Austurglugginn - 03.10.2002, Page 4
4 - AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 3. október
Austurglugqinn
www.austurglugginn.is
Utgefandi: Útgófufélag Austurlands ehf
Prentun: Héraðsprent ehf
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Brynjólfur Þorvarðarson 869 8643 ritst@austurglugginn.is
Blaðamenn:
Katrín Oddsdóttir 864 1417 frett@austurglugginn.is
Ágúst Ólafsson 892 6700 agust@athygli.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri:
Erla Traustadóttir 477 1571 augl@austurglugginn.is
Skrifstofa Austurgluggans er opin 8-4 alla virka daga.
Auglýsingasími: 477 1571
Fax: 477 1756
477 1750J 477 1755
Vel heppnuð hátíd
Undirritaður sótti þjóðahátíð Austfírðinga um síðustu
helgi. Fulltrúar 20 þjóðlanda kynntu sig, lönd sín og
menningu á hátíðinni. Fólk frá fjölmennustu þjóðar-
brotunum voru með skemmtiatriði í sal íþróttahússins
á Seyðisfirði fyrir hátt á annað þúsund manns og stóðu
sig fádæma vel. Ekki má gleyma því að þetta fólk er
almennt ekki skemmtikraftar og þau sýndu mikið
hugrekki með því að standa fyrir framan alla þessa
furðulegu Islendinga og sýna það að þau eru stolt af
sínu föðurlandi.
Vonandi verður framhald á þessari hátíð, og vonandi
verður áfram jafn vel tekið á móti aðfluttum
Austfirðingum sem hingað til. Við sem höfum alist
upp við íslenska menningu og tungu þurfum að styðja
við þá sem hingað koma að tileinka sér hana eftir
fremstu getu, og tryggja það að þau og bömin þeirra
falli inn í okkar þjóðfélag og auðgi.
Rauði kross Islands, og allir þeir sem að hátíðinni
komu, eiga enn og aftur þakkir skyldar fyrir þetta
stórkostlega framtak.
Græn framtíð
Austfírðingar fylgjast væntanlega grannt með árangri
af borholunni sem Sleipnir er að bora á Eskifirði.
Finnist þar nægjanlegt heitt vatn fyrir hitaveitu er það
ekki aðeins stórkostleg frétt fyrir Eskfirðinga, heldur
fyrir Austfírðinga alla.
Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu em
jarðfræðilegar kringumstæður mjög svipaðar víðs
vegar um íjórðunginn. Finnist heitt vatn á Eskifirði er
full ástæða til að ætla að það fínnist annars staðar.
Hitaveita getur haft umtalsverðar breytingar í för með
sér. Ekki aðeins er um það að ræða að
húshitunarkostnaður lækki, og munar um minna,
heldur opnast alls kyns möguleikar sem ekki vom áður
til staðar. Sundlaugar em orðnar stór partur af
menningu Islendinga og stórgóð afþreying og
heilsurækt. Hitaveita opnar fyrir sundlaug í hverju
plássi, með nóg af stórum heitum pottum!
En það er meira í húfi. Margvíslegur iðnaður getur nýtt
sér jarðvarma, meðal annars gróðurhúsarækt og
margvíslegt fískeldi. Allt fer þetta eftir því hversu
mikið vatn fæst, og hversu heitt.
Það er ljóst að jörð er heit alls staðar undir
Austljörðum eins og annars staðar á Islandi. Berg hér
er hins vegar mjög þétt eins og sést af því að volgrur
og ölkeldur, sem eru algengar á Vestljörðum, eru
nánast óþekktar hér. Þeir sem standa fyrir borunum á
Eskifírði gera sér væntingar um að finna sprungusvæði
sem beri nógu mikið af nógu heitu vatni. Eskiíjörður er
í raun nokkurs konar prófsteinn á þær kenningar, þar
verður úr því skorið hvort þær kenningar standast.
BÞ
Draumaudn
Davíð S. Sigurðsson hefur fengist
við að semja raftónlist í tölvunni
sinni undanfarin misseri. Norðfírð-
ingurinn ungi hefur nú sett saman
sinn fyrsta geisladisk sem verður
settur í sölu hjá ‘12 tónum’ í
Reykjavík bráðlega sem og
Tónspili í Neskaupstað.
„Ég hef verið að reyna að koma
mér á ffamfæri lengi og þetta er
þægilegasta leiðin. 12 tónar er
plötufyrirtæki sem hefur verið að
selja svona heimatilbúna diska og
þeir tóku strax vel í þetta,“ segir
Davíð.
Diskurinn heitir Draumauðn og
hefur undirtitilinn ‘brjóttu andlit
þitt á höfði mínu’. Hann hefur að
geyma 13 lög sem eru talsvert ólík
sín á milli og verður seldur á 500
krónur.
Davíð Sigurðsson tónlistarmaður.
„Ég byrjaði að semja árið 1997
fyrir alvöru. Ég var með svona
trackerforrit og langaði að prófa að
semja tónlist. Svo þegar maður fór
að geta gert eitthvað af viti gat
maður ekki hætt. Ég á örugglega
um 420 lög í dag, með öllu efni
sem sumt er reyndar hálfklárað,“
segir hinn 22 ára gamli tónlistar-
maður.
Davíð hyggur á að klára
stúdentinn frá Verkmenntaskóla
Austurlands næsta vor og fara svo
suður í Háskóla Islands í félags-
fræði. Hann segist gjaman myndi
vilja hafa tónlistina sem aðalstarf í
framtíðinni.
Davíð hlustar talsvert á jaðar-
rokk á borð við Mogwai og Beck,
en uppáhaldshljómsveit sína segir
hann vera Autechre. „Þetta er
experimental grúppa frá Bretlandi
sem í em frumkvöðlar sem fundu
upp þessa ‘clicks and cut’ stefnu.
Það em tveir meðlimir í Autechre
og mjög margt sem ég myndi vilja
spyrja þá um. Eftir svona 100 ár
verða þeir eins og Mozart held
ég,“ segir hann. Aðspurður um
hvort tónlistin á Draumauðn sé í
anda þessarar stefnu segir Davíð
að þar sé fleiri en eina tegund
tónlistar að finna. „Ég er með
allskonar stefnur á disknum,
ambiantar, trippopp, house og
noise... þetta er bara svona plata,“
segir hann af því mikla rólyndi
sem einkennir hann.
Davið er fæddur í Reykjavík en
flutti til Neskaupstaðar 1984 með
fjölskyldu sinni.
„Það er fínt að búa á Austfjörð-
um og vera í tónlist en reyndar er
mjög mikill minnihlutahópur sem
er að vinna svona raftónlist,“ segir
Davíð.
Hefur hann einhvem tíma sótt
innblástur frá umhverfinu? „Já, ég
stóð einu sinni út í fjöru og var að
horfa á hvemig öldumar hreyfðu
þangið, það kom rólegt lag út úr
því sem heitir ‘leggðu mig varlega
frá þér (drukkna flón)’ og er ein-
mitt á diskinum,“ segir hann.
Davíð notar tölvuforritin Reas-
on og Buz við gerð tónlistar sinn-
ar. Nöfnin á lögum Draumauðnar
vekja athygli blaðakonu Austur-
gluggans og má sem dæmi nefna
lag númer fjögur á diskinum sem
heitir ‘saklausi maðurinn fer í frí
(en óheppnin eltir hann á
röndum)’. Hvemig lag skyldi þetta
vera? „Þetta er bara súrt house um
aumingja saklausan mann,“ segir
Davíð og glottir.
Skiptir húmor í tónlist Davíð
miklu máli? „Mér finnst einlægni
skipta meira máli en húmor. Það er
svo mikið af tónlist í dag sem er
samin eins og til þess að reyna að
þóknast markaðnum og mér finnst
hún tapa öllu gildi,“ segir hann.
Davíð rataði á síður Austur-
gluggans fyrir nokkrum mánuðum
þegar hann bjó til stuttmynd sem
ber nafnið ‘Maður er manns
gaman’ og fjallar um skurðlækni
sem fær þrjá úrkynjaða bræður til
meðhöndlunar með hrikalegum
afleiðingum.
Eftir 30 ár segist Davíð sjá sig
fyrir sér í „dimmri kompu hjá ein-
hverju fyrirtæki sem er með tónlist
og tölvur“.
í lokin fær hann svo að svara
hvað það er sem skiptir mestu máli
í lífinu? „Að líða vel og vera bara
sáttur.“ Ertu sáttur og líður þér
vel? „Já mesta furða,“ segir Davíð
áður en hann kveður... eflaust bara
í bili.
KO
Vidbygging gengur vel á
Borgarfirdi
Karl Sveinsson fyrir utan þann hluta Fiskverkuninnar sent verið er að
reisa. Hann segir að stefnan sé að reyna að koma þaki yfir nýbygginguna
áður eit veturinn skellur á.
Núverið stendur yfir stækkun á
húsnæði Fiskverkunar Karls
Sveinssonar á Borgarfirði. Um er
að ræða tveggja hæða viðbyggingu
sem nemur um 420 fermetrum og
er talið að byggingin verði tilbúin
seinna í vetur.
Austurglugginn hitti Karl
Sveinsson sjálfan fyrir síðla dags
þar sem unnið var hörðum hönd-
um við að koma þaki á bygging-
una áður en veður versna. „Okkur
vantar alltaf pláss og þama inn
kemur nýr frystiklefi, stærri þurrk-
unaraðstaða og aukið vinnslu-
rými,“ segir Karl.
Mest er unnið að byggingunni
þegar lítið veiðist svo mannskapur
Fiskverkunarinnar nýtist sem best,
en unnið er undir sterkri stjóm
Magnúsar Þórarinssonar smiðs.
Elsti hluti húsnæðisins segir
Karl vera byggðan fyrir um 20
árum en þar rak hann gæsaslátur-
hús fram til ársins 1988 þegar
markaðir drógust saman í þeim
geira.
Fiskverkunina hefur hann rekið
frá 1986 og segir hann að nú sé
brátt búið að byggja við allt í kring
um upprunalega húsnæðið.
Karl og félagar virðast vera
ákaflega lunknir við að finna leiðir
til þess að nýta tæki og tól sem
hann notaði í gæsaslátruninni við
þurrkun og geymslu á fiski. Hann
býður blaðakonu Austurgluggans
ákaflega ljúffengan harðfisk úr
eggjageymslum að skilnaði, en á
öðrum stað má sjá gulleit flökin
þoma rólega í ungakössum.
KO