Austurglugginn - 03.10.2002, Síða 1
ATH!
Ekki gleyma að fara með
fötin í hreinsun
Opið virka daga frá kl 13.00-16.00
VœYmnn E gilsbrouf
140 Fiarðab yggð
Heita vatnid fundid
Gufumökkur stóð upp frá borsvœóinu og vakti gleði í brjósti heimamanna
en þetta er vissulega fyrirheit um góðan árangur þótt ekki sé komin
endanleg niðurstaða í málið ennþá.
Sleipnir, bor Jarðborana hf., hefur
verið að bora á Eskifrrði undan-
famar vikur og hafa margir bundið
miklar vonir við að góð niðurstaða
fáist úr þeirri bomn. A þriðju-
daginn bárust síðan þær fréttir að
fundist hefði umtalsvert magn af
vel heitu vatni. Er óhætt að segja
að mikil gleði hafi gripið um sig
meðal íbúa sveitarfélagsins þegar
þeir sáu gufustrókinn stíga til
himins frá borsvæðinu.
Guðmundur Bjamason bæjar-
stóri Fjarðabyggðar var að vonum
ánægður með fréttimar en sagði þó
að ekki væri um endanlegar niður-
stöður að ræða. „Þetta leggst mjög
vel í okkur en það sem við verðum
að gæta okkur á er að þetta er rétt
að koma í ljós og næstu mánuðir
skera úr um hvemig þetta mun
nýtast okkur.“
Guðmundur segir vatnsfundinn
á þriðjudag hafa verið framar von-
um. „Við höfum treyst á Ólaf
Bjarka og hugmyndir hans, og það
hefur gengið eftir. Nú em menn
bara bjartir og vinna áfram að
Órnar Bjarki Smárason jarðfrœðingur athugar rennslið.
Myndir: HG
þessum málum.“
Til þess að kynda Eskifjörð þarf
25 sekúndulítra af 70° heitu vatni
og á þriðjudaginn vom um 10
sekúndulítrar sjálfrennandi úr
holunni og miðað við dýpi ætti
hitinn að vera góður. Með hjálp
dæla er því líklegt að þessi hola
gæti nægt Eskifirði eins og á
horfir.
„Ef að þetta er nægilega heitt
og mikið, þá eru menn næstum
öruggir með að finna hér vatn á
öðmm fjörðum sem er óskaplega
gleðilegt,“ sagði Guðmundur.
Hann segir að holan sé mun
nær bæjarstæðinu en þær holur
sem gert var ráð fýrir í hag-
kvæmniathugun sem gerð var á
sínum tíma. „Ef við þurfum síðan
ekki að leggja mjög langar leiðslur
verður þetta væntanlega mjög
hagkvæmt, en eftir á að koma í
ljós hvort að þama sé nægilega
mikið vatn,“ sagði hann.
A miðopnu blaðsins að þessu
sinni er meðal annars viðtal við
Ómar Bjarka Smárason jarðfræð-
ing og umfjöllun um ýmis mál
tengt borunum.
Hökt á síldveiðum
Við sildarverkun hjá Skinney-Þinganesi á Höfn.
Heldur hefur verið að draga úr
síldveiðum síðustu viku og svo
virðist sem verðlækkun ætli að
verða, sérstaklega á frystri síld.
Að sögn Hermanns Stefáns-
sonar framleiðslustjóra hjá Skinn-
ey-Þinganesi á Höfn er búið að
landa um 3.500 tonnum hjá þeim,
þar af hafa yfir 70% farið í
frystingu og söltun. September-
mánuður var svipaður í magni og i
fyrra en síldin ekki eins góð.
Hermann tók undir að verðið væri
slæmt, aðallega á frystri síld, en
sagði að menn væm vanir því í
síldvinnslu að það gengi upp og
niður, aðallega þó niður.
Vilhjálmur Vilhjálmsson skrif-
stofustjóri hjá Tanga á Vopnafirði
sagði að alls væri búið að frysta
um 500 tonn af síld. Mjög léleg
nýting hefði verið framan af miðað
við í fyrra, ekki nema 60% í fryst-
ingu úr fyrstu tveimur formunum
samanborið við 92% í fyrra. Hins
vegar hafi nýtingin batnað mjög á
síðustu tveimur förmunum. Annars
væri bara gott hljóð í mönnum hjá
Tanga að sögn Vilhjálms.
Haraldar Jörgensen hjá Síldar-
vinnslunni á Neskaupstað sagði að
þetta væri allt hálf dapurt, nánast
engin veiði og smátt sem kemur.
Nýting til frystingar sé breytileg
eftir förmum. Hjá Hafharvoginni á
Neskaupstað fengust þær upplýs-
ingar að búið væri að landa rúm-
lega 2300 tonnum sem var svipað
og á sama tíma í fyrra.
Að sögn Sveins Guðjónssonar
rekstrarstjóri hjá Búlandstindi á
Djúpavogi hefur veiðin gengið
ágætlega og þar er búið að landa
um 2500 tonnum. Síldin fer aðal-
lega í söltun, eitthvað er fryst í
beitu og eitthvað fer í bræðslu.
Þeir byrjuðu núna 13. september
eða rúmri viku fyrr en í fyrra og að
sögn Sveins virðist síldin hegða
sér svipað núna og síðustu 2 til 3
ár, byrji vel í Beruijarðarálnum,
síðan komi hökt svipað og nú.
www.postur.is
SPARISJÓÐURINN
-jyrir þig og þína
Sparisjóður Norðljarðar
Fjarðabyggð
Handunnar qiafavörur
Opið
mán.-fös.
kl. 14-18
Laugard.
kl. 11-15
Alhliða
verktakastarfsemi
Haki ehf. Neskaupstað
s. 892 5855
Landflutningar-Samskip
Kaupvangi 25
700 Egilsstaóir
Sími: 471 3080
Fax: 471 3081
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga
frá kl. 08:00-16:00
^SAMSKIP