Austurglugginn - 06.03.2003, Side 1
Austur«glug2inn
9. tbl. - 2. árg. - 2003 - Fimmtudagur 6. mars
Nýjar vörur í
hverri viku
System
s. 477 1303
740 Fjarðabyggð
Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1026 á mánuði (kr. 256 eintakið) ISSN 1670-3561
Hús Eikarsmiðjunnar við Stekkjargrund á Reyðarfirði.
Láni hafnad á
hæpnum forsendum
Á Reyðarfirði standa nú yfir
byggingar á að minnsta kosti
þremur nýjum íbúðum við
Stekkjargrund. Eikarsmiðjan,
fyrirtæki Árna Guðmundssonar
trésmiðs, er fyrirtæki sem
stendur að byggingu á tveimur
íbúðanna í parhúsi neðst í göt-
unni. Þegar Árni hugðist sækja
um lán til Landsbanka Islands á
Reyðarfirði bjóst hann ekki við
að það yrði neinum sérstökum
vankvæðum háð, enda Árni að
fara að byggja hús á þeim stað
landsins sem menn hafa séð
fram á að fólki muni hlutfalls-
lega fjölga hvað mest á komandi
misserum.
„Ég sótti um lán hjá Lands-
bankanum á Reyðarfirði fyrir svo-
litlu síðan og þar fékk ég mjög já-
kvæð svör en var bent á að
umsóknin þyrfti að fara fyrir ein-
hverja menn norður á Akureyri.
Jafnframt var mér tjáð að ég þyrfti
að bíða einhverja örfáa daga eftir
svari að norðan, það kom svo ekki
fyrr en eftir einhverja 10 daga með
þeim skilaboðum að umsókninni
Landflutningar-Samskip
Kaupvangi 25
700 Egilsstaóir
Sími: 471 3080
Fax: 471 3081
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga
frá kl. 08:00-16:00
Landflutningar
JJ SAMSKIP
væri hafnað af þeirri ástæðu að
ekkert hefði verið byggt og selt á
Reyðarfirði undanfarin þrjú ár, þar
af leiðandi væri hæpið að það
gengi nú,“ sagði Árni Guðmunds-
son, mjög undrandi á viðbrögðum
Landsbankans á Akureyri.
Ámi segist í framhaldinu hafa
snúið sér til Sparisjóðs Norð-
ljarðar og þar hafi hann loksins
fengið lánið og þar með byggt
parhúsið sem alltaf stóð til að
byggja. „Ég hef ekkert slæmt af
starfsfólki útibús Landsbankans á
Reyðarfirði að segja, enda liggja
mistökin að mínu mati hjá þeim
fyrir norðan og þeirra reglum sem
þeir hljóta að þurfa að endurskoða
nú miðað við gang mála undan-
farið,“ sagði Árni í samtali við
Austurgluggann. Parhúsið sem
Ámi er nú með í byggingu er tæpir
270 fm eða 130 fm hvor íbúð með
bílskúr.
Austurglugginn náði í fram-
haldinu tali af Sigurði Sigurgeirs-
syni svæðisstjóra Landsbankans,
en hann hefúr aðsetur á Akureyri.
Sigurður kvaðst undrast mjög þau
ummæli sem höfð væru eftir Áma,
hann (Sigurður) hafi verið búinn
að spyrjast fyrir um það hvort um-
ræddri lánsumsókn hafi verið
hafnað á þessum rökum, en það
hafi ekki verið. Sigurður sagðist
annars ekki tjá sig um málefni
einstaka viðskiptavina.
„Samkvæmt því sem ég best
veit hefur enginn hér hafnað láns-
umsókn með þeim rökum sem
haldið er fram. Að öðm leyti get
ég ekki tjáð mig um málefni
einstakra viðskiptavina bankans,"
sagði Sigurður Sigurgeirsson í
samtali við Austurgluggann.
helgi@austurglugginn. is
Bjartur NK-121 þrítugur
Hefur þjónad vel
Skuttogarin Bjartur NK var þrí-
tugur síðastliðin mánudag 3.
mars. Togarinn sem er 461
brúttólesta, var smíðaður í
Niiigata í Japan árið 1973, en
Bjartur er einn tíu svokallaðra
Japanstogara sem komu til
landsins á árunum í kringum
1970. Tveir aðrir Japanstogarar
eru einnig á Austurlandi,
Brettingur NS og Ljósafell SU.
Bjartur er þó minnst breyttur
þeirra tíu skipa sem hingað
komu á sínum tíma því öll skipin
nema Bjartur hafa verið lengd.
Þegar Austurglugginn brá sér
um borð í Bjart síðastliðin þriðju-
dag voru hásetar í óða önn að gera
veiðarfæri klár fyrir væntanlegt
togararall Hafrannsóknarstofnunar,
en í ár fara fimm fiskifræðingar
með þeim Bjarts-mönnum í rallið.
Austurglugginn óskar áhöfn og
útgerð til hamingju með Bjart -
Megi gæfa og guð fylgja öllum
hans ferðum.
helgi@austurglugginn.is Afmœhsbarnið i höfninni, Neskaupstað.
Ahöfnin á Bjarti létu ekki afmælisfagntefja sig frá að undirbúa fyrir togararallið.
Þar sem þú ert
- þar erum við PÓSTURINN
www.postur.is
Alhliða
verktakastarfsemi
Hakí ehf. Neskaupstað
s. 892 5855
Ódýrastir um allt land!
Komdu í Bónus á E?ilsstöðum
Afgreiðslutími í Bónus á Egilsstöðum
Mónudag til fimmtudags
12.00 til 18.30
ÍEKKIM
limvinj
Föstudag 10.00 til 19.30
Laugardag 10.00 til 17.00