Austurglugginn


Austurglugginn - 03.10.2002, Page 10

Austurglugginn - 03.10.2002, Page 10
10 - AUSTUR • GLUGGINN Fimmtudagur 3. október Fyrirspurn um starfsmannastefnu Fyrir nokkmm dögum barst Austurglugganum bréf frá lesenda þar sem spurt var eftir starfs- mannastefnu fiskvinnslufyrirtækis í Fjarðabyggð. Bent var á að margir erlendir starfsmenn vom við vinnu í fyrirtækinu á meðan atvinnuleysi væri meðal heima- manna. Jón Ingi Kristjánsson formaður Afls sagði í samtali við Austur- gluggann að engin ný atvinnuleyfí hefðu verið gefm út nýverið. „A meðan einhver er á atvinnuleysis- skrá liggja fyrir fyrirmæli hjá öllum skrifstofum Afls um að gefa ekki út ný atvinnuleyfi," sagði hann. „En við getum ekkert annað en endumýjað atvinnuleyfi þegar fólk er búið að vinna sér inn réttinn til þess að vinna. Erlent vinnuafi er jafnrétthátt og aðrir í félaginu samkvæmt almennum reglum sem um stéttafélög gilda,“ segir Jón Ingi. I sambandi við starfsmanna- stefnu einstakra fyrirtækja segir Jón, „við getum aldrei ráðið því hvem atvinnurekandi vill hafa í vinnu, það er algerlega atvinnu- rekandans að ráða og segja upp fólki. En hann verður að fara eftir þeim lögum og reglum sem um það gildir. Þrátt fyrir það er okkur auðvitað frjálst að hafa skoðun á þeim málum.“ Samkvæmt heimildum Austur- gluggans er um atvinnuþróun að ræða sem ekki á einungis við um þetta tiltekna fyrirtæki heldur einnig önnur stórfyrirtæki í fisk- vinnslugeiranum. Þar sem svör við erlendum starfsumsóknum þurfa að berast viðkomandi umsækj- endum í mars fyrir vertíð sem hugsanlega hefst í október getur verið erfitt fyrir fyrirtækin og verkalýðsfélög að meta hvemig atvinnuástand innan bæjarfélags- ins verður þá. Einnig hafa mörg stærri fyrir- tækin ákveðið að vera ekki með hálfsdagsstarfskrafta nema þeir geti fundið einhvem til þess að vinna á móti sér en þetta komi sér oft mjög illa, sérstaklega fyrir konur með böm. KO Göngudagur fjölskyldunnar helgina 5. til 6. október Ungmennafélag íslands (UMFl) í samráði við héraðssamböndin gengst fyrir Göngudegi fjölskyld- unnar um næstu helgi. í fréttatilkynningu frá UMFI segir að þetta sé kjörið tækifæri til að fara út að hreyfa sig og rækta fjölskylduböndin. Fjölskyldan skráir sig í gesta- bók á göngustað hjá viðkomandi ungmennafélagi eða beint á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is). Tíu heppnir þátttakendur verða dregnir út og fá vömúttekt hjá Everest í Skeifunni og verða vinningsnúmerin einnig birt á heimasíðu félagsins. Þjónustumiðstöð UMFI á Austurlandi hefur sent veggspjöld til allra sinna félagsmanna og væntir þess að þeir muni standa fyrir gönguferð hver í sinni heima- byggð. Liverpool dagurinn á Austurlandi Scevar Örn Harðarson, skrautlegasti jólfsson formaður Liverpoolkúbbsins. Fyrsti Liverpool dagur Liverpool klúbbsins á Islandi var haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum síðastlið- inn laugardag. Þar komu saman Liverpool aðdáendur á Austurlandi og hittu stjómarmenn Liverpool klúbbsins, rifjuðu upp merkisvið- burði úr sögunni og fýlgdust með leik Liverpool og Manchester City á bíótjaldinu í Valaskjálf. Lokaundirbúningur fór fram á föstudaginn og Sigursteinn Brynj- ólfsson, formaður Liverpool klúbbsins og Kristmann Pálmason, gjaldkeri, mættu þá á svæðið. Dagskráin hófst klukkan ellefu á laugardagsmorgni og gátu gestir, til að byrja með, fylgst með leik Leeds United og Arsenal og litu nokkrir stuðningsmenn þeirra liða við, en eðlilega var meirihluti „Púllarinn“, og Sigursteinn Bryn- gesta stuðningsmenn Liverpool, enda þeirra dagur. A hádegi hófust svo sýningar á Liverpool myndefni og síðan Þvi fá aðdáendur þessara liða úti á landi sjaldan tækifæri til að hitta forsvarsmenn klúbbanna og þvi er þetta framtak forsvarsmanna Liverpool klúbbsins virðingarvert. Enda létu „Púllarar“ á Austurlandi ekki á sér standa því góð mæting var í Valaskjálf þennan dag, eða um 60 manns. Áó Um 60 Liverpool aðdúendur mcettu á í Valaskjálf á Liverpool daginn. fylgdust Liverpool aðdáendur með sínum mönnum vinna góðan 0-3 útisigur á Manchester City. Sigursteinn og Kristmann kynntu starfsemi klúbbsins fyrir gestum og allmargir skráðu sig í klúbbinn. Getraunir voru í gangi með veglegum verðlaunum og aðalverðlaunin voru fyrir spum- ingaleik fyrir meðlimi klúbbsins og getraun um úrslit leiksins. Merkileg tilviljun var að sami maðurinn fékk bæði verðlaunin sem vom nýi varabúningur Liver- pool og ný æfmgatreyja. Einnig vom veitt verðlaun fyrir flottustu múnderinguna og reyndist ungur Norðfirðingur, Sævar Öm Harð- arson, sá flottasti. Aðdáendur flestra, ef ekki allra, liða í enska boltanum eiga sér stuðningsmannaklúbba á Islandi og starfsemi þeirra flestra er að mestu bundin við höfuðborgar- svæðið. Brot úr stuttmyndum Tallervo sem sýndar verða í Skaftfelli um helgina. Frumsýning Næstkomandi laugardag verður verk finnsku listakonunnar Tell- ervo Kalleinen frumsýnt í Skaft- felli á Seyðisfirði. Tellervo hefur dvalið á Seyðis- firði ásamt tveimur öðrum lista- mönnum undanfarið og unnið að gerð myndar sinnar sem ber nafnið „In the middle of a movie“ og áður hefur verið fjallað um í Austur- glugganum. Tellervo hefur farið inn á aust- firsk heimili undanfamar vikur og leyft þeim, sem kjósa að taka þátt í verkinu, að leikstýra einnar mínútu mynd að eigin vali. Tellervo leikur sjálf í myndunum en Þjóðverjinn Ullu Braun stjórnar myndatökum. Á laugardaginn klukkan 21:00 geta þeir sem vilja skoðað afrakst- urinn sem að öllum líkindum verð- ur ansi skrautlegur. KO Blakmafía Svo virðist sem norðfirsk mafía hafi tekið yfir Blakdeild Hand- boltafélags Kópavogs (HK). Aust- urglugginn ræddi við Brynjar Júlíus Pétursson sem er einn um- ræddra blakara. „Já það er hellingur af Norð- firðingum hjá HK núna. Eg sé um yngri flokkana, svo er það Dag- björt Víglundsdóttir sem þjálfar öldungana, en öldungablakið er orðið ansi viðamikið um landið. Síðan er Haraldur Guðmundsson, Halli Dedda, að þjálfa meistara- flokk kvenna hjá HK. I meistara- flokki karla eru sex leikmenn frá Norðfírði og alla vega tvær í kvennaflokki,“ segir Brynjar. Hann þakkar góðu yngriflokka- starfi í Neskaupstað því hversu vel Norðfírðingum gengur að fóta sig í íþróttinni. „HK leið undir lok sem blakdeild 1995 og nú er félagið komið sterkt inn aftur með yngriflokkastarfið sem öldungamir byrjuðu raunar með. Þeir fengu mig og vin minn til þess að þjálfa og nú ætlum við bara að halda áfram með þetta. Svo tókum við nokkrir okkur saman og stofnuðum meistaraflokk. Þetta er allt að koma og nú em komin sex lið inn aftur eftir deyfð í fyrra, þannig að það eru bjartir tímar framundan," segir Brynjar sem leggur stund á lögfræði ásamt þjálfuninni. Hann segir að helsta hindrunin í sambandi við yngri flokka starf í blaki fyrir sunnan sé samkeppni við handboltaíþróttina KO Bridge - Fjarðabyggd Úrslit úr tvímenningi 24. september Nöfn spilara 1 Gísli Stefánsson Magnús Bjamason Úrslit 100 2 Auðbergur Jónsson Hafsteinn Larsen 99 3 Ásmundur Ásmundsson Einar Þorvarðarson 90 4 Ásgeir Metúsalemsson Kristján Kristjánsson 85 5 Sigurður Hólm Freysson Þórir Aðalsteinsson 81 6 Ema Nielsen Gunnhildur Garðarsdóttir 79 7 Jónas Jónsson Óttar Guðmundsson 74 8 Böðvar Þórisson Þorbergur Hauksson 64 Meðalskor 84 - Fyrsta kvöld af þremur.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.