens tillitsmannskonferanse
24. —29. august Sverige
„Att företráda Norden“
7. —11. september Sverige
Nordisk litteraturskole
20.—26. september Sverige
„Ungdom med anpassningssvárig-
heter“
20.—26. september Norge
Nordisk pressekursus
28. sept.—1. okt. Sverige
„Ungdom och demokrati"
2