Austurglugginn - 06.06.2002, Blaðsíða 12
ALMANNATENGSL
ÚTGÁFUÞJÓNUSTA
VEFRÁÐGJÖF
Miðvangi 2-4 Egilsstaðir Símar 471 2800 & 892 6700
Austur«gluggmn
Fimmtudagur 6. júní
Heimasífta Austur-Hérafts
www.egilsstadlr.is
Kíkift vift á hverjum de
Sækjum okkur sjálf heim
Markaðsstofa Austurlands mun í
sumar standa fyrir átakinu
„Sækjum sjálf okkur heim“ í sam-
vinnu við Austurgluggann og
svæðisútvarpið á Austurlandi.
Átakið felst í því að vekja at-
hygli á því ágæta framboði í
afþreyingu og veitingum sem hér
er á svæðinu og hvetja jafnframt
austfírskar fjölskyldur til að
styrkja okkar eigin menningu með
því að sækja þessa staði.
Átakið getur falist í því að
ákveða að fara út saman einu sinni
í viku, hálfsmánaðarlega eða svo.
Einhverjir vilja kannski fara oftar,
aðrir sjaldnar. Sumir hafa það fyrir
fastan sið að fara einu sinni í viku
á kaffíhús, aðrir fara út að borða
einu sinni hálfsmánaðarlega eða
einu sinni á sumri. Aðalatriðið er
að við séum meðvituð um að á
okkar svæði er töluvert af góðum
veitingastöðum, mikið af fram-
bærilegri menningu, hvort sem er í
formi listahátíða eða sýninga, og
annarri afþreyingu sem við ættum
öll að njóta sem oftast og mest. Ef
við notum þetta sjálf styrkjum við
okkar eigin menningu, það sem
sumir segjast þurfa að sækja til
Reykjavíkur. Þetta er til staðar hjá
okkur. við verðum bara að vera
duglegri að sækja okkar eigin
staði.
Markaðstofan fékk fimm valin-
kunna Austfírðinga til liðs við sig í
verkefhinu „Sækjum sjálf okkur
heim“ sem allir starfa sinna vegna
ferðast mikið í fjórðungnum og
þekkja svæðið allt vel.
Þetta fólk fékk lista með 80
atriðum, söfnum, sýningum, hátíð-
um og veitingastöðum á svæði
Markaðsstofunnar og valdi hvert
um sig 15 atriði/staði sem þeim
fannst skara fram úr.
Þannig er verkefnið jafnffamt
hugsað sem gæðaátak í ferðaþjón-
ustu. Það á að virka sem hvatning
fyrir þá sem standa sig vel og
öðrum hvatning til að komast í
úrtakið á næsta ári.
Átakið stendur yfir í 15 vikur í
sumar og verður í hverri viku
valinn staður vikunnar og kynntur
í Austurglugganum og svæðisút-
varpinu.
Austfirðingar eru allir hvattir til
að taka þátt í átakinu og kynna sér
vel þá staði eða þær uppákomur
sem kynntar eru í hvert sinn.
Lokahóf námskeiða sem AFL, Menntasmiðjan og Tangi hf. hafa staðið að
á Vopnafirði með glœsilegum árangri og mikilli þátttöku var haldið nú um
helgina. I kjöifariö var haldin árshátíð Tanga og var boðið upp á heilmikið
sjávarréttarhlaðborð.
Löndun stöðvuð á Norðfirði
Stadur vikunnar
Eins og hér að ofan segir er Staður
vikunnar nýtt átaksverkefni sem
Markaðsstofa Austurlands stendur
að og er staður vikunnar að þessu
sinni Operustúdíó Austurlands.
Eitt af undrum Austurlands er
án efa Opersustúdíóið sem söng-
varinn og tónlistarkennaramir,
Keith Reed og eiginkona hans
Ásta B. Schram sem einnig er tón-
menntakennari, hafa með óþrjót-
andi krafti, bjartsýni, og dyggri
aðstoð góðs fólks haldið úti í
bráðum Ijögur ár.
Á hverju ári standa þau fyrir
tónlistarhátíðinni Bjartar nœtur í
júní þar sem settar era á svið
vandaðar óperur á Eiðum ásamt
tónleikum af ýmsum toga annars
staðar í fjórðungnum. Operustúdí-
óið fær til liðs við sig listamenn af
öllu landinu, suma fullnuma en
aðra langt komna í tónlistamámi.
Hjónin Keith og Ásta hafa búið á
Egilsstöðum í 6 ár og hafa náð að
vinna kraftaverk í tónlistarlífi
Austurlands á þeim tíma. Starf
þeirra er mikil hvatning og lyfti-
stöng í austfirsku tónlistarlífi.
Austfirðingar kunna líka vel að
meta starf þeirra og hafa reynt að
endurgjalda framlag þeirra til
menningarlífs á Austurlandi með
því að heiðra þau á ýmsan hátt. Nú
nýlega var Keith Reed kosinn
bæjarlistamaður Austur-Héraðs
eins og fram hefur komið á síðum
A usturgluggans.
Metnaðarfullt efnisval Operu-
stúdíosins er með ólíkindum og
hefur vakið athygli langt úr fyrir
ijórðunginn.
I sumar stendur hátíðin frá 8. til
16. júní. Meginviðfangsefnið að
þessu sinni er óperan Cosi fan
tutte eftir Mozart en einnig verða
flutt íslensk þjóðlög ásamt
íslenskri og erlendri kórtónlist.
Einnig er svokölluð Mozartveisla
á Eskifirði, þar sem eingöngu eru
flutt verk eftir meistara Mozart.
Hátíðinni lýkur með sýningum á
óperunni Cosi fan tutte í
Borgarleikhúsinu í Reykjavík 15.
og 16. júní. Þá hefúr Kammerkór
Austurlands, sem er meiður af
stofni Operustúdíósins, verið boðið
að heimsækja Litháen í sumar.
„Þetta er allt að smella saman,
söngvarar, hljómsveit, búningar,
leikmynd og ljós,“ sagði Keith
Reed stjómandi Cosi fan tutte.
þegar Austurglugginn kom við í
Operustúdíói Austurlands, og
fylgdist með einni af síðustu
æfmgum á óperunni, sem verður
frumsýnd á Eiðum næstkomandi
laugardag. „Það er auðvitað dálítið
stress svona undir það síðasta, en
hér verður allt tilbúið fyrir flotta
frumsýningu á laugardaginn,"
sagði Keith.
Full dagskrá Operustúdíósins
má fmna á blaðsíðu 3 í þessu
tölublaði.
Skipið Hákon EA 148 frá Grenivík
sem átti að landa í Neskaupstað í
byrjun vikunnar var gert að snúa
við eftir miklar deilur, þar sem
útgerð þess, Gjögur hf, hugðist
nota aðflutt vinnuafl við löndunina
að hluta til í staðinn fyrir heima-
Hér sjást söngvararnir œfa sig fullum hálsi og eflaust verður margt um
dýrðir á tónlistarhátiðinni Björtum nóttum sem hefst næstkomandi
laugardag.
Hákon EA 148 í Norðfjarðarhöfn.
menn. Jón Ingi Kristjánsson for-
maður verkalýðsfélagsins Afls
sagði að löndun hefði verið
stöðvuð þegar í ljós kom að mann-
afla frá Reykjavík hafði verið
flogið til Homafjarðar og þaðan
höfðu þeir keyrt austur til
Norðfjarðar til þess að landa úr
skipinu. Hann sagði að með þessu
vilji Síldarvinnslan hf „ná niður
launum og kjörum heimamanna
með því að sækja lið að sunnan án
þess að ræða við stéttarfélagið".
Jón Ingi sagði að þegar í ljós hefði
komið að Reykvíkingamir, sem
flestir em félagsmenn i stéttar-
félaginu Eflingu, ætluðu að landa
úr skipinu hafi hann kallað sitt
fólk inn og þannig hafi tekist að
stöðva löndunina. „Þessi dagur er
búinn að vera aggresívur og
erfiður og ég held að fulltrúar Afls
og Síldarvinnslunnar verði að
setjast niður og ná niðurstöðum
með einhverjum skynsömum
hætti," sagði Jón Ingi eftir að ljóst
var að skipið myndi landa annars
staðar. „Það er algerlega óásætt-
anlegt að fyrirtæki eins og Síldar-
vinnslan kalli til mannskap að
sunnan til þess að taka vinnu frá
Austfirðingum,“ bætti hann við.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri
Síldarvinnslunnar sagði eftir-
farandi um atburði mánudagsins:
„Mér fmnst ljótt að sjá skip sigla
ffá Norðfirði og það er eitt það
versta sem ég veit. Eg get staðfest
það að þetta gerist ekki vegna þess
að við séum ósanngjamir í þvi sem
við emm að bjóða og ég held að
eitthvað sé að þegar fólk sem lifir
á sjávarútvegi lætur svona hluti
gerast". Björgólfur sagði enn
fremur að það „skipti skipið máli
hvað það kostar að landa þar sem
skipið borgar löndunina. Þeir vildu
fá þá menn sem lönduðu fyrir þá
fyrir sunnan og ég er hræddur um
að þeir sem stóðu að stöðvun
þessarar löndunar geti þakkað sér
fyrir að ekki koma fleiri skip til
Norðfjarðar". Aðspurður um hvers
vegna aðkomumenn væm ódýrari
kostur en heimamenn sagði
Björgólfur, „við höfum verið að
yfirborga löndun á okkar skipum
til þess að halda löndunargenginu
en það er ekki inni í myndinni að
það gildi fyrir öll skip. Valkostir
sem við eigum em ekki miklir og
svona aðgerðir sýnast mér strið
gegn því að fá viðskipti á staðinn.“
Hann tók það fram að það væri
útgerðaraðilinn, Gjögur hf, sem
ákvæði hver landaði úr skipinu
ekki Síldarvinnslan sem slík.
KO
Su marblóm
I úrvali
Blómabúðin Laufskálinn
Nesgata 3 Neskaupstað - s 4771212
Tilboð
I jir '/iLiLb hjjuj' jj/jjrjÁ'jilbjiÍLLr 6eWt
Pepsi max 21
Doritos snakk
Opið alla daga frá kl. 10-19
s. 477 1609
Skip og bíll
HeildarLausn f flutningum
EIMSKIP
www.eimskip.is • sími: 450 5100 www.flytiandi.is • Eskifjördur 476 1800 Neskaupstaður 477 1190 Egilsstaðir 471 1241 Seyðisfjörður 472 1600