Austurglugginn


Austurglugginn - 03.10.2002, Síða 5

Austurglugginn - 03.10.2002, Síða 5
Fimmtudagur 3. október AUSTUR • GLUGGINN - 5 Almenn ánægja med Austurgluggann Erla Traustadóttir við bás Austurgluggans á Þjóðahátið Austfiringa. Við hjá Austurglugganum vorum með smá aðstöðu á Þjóðahátíð Austfirðinga og þökkum við nefndinni gott boð. Ég er yfir mig ánægð með móttökumar sem við fengum. Bæði hvað áskrifendur og fleiri vom duglegir að koma, spjalla við okkur og lýsa ánægju sinni með blaðið. Almennt var fólk ánægt með hvað væri íjallað um marga staði og hvað það væru mikið af myndum. Margir reyndu að spyrja okkur um gluggamynd í 34. tölu- blaði, en málið er að við vitum ekkert meira en þið hvaðan mynd- imar em. Ég vil þakka fyrir hönd starfsmanna Austurgluggans frá- bærar móttökur almennt. Þeir sem em ekki þegar áskrifendur að blað- inu gerist endilega áskrifendur því annars missið þið af fjölbreyttum fréttum af Austurlandi. Enn og aftur takk, takk, fyrir frábærar móttökur. Erla Traustadóttir, framkvæmda- og auglýsingastjóri A usturgluggans SVN stefnir að laxaslátrun í nóvember Hér verður eidislaxinum slátrað innan skamms. Innan skamms verður fyrsta laxin- um úr eldisstöð Sæsilfurs í Mjóa- firði slátrað í nýju laxasláturhúsi Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Stefnt er að því að slátmn hefj- ist í nóvember næstkomandi, en áformað er að slátra 300 - 400 tonnum af Iaxi til áramóta. Laxinn verður flokkaður úr kvíum Sæsilf- urs í Mjóafirði og sláturlaxinn fluttur yfir til Norðfjarðar í slátrun hjá Síldarvinnslunni. Nú liggur fyrir ákvörðun um hversu umfangsmikil starfsemin í kringum slátrunina verður og hversu mikill búnaður verður keyptur í fyrstu. Þær framkvæmdir sem lokið verður við nú í haust felast í uppbyggingu á aðstöðu til að dæla sláturlaxi inn á fram- leiðslurás, þar sem hann verður kældur og blóðgaður. Einnig hefur verið fjárfest í búnaði til að slægja fiskinn og settur verður upp frysti- búnaður til að frysta laxaúrgang, sem síðan verður notaður til fram- leiðslu á loðdýrafóðri. Uppbygging laxasláturhússins er unnin í samvinnu við norskt ráðgjafafýrirtæki sem býr yfir mikilli reynslu af samskonar verk- efnum i heimalandinu. SÖmuIeiðis gerði Síldarvinnslan samning við tvö norsk fyrirtæki um kaop á tækjabúnaði sem notaður verður við slátrunina. Mjög mikilvægt er að laxaslátr- unin gangi vel og áfallalaust strax í upphafi og því hefur Síldar- vinnslan undirbúið verkefnið í samstarfi við þessa norsku aðila sem búa yfir mikilli reynslu af uppbyggingu á starfsemi sem tengist fiskeldi. Áó Bílaleigan ehf. Drjsjnrimi 4 lafnrfirii • Siw: SÍS 99M SIRT3LBO® Fl. A. 3,400 - kr. pr. sólarhring innifalið 100 km. og vsk. Allt frá Nissan Micra - Nissan Terrano. A fiokkur Nissan Micra. Afhent hvar sem er í Reykjavík. Hópmyndataka af fólki íþjóðbúningum sinum var framkvœmd áður en dagskrá Þjóðahátíðarinnar hófst. Mynd: Pétur Kristjánsson Þjódahátíd Austfirdinga heppnast frábærlega Þjóðahátíð Austfirðinga var haldin með glæsibrag um síðustu helgi og talið er að aðsóknamet siðustu hátíðar hafi verið slegið á Seyðis- firði, en vel á annað þúsund manns mættu á hátíðina. Albert Eiríksson framkvæmda- stjóri hátíðarinnar sagðist vera mjög sáttur við útkomuna. Skemmtiatriði komu vel út og greinilegt að fólk lagði vinnu og metnað í þau. Bandaríkjamennimir Muff Warden og Keith Reed sungu við mikinn fögnuð viðstaddra og svo mikil aðsókn var að básum þjóðlandanna að biðraðir mynduð- ust víða. Auglýsing um virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal Með lögum nr. 38/2002 um virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal og stækkun Kröfluvirkjunar veitti Alþingi Landsvirkjun heimild til þess að reisa og reka vatnsaflsvirkjun í Fljótsdal með allt að 750 MW afli ásamt aðalorkuveit- um. Þann 2. september 2002 veitti iðnaðarráðherra Landsvirkjun heimild til þess að reisa og reka Kárahnjúkavirkjun með allt að 750 MW afli, sbr. 7. gr. laga nr. 42/1983 um Landsvirkjun. Með hliðsjón af ákvæðum c-liðs, 1. málsgr. 144. gr. vatnalaga nr. 15/1923, sbr. a-lið 1. málsgr. 133. gr. sömu laga, er ákveðið að kynna hina áformuðu virkjun með auglýsingu þessari þeim aðilum er hagsmuna eiga að gæta gagnvart henni. Greinargerð með uppdráttum er sýna fyrirhuguð mannvirki mun liggja frammi á bókasafni Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, á bæjarskrifstofum Austur-Héraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum, skrifstofu Norður-Héraðs að Brúar- ási og á skrifstofu Fljótsdalshrepps að Víðivöllum- fremri. Er hér með skorað á þá er kynnu að telja framkvæmdir þessar varða hag sinn og vilja gera athugasemdir við þær að koma þeim á framfæri fyrir 15. nóvember 2002. Athugasemdum má koma á framfæri á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitis- braut 68, Reykjavík eða í iðnaðaráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykjavík. Reykjavík, 25. september 2002 Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið JVR

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.