Austurglugginn


Austurglugginn - 06.06.2002, Side 9

Austurglugginn - 06.06.2002, Side 9
Fimmtudagur 6. júní AUSTUR • GLUGGINN - 9 Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands: Gönguhópurinn á Borgarfirdi hlýtur frumkvödlaverdlaunin Helgi M. Arngrímsson, formaður Gönguhópsins á Borgarfirði eystri, tekur á móti frumkvöðlaverðlaunum Markaðsstofunnar. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt, en í fyrra fékk sýningin Fransmenn á Islandi verðlaunin og árið 2000 var það Lagarfljótsormurinn. Aðalfundur Markaðsstofu Austur- lands var haldinn á Fosshótel Reyðarfirði miðvikudaginn 29. maí. Auk hefðbundinna aðalfund- arstarfa voru kynntar nýjustu breytingar á vefnum www.east.is. sem rekinn er af Ferðamálasam- tökum Austurlands. Þá samþykkti fundurinn að í ljósi breyttra að- stæðna, sem leitt geta af sér mikla fjölgun ferðamanna á svæðinu, beiti Markaðsstofan sér fyrir endurskoðun á skipulagi ferðamála á Austurlandi. Þannig verði endur- skoðuð tengslin við Ferðamála- samtök Austurlands og Þróunar- stofu með það að markmiði að starf Markaðstofunnar verði árang- ursríkara. Stjóm Markaðsstofunnar var endurkjörin en stjómarfor- maður er Jónas Hallgrímsson Seyðisfirði, varamaður Auður Anna Ingólfsdóttir, Egilsstöðum og gjaldkeri Sveinn Sigurbjamar- son, Eskifírði. Fram kom að starfssemi Mark- aðsstofunnar hefur verið öflug og á s.l. starfsári vom t.d. haldnir 13 fundir í framkvæmdaráði þar sem tekið var á ýmsum málum. Bátamálin svokölluðu bmnnu þar heitast á mönnum og kom fram að stjóm Markaðsstofunnar hafði mikið beitt sér til að stuðla að áffamhaldandi siglingum með ferðamenn á Austurlandi, hvort sem er á sjó, vatni eða í ám. Það er þó ljóst að mikið og margt þarf að koma til svo rekstrammhverfi siglinganna batni. Jóhanna Gísladóttir fram- kvæmdastjóri rakti fjölmörg verk- efni sem Markaðsstofan vann að á síðasta ári og sagði frá mikil- vægum haustfundi um kynning- armál á Breiðdalsvík og árangurs- ríku málþingi um gönguleiðir á Borgarfirði. Þá kom fram í máli hennar að á s.l. ári komu um 50 manns frá innlendum og erlendum ferðaskrifstofum í kynnisferðir til Austurlands á vegum Markaðs- stofunnar með stuðningi Flug- félags Islands og tuga ferða- þjónustufýrirtækja á Austurlandi. Á fundinum vom frumkvöðla- verðlaun Markaðsstofunnar veitt í þriðja sinn. I fyrra fékk sýningin Fransmenn á íslandi verðlaunin og árið 2000 var það Lagarfljóts- ormurinn. Að þessu sinni fóra verðlaunin til Gönguhópsins á Borgafirði eystri og veitti Helgi M. Am- grímsson, formaður hópsins þeim Verðlaunagripurinn er hinn glœsi- legasti. viðtöku. Ferðamálahópurinn var stofn- aður 1996 og hefur síðan unnið ótrúlega öflugt starf við upp- byggingu gönguleiða á svæðinu umhverfis Borgarfjörð og útgáfu kortsins Gönguleiðir á Víkna- slóðum. Nú er sú vinna farin að skila þeim árangri að ferðamenn koma í stómm stíl inn á svæðið og skilja þar eftir umtalsverðan fjármuni. I fyrra komu t.d. á annað þúsund manns til Borgarfjarðar í skipulagðar gönguferðir. Öflugt starf Ferðamálahópsins á Borgarfirði sýnir hverju sam- staða og framtakssemi fær áorkað. Borgfirðingar hafa ekki setið með hendur í skauti og beðið þess að hlutimir gerðust. Þeir hafa unnið heimavinnuna sína og með sam- stilltu átaki hefur þetta litla samfélag heldur betur komið sér á kortið. Starf Ferðamálahópsins hefur verið öðmm hér á Austur- landi hvatning og fyrirmynd og nú er svo komið að hópar í mörgum byggðarlögum á Austurlandi feta í þeirra spor og veruleg uppbygging er hafin á gönguleiðum á öllu svæðinu. Þetta hefur verið Markaðs- stofunni hvatning til að kynna Austurland sem „paradís göngu- mannsins“ og í farvatninu er frekari markviss kynning á Austur- landi sem gönguleiðasvæði. Vefslóð yfir gönguleiðir á Víknaslóðum er: www.alfasteinn.is Gönguleiðir í Fjarðabyggð: www.isholf.is/ffau/ Gönguleiðir á hálendi Austur- lands: www.egilsstadir.is/ferdafelag/ Sviptur rétti til að tjá sig Júlíus Þórðarson Júlíus Þórðarson bóndi á Skorra- stað í Norðfírði telur sig ekki hafa fengið tækifæri til að tjá skoðanir sínar á almennum framboðsfund- um sem haldnir vom í Fjarða- byggð fyrir kosningar. Júlíus gagnrýnir það að allar spumingar sem bomar eru fyrir frambjóð- endur þurfi að vera algerlega „hnitmiðaðar“ og segir að stund- um sé nauðsynlegt að hafa formála að stærri málum og hefur hann eftirfarandi að segja um atburðarás fundanna. „Þar sem aðeins var leyfilegt að vera með hnitmiðaðar spumingar ákvað ég að vera aðeins með eina spurningu um Skálateigsréttina á fundinum á Norðfírði. En ég fékk ekki þau svör sem ég vildi fá. Þegar leið á fundinn þá heyrði ég að það var ýmislegt sem kom fram á fundinum sem ég hefði viljað taka þátt í að tala um en vegna fyrirkomulags fundarins ákvað ég að biðja ekki frekar um orðið, því ég taldi það tilgangslaust og ákvað ég að sleppa fundinum á Eskifirði en fara á fundinn á Reyðarfírði 23. maí síðastliðinn. En áður en ég nefni fundinn á Reyðarfirði frekar langar mig að fara yfir þau atriði sem ég vildi þaka þátt í á Norð- fjarðarfundinum. Meðal annars sem kom fram á þeim fundi var að of mikið væri af húsum í bænum. En þáverandi meirihluti í Norð- firði var búinn að fá leyfi til að brjóta niður nokkur hús en að mér skildist ekki nógu mörg. Vil ég nefna þau hús sem þeir fengu ekki leyfí til að brjóta niður. Það var gamla Lúðvíkshúsið og húsið Þórsmörk á Þiljuvöllum þar sem nú er kallað í daglegu tali lista- smiðja og mörg listaverk unnin. Emm við þá komin að sam- komuhúsinu á Kirkjumel. Þar var Neskaupstaður búinn að nota Kirkjumelshúsið fyrir skóla í öll þau ár síðan það var endurbyggt. En nú áttu þeir enga hugmynd um hvað þeir áttu að nota það í, en nefndu þó að þar mætti hafa smá- böm sem þeir virtust vera í vand- ræðum með. En þegar ég kom á Reyðar- fjarðarfundinn þá var þar fullt hús og virkilega gaman að vera þar staddur. Eg var búinn að labba þama um og taldi mig vera áberandi fyrir fundarstjóra og var þá með í höndunum hnitmiðaðar skrifaðar fyrirspumir og þá taldi ég að ég væri oft búinn að gefa mig fram. Þá gerist það að fundar- stjóri slítur fundinum. Þá varð ég reiður og ætlaði að lesa spuming- amar án vilja fundarstjóra og fór þá allt úr böndunum, svoleiðis að ég fékk ekki frið til að lesa spumingamar. Afsökunin var sú að það væru 20 manns á eftir mér að fá orðið, en mér finnst skömm að fara svona með fundargesti“. Eftirfarandi er erindið sem Júlíus vildi koma að á fundinum og vill hann hér með koma því á framfæri við þá stjóm er mynduð verður í Fjarðabyggð: Ágætu frambjóðendur. Það em þrjú atriði sem mig langar að heyra afstöðu ykkar til þó ég vildi gjaman spyrja um miklu fleira af því sem mér sýnist hafa verið vanrækt hjá núverandi stjómvöld- um Fjarðabyggðar. Fyrst er það fjárréttin í Norð- fjarðarsveit. Hún er ónýt og bæjar- félaginu til skammar. Miklar framkvæmdir við brúargerð og veg em í gangi í næsta nágrenni við réttina og ég tel að hægt væri að komast að samkomulagi við að nota þau stórvirku tæki sem þar era til að rífa réttina. Hægt væri að nota efnið úr réttinni í leiðargarða sem þarf að byggja frá brúnni. Munið þið beita ykkur fyrir því ef þið komist til valda? Annað er varðveisla svokallaðs gamla Lúðvíkshúss á Norðfirði. Ég tel óskynsamlegt að varðveita það og láta aðrar miklu reisulegri byggingar svo sem Þórsmörk við Þiljuvelli drabbast niður. Hver er ykkar skoðun á því? Þriðja málið sem ég nefni er samkomuhúsið á Kirkjumel í Norðfirði. Þetta hús sem býður upp á fjölmarga möguleika til að auðga mannlífið í bæjarfélaginu er algjörlega úti í kuldanum. Hver er ykkar skoðun á nýtingu þess í framtíðinni? Júlíus vill minna á í sambandi við byggingar á borð við Kirkju- mel. að þrátt fyrir að ekki séu alltaf til nægir peningar í bæjar- sjóði er til nægur mannauður í Fjarðabyggð sem er vel nýtanlegur til dæmis í ferðaþjónustu. Rafvéla verkstæði VELALAND VELASALA • VARAHLUTIR TURBINUR > VIÐGERÐIR Vagnhöfði 21 • HOReykjavík Sími: 5774500 velaland@velaland.is

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.