Austurglugginn


Austurglugginn - 06.03.2003, Side 5

Austurglugginn - 06.03.2003, Side 5
Fimmtudagur 6. mars AUSTUR • GLUGGINN - 5 Sneidingur sprengdur Verktakafyrirtækið Amarfell hefur hafið framkvæmdir við gerð sneiðings niður í gilið við Jökulsá á Dal við Kárahnjúka. Sneiðingur- inn verður 400 metra langur með 12% halla og botnar gilið við munna tveggja hjágangna sem Jökulsá verður veitt um meðan á gerð Kárahnjúkastíflu stendur. Amarfellsmenn hafa þegar sprengt fyrstu 3 sprengingarnar við gilið, þá fyrstu 11 þúsund rúm- metra síðan 27 þúsund rúmmetra síðan aftur 11 þúsund rúmmetra. Sprengingamar em það öflugar að þær koma fram á jarðskjálftamæl- um veðurstofunnar á Aðalbóli í Hrafnkelsdal og hafa mælst allt að einu og hálfú stigi á Richter. Sig. Að. Búið er að skafa lausu jaróefnin ofan af gilbarminum og bergið tilbúið til aó bora íþað. Sneiðingurinn mun liggju á bakvið klettinn sent skagar út i Jiiklu ofarlega á myndinni þar sem borarnir standa. Hann beygir síðan fyrir klettinn sem grafan stendur á og botnar gilið við lcekinn sem rennur milli jarðýtunnar og skúranna. Starfsmenn Malarvinnslunnur á Egilsstöóum eru að Ijúka við byggingu.grunns undir luis aðveitustöðvarinnar við Bessastaði í landi Hamborgar í Fljótsdal. Fremst stendur• Steinþór Guóni Stefánsson starfsmaður Malarvinnsl- unnar. Malarvinnslan reisir adveitustöð Malarvinnslan á Egilsstöðum vinnur nú að því að reisa aðveitu- stöð fyrir Landsvirkjun við Bessa- staði í Fljótsdal. Aðveitustöðin er reist til að deila raforku til nota við virkjunarframkvæmdir tengdar Kárahnjúkavirkjun. Að sögn Sveins Hallgrímssonar framkvæmdastjóra byggingar- deildar Malarvinnslunnar hófust framkvæmdimar seinni part des- embermánaðar. Afangaskil verða nú um miðjan mars þegar Malar- vinnslan lýkur jarðvinnu, gerð undirstöðu og húss. Verklok verða um miðjan mai þegar lokið verður gerð girðingar og grassáningu. Sveinn segir verkið hafa gengið vel og það sé á áætlun enda tíðin verið hagstæð í vetur. Sig. Að. Stefán Geirsson starfsmaður Arnarfells stendur við annan borinn sem notaður er til að bora liolur í bergið fyrir sprengiefnið. Holurnar eru að jafnaði 20 metra djúpar. Sólarkaffi var á Seyðisfirði í síðustu viku og fognuðu heimamenn að vonum þegar loks sást til sólar. Mynd: KÞ Aðstod þökkuð í síðustu viku sögðum við frá skemmdum vegna óveðurs á Seyðisfirði á dögunum. Vegna mistaka féll niður sá hluti greinarinnar þar sem Daníel Bjömsson, starfsmaður Sjóvár- Almennra, þakkar heimamönnum og öðmm fyrri góða aðstoð. Leiðrettist það hér með. Egilsstaðir Raftæki Lagnaefni Timbursala s. 470-1220 s. 470-1223 s. 470-1224 s. 470-1225 bveg@khh.is timbur@khb.is Reyðarfjörður s. 474-1207

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.