Austurglugginn - 03.10.2002, Qupperneq 3
Fimmtudagur 3. október
AUSTUR • GLUGGINN - 3
Spenna á fasteignamarkadi
Óttar Guðmundsson og Gíslunn Jóhannsdóttir við undirritun kaupsamn-
ingsins, ásamt Sigurði Einarssyni frá E. S. Bygg ehf.
1 síðustu viku var skrifað undir
samning um kaup húss á Reyðar-
firði en þetta verður fyrsta húsið
sem reist verður þar í átta ár.
Kaupendur eru þau Ottar Guð-
mundsson og Gíslunn Jóhanns-
dóttir.
Það er Fasteignasalan Hóll sem
hefur milligöngu um sölu hússins,
en E. S. Bygg í Reykjavík flytur
inn og selur húsið sem er sænskt
furuhús. E. S. Bygg fékk nýlega
úthlutað 11 lóðum í Reyðarfirði til
byggingar.
Hjónin Ásmundur Ásmundsson
og Sigurbjörg Hjaltadóttir reka
fyrirtækið Á. S. Bókhald sem tók
að sér umboð fyrir Fasteignasöl-
una Hól í Fjarðabyggð og á Suður-
ijörðum. Þau stofnuðu fyrirtækið
Búðareyri ehf sem festi nýlega
kaup á húsinu að Búðareyri 15 á
Reyðarfirði, þar sem heilsugæslan
var áður.
„Það er verið að ljúka endur-
bótum á húsinu," sagði Ásmundur
í samtali við Austurgluggann. „Við
leigjum megnið af því út en erum
sjálf með góða skrifstofúaðstöðu.
Það kom okkur á óvart hvað
eftirspumin eftir verslunar- og
Þetta sœnska furuhús mun brátt
rísa á Reyðarfirði.
þjónustuhúsnæði var mikil hér á
Reyðarfirði og við hefðum getað
leigt út nokkur hundmð fermetra
til viðbótar.“
Það er greinilega mikið að
gerast í fasteignamarkaðnum á
svæðinu, að sögn Ásmundar. „I
síðustu viku var haldin kynning á
brasilískum harðviðarhúsum frá
Harðviðarhúsum ehf og þar sem
Sigurður Einarsson frá E. S. Bygg
var staddur á Reyðarfirði var hann
einnig með kynningu á sænsku
húsunum. Það komu miklu fleiri á
þessa kynningu en við áttum von á
og í næstu viku verður síðan
frekari kynning á húsum hjá
okkur,“ segir Ásmundur.
Brasilísku harðviðarhúsin em
nýjung á íslandi en alls hafa sjö
slík hús verið reist hér á landi.
Harðviðurinn hefur ýmsa kosti,
hann er miklu þyngri og stöðugri
en furan, hefur mjög gott ein-
angmnargildi og brennur ekki.
Harðviðarhúsin em einnig með því
ódýrasta sem gerist á markaðnum
fyrir fullbúin timburhús að sögn
Páls Jónssonar sem var með kynn-
ingu á húsunum fyrir hönd Harð-
viðarhúsa ehf.
Opið hús verður að Búðareyri
15 eftir hádegi föstudaginn 11.
október. „Við verðum með kaffi á
könnunni fyrir gesti og gangandi
og fyrirtækin sem hér em til húsa
kynna starfsemi sína en það em
Veiðiflugan, Á. S. Bókhald, Tré-
vangur, Snyrtistofa Sigrúnar, Herta
hársnyrtistofa fyrir dömur og
herra, Nuddstofa Ellenar og VÍS,"
segir Ásmundur að lokum.
BÞ
Frá Tónlistarskóla
Austur-Hérads
Þorbjörn Björnsson söngvari hefur náð þeim árangri að komast inn í Hans
Eisler tónlistarskólann íBerlín.
Kennsla hófst í Tónlistarskóla
Austur-Héraðs 2. september síð-
astliðinn. I skólanum verða 206
nemendur í vetur að meðtöldum
nemendum forskóladeilda sem
starfa í samráði við Grunnskólann
á Egilsstöðum/Eiðum og Hall-
ormsstað og nær til 1. og 2.
bekkjar.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
kennaraliði. Tveir kennarar sem
kenndu við skólann síðastliðinn
vetur fóru í framhaldsnám og einn
flutti búferlum til Reykjavíkur.
Nýir kennarar eru Freyja Krist-
jánsdóttir, sem kenndi forfalla-
kennslu á vordögum, og Muff
Worden.
Kennsla verður með hefð-
bundnum hætti, en verður þó æ
meir sniðin að nýrri Aðalnámskrá
Tónlistarskóla sem kom út árið
2000 og hefur smám saman verið
að taka gildi jafnframt því sem
hljóðfæranámskrár hafa litið
dagsins ljós.
Tónfræðakennsla byrjenda
verður i vetur, samkvæmt nýju
námskránni, meira samofín hljóð-
færanáminu en verið hefur.
Skólahald er nú komið vel af
stað. Kór skólans og hljómsveitir
hafa hafið æfmgar fyrir væntan-
lega tónleika á aðventu.
Fyrstu tónleikar skólans verða í
Egilsstaðakirkju miðvikudags-
kvöldið 23. októbern.k.
Helgina 18.-20. október fer frá
skólanum fríður hópur strengja-
nemenda á strengjamót sem haldið
verður í Keflavík.
Ekki er annað að sjá en fram-
undan sé annasamur vetur með
fjölbreyttu tónleikahaldi.
Tímamót
Hér í skólanum fögnurn við því að
á þriðjudag var staðfest að Þor-
bjöm Bjömsson söngvari sem lauk
burtfararprófí frá Tónlistarskólan-
um hér síðastliðið vor komst inn í
Hans Eisler Tónlistarháskólann í
Berlín. Við lítum á það sem
ákveðin tímamót að einn nemenda
skólans komist beint inn í virtan
erlendan tónlistarháskóla eftir
fimm ára nám hér.
Aðalkennari hans þessi ár hefur
verið Keith Reed en jafnframt hafa
fleiri kennarar lagt hönd á plóginn
því við inntöku í tónlistarháskóla
er litið til alhliða kunnáttu
umsækjenda í tónlist. Þorbjöm
þurfti að sýna kunnáttu sína í
píanóleik, tónfræði og tónheym
Mynd: ÁÓ
auk söngsins áður en hann fékk
inngöngu.
Margir fyrrverandi nemendur
Tónlistarskóla Austur-Héraðs
stunda nú tónlistamám, flestir við
Tónlistarskólann í Reykjavík,
Söngskólann í Reykjavík og fleiri
skóla.
Þó árangur þess starfs sem fram
fer í tónlistarskólum verði ekki
endilega mældur út frá fjölda
nemenda sem á endanum leggja
tónlist fyrir sig gleður það auð-
vitað er nemendur komast inn í
kröfuharða erlenda tónlistarskóla.
Þorbjöm er sonur Þuríðar
Backman alþingismanns og Bjöms
Kristleifssonar arkitekts
MM
Guðjón Bergmann jógakennari og tóbaksvarnarráðgjafi fylgir nemendum
til dyra.
„Foreldra get ég
hvatt til aðgerda"
Guðjón Bergmann jógakennari og
tóbaksvamarráðgjafi lagði leið
sína um Fjarðabyggð í síðustu
viku til þess aó ræða við heima-
fólk um skaðsemi reykinga. Guð-
jón talaði við unglinga í gmnn-
skólunum þremur og hélt síðan
fyrirlestur í Kirkju- og menningar-
miðstöðinni á Eskifirði síðast-
liðinn fimmtudag, þar sem hann
fjallaði um hvaða forvamir for-
eldrar geta notað inni á heimilum,
óháð því hvort þeir reykja sjálfir.
Guðjón sagði að heimsóknimar
i skólunum hefðu gengið vel „en
það sem vantar alltaf eru foreldr-
amir.“
Guðjón sagði eftir fyrirlestur
með krökkum úr Nesskóla að það
virtist vera há prósenta þeirra sem
ættu foreldra sem reyktu. „Hvort
sem foreldrar reykja eða ekki vilja
þeir ekki að bömin sín reyki, og
það skiptir máli hvemig þeir sem
reykja koma fram við bömin sin,“
segir Guðjón og vitnar í norska
könnun.
„1 þessari könnun vom þrír
hópar. Foreldrar sem reyktu og
veittu enga fræðslu í fyrsta lagi. I
öðm lagi vom foreldrar sem
reyktu en voru með góða fræðslu
heima fyrir. Þriðji hópurinn var
skipaður foreldmm sem ekki
reyktu. Niðurstöðumar sýndu
síðan að bömin í hópi eitt voru
langlíklegust til þess að fara að
reykja, hins vegar var jafnmikið af
bömum í hinurn hópunum tveimur
sem byrjuðu að reykja sem sýnir
það að fordómalaus fræðsla heima
fyrir skiptir mjög miklu máli. Það
þarf ekki að vera með einhverjar
draugasögur og það þarf ekki að
ýkja hversu skaðlegar reykingar
em,“ segir Guðjón.
Hann segir það besta sem
foreldrar sem reykja geti gert fyrir
krakka sína sé að útskýra fyrir
þeim í hreinskilni stöðu mála. „Eg
get bara vakið krakkana til um-
hugsunar en foreldra get ég hvatt
til aðgerða. Þau geta sagt við
bömin sín 'ég er í vandræðum og
ég get ekki hætt að reykja'. Þau
geta beðist fyrirgefningar á sínum
veikleika en samt sem áður beðið
bömin sín að gera ekki það sama,“
segir hann.
Guðjón bendir einnig á þau
miklu tengsl sem em á milli þess
að unglingar byrji að reykja og
hversu líkleg þau em til þess að
misnota áfengi og eiturlyf. „For-
eldrar gera sér ekki grein fyrir
þessu. Barnið byrjar að reykja og
þau hugsa að sú barátta sé þar með
töpuð og gefast upp. Foreldrar
mínir gáfust upp en þau hefðu
getað kornið í veg fyrir að ég héldi
áfram að reykja á sínum tíma. Fólk
verður að átta sig á að það er hugs-
anlega að bjarga lífi barnsins.“
Hann benti einnig á að í litlum
samfélögum ætti fólk að geta sýnt
meiri samheldni og spomað gegn
reykingum unglinga, til dæmis
með því að afgreiða þau ekki um
sígarettur.
Sjálfur byrjaði Guðjón að
reykja og drekka ungur og sagði
hann unglingunum í Fjarðabyggð
sögu sína. Hann sagðist hafa orðið
fyrir einelti og því reynt að sýnast
harður með því að fara að reykja.
„Eg er ekkert að reyna að bjarga
heiminum í dag en ef það er einn á
hverjum fyrirlestri sem ákveður að
byrja ekki að reykja eða að hætta
er fyrirlesturinn þess virði. Eg
hjálpaði mörgum að byrja að
reykja þegar ég var strákur og nú
er ég að hreinsa til og borga til
baka með því að halda þessa fyrir-
lestra. Eg hugsaði með mér á tíma-
bili að ég vildi bara lifa hratt,
deyja ungur og verða fallegt lík.
Seinna áttaði ég mig svo á að þrátt
fyrir að ég lifði hratt og dæi ungur
myndi ég ekki verða fallegt lík ef
ég héldi áfram sem á horfði,“ segir
Guðjón.
Futt búð af nýjinn vb'rum
Ecco- söluaðili i Austurlandi
Opnunartími í okt. og nóv.
13-18 mán. -fim.
10-18 föstud.
10-14 laugard.
ecco
ecco
ecco
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ecco