Austurglugginn


Austurglugginn - 06.03.2003, Blaðsíða 7

Austurglugginn - 06.03.2003, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 6. mars AUSTUR • GLUGGINN - 7 fullreynd? „Nei, það er svo fjarri því að ijarvinna sér fuiireynd, jafnvel þó forsætisráðherra vor segi það. Það sem hefiir vantað er áhugi og skilningur hjá jafnt eigendum fyrirtækjanna og ráðamönnum.“ Hún segir að annað hvort hafi menn viljað gleypa fjarvinnsluna með húð og hári, allt fyrir hana gera, eða þá að menn hafi ekkert viljað af henni vita - annað hvort í ökkla eða eyra. „Menn virðast ekki fyllilega hafa áttað sig á þeirri staðreynd að fjölbrcytni í atvinnu, ijarvinnslu meðal annars, treystir byggð í litlum þorpum betur en flest annað. Ef þú ekki hefur vinnu við hæfi þá að sjálfsögðu flyturðu þangað sem vinnuna er að hafa. Það er ekkert flókið. Hér á Stöðv- arfirði, eins og annars staðar úti á landi, er hins vegar stabíll vinnu- kraftur og fólk áhugasamt um fjöl- breyttari störf. Oft eru þetta konur með langa reynslu á vinnumarkaði sem sinna störfum sínum af alúð og samviskusemi og leggja metn- að sinn í að gera vel. Hvers vegna nýta fyrirtækin, að ekki sé minnst á ríkisvaldið, sér það ekki? Það er góðra gjalda vert að ráðast í milljarða framkvæmdir á vegum hins opinbera eins og nú hefur verið boðað en þær gagnast konum hins vegar mjög lítið - öfugt við fjarvinnsluna,“ segir Aðalheiður. „Við, nýir eigendur SMS, sjáum alla möguleika á því að þetta sé hægt, en þá aðeins að því gefnu að eigendur séu fólk sem tilbúið er að leggja á sig vinnu við að koma verkefninu á legg-“ Engin lög um opinber störf í 101 Reykjavík Fjarvinnsla líkt og sú sem Aðal- heiður leggur hvað mesta áherslu á að verði unnin úti á landi er til dæmis gagnainnsláttur fyrir fyrir- tæki og stofnanir, símsvörun og upplýsingaveita, sem er einmitt sú tegund ijarvinnu sem Aðalheiður telur að geti í æ ríkari mæli færst út á land. „Fjarvinnsla er vel þekkt í lönd- unum í kringum okkur, og mjög algeng til dæmis í Skotlandi, Irlandi og Noregi. Það er þörf á nýrri hugsun og framsýnni stjóm- málamönnum sem sjá og trúa því að það sé engin algild regla að öllum opinberum störfum sé sinnt innan svæðis 101 í Reykjavík, sum störf er nefnilega hægt að vinna hvar sem er með nýrri tækni,“ segir Aðalheiður, og bætir við að möguleikar séu óteljandi við fjar- vinnslu en tekur þó fram að til þess þurfi áherslubreytingar hjá stjómvöldum. Tækifærið nú En hvaða verkefni skyldu þá vera í gangi hjá fyrirtækinu núna, er eitthvað að gera? „SMS vinnur núna að skrán- ingu gamalla handrita í gagna- gmnn í samvinnu við Heimilda- stofnun. Meðal þess sem við emm að skrá eru alþingisbækur, svo það fór aldrei svo að við ynnum ekki við innslátt fyrir Alþingi, þó ekki væri það á vegum Halldórs Blöndal,“ segir Aðalheiður kímin og bætir við að við þessa vinnu hafi byggst upp þekking innan fyrirtækisins sem ekki var til staðar áður og kemur til með að nýtast fyrirtækinu vel. „Það má reyndar segja að allar götur síðan Islensk miðlun var stofnuð hér höfum við verið með fræðslu og kennslu jafnhliða vinn- unni. A dauðum tímum þegar lítið var að gera lét ég konumar mínar æfa sig í fingrasetningu og vél- ritun svo þær öðluðust meiri færni á lyklaborðið, sem er jú, forsenda þess að skrá gögn. Fjarvinnan hefur því nýst sem Ijamám jafn- hliða. Störf við símsvömn, upplýs- ingagjöf hvers konar, úthringingar, gagnainnslátt, heimasíðugerð og fleira því tengt em einnig störf sem við horfum til varðandi þá atvinnuuppbyggingu sem verður á svæðinu í kringum Reyðarljörð með tilkomu stóriðju þar, enda við kannski ekki beinlínis inni á aðal áhrifasvæði stóriðjunnar. Það er því tilvalið að setja þau störf niður hér“, segir Aðalheiður og hvíslar svo að fleiri hugmyndir séu á sveimi, en er allsendis ófáanleg að láta þær uppi að svo stöddu. „Þetta er eiginlega bara byrj- unin; heimurinn er í raun orðinn svo lítill með tilkomu Intemets og hraðvirkra tenginga að möguleik- amir em endalausir, þar sem fólk er nógu framsækið og nútímalegt í hugsun að kunna og vilja nýta sér það. Það er bara kominn tími til að tengja!“ sagði Aðalheiður Birgis- dóttir að lokum. helgi@austurglugginn. is Abbadísirnar enn á ferð Abbadísirnar eru, J'rá vinstri: Katrín Huld Káradóttir, Margrét Freyja Viðarsdóttir, Aóalhjörg Siguróardóttir, Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir, Berglind Ósk Ásgeirsdóttir, Margrétt Dögg Guógeirsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Hjördís Marta Óskarsdóttir. Laugardaginn 8. mars verða haldn- ir tónleikar í Valaskjálf á Egils- stöðum. Þar koma fram átta ungar stúlkur sem kalla sig Abbadísimar og syngja þekkt lög í anda sjöunda áratugarins. Skipuleggjandi er Ar- mann Einarsson tónlistarkennari í Fellaskóla. Það em þær Aðalbjörg Sigurð- ardóttir, Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir, Berglind Osk Guðgeirsdóttir, Mar- grét Dögg Guðgeirsdóttir, Hjördís Marta Óskarsdóttir, Katrín Huld Káradóttir, Margrét Freyja Viðars- dóttir og Sigurlaug Jónsdóttir sem em núverandi Abbadísir. Ferill þeirra er misjafn en upphaflegu Abbadísimar em gmnnur þessa hóps en nýlega bættust í hópinn þær Aldís Fjóla og Berglind Ósk. I tónlistartíma hjá Ármanni bað eitt sinn ein lítil snót um að fá að syngja lagið „Mama mia“ og við það vaknaði hugmyndin að til- einka Abba hópnum lítið „show“ vorið 2000. Þar með upphófst frægðarganga eða frægðarsöngur Abbadísanna. Það vom átta stúlkur á aldrinum 13 - 16 ára sem lögðu nótt við dag í gera þessa tónleika að vemleika. Tónleikamir sem haldnir voru fyrir fullu húsi um vorið sama ár þóttu mjög vel heppnaðir. I framhaldi af tónleikunum bauðst Abbadísunum að fara sem fulltrúar U.I.A. á Ijölmennt nor- rænt ungmennamót í Reykjavík sem ber nafnið „Kultur og ungdom“. Á þessu ungmennamóti komu þær fram á ýmsum stöðum, þar á meðal Broadway, Laugardalnum og Laugardalshöllinni með ýmsum þekktum hljómsveitum svo sem Rottweilerhundunum, Maus og Botnleðju og fleirum. Talið er að hátt í 10 þúsund manns hafi komið á mótið. Stúlkumar segjast hafa haldið að þar væri lokið þeirra ferli og Abbadísirnar sem heild væri liðin tíð en annað átti eftir að koma í ljós. Eftir þetta mót hætti Margrét Gunnarsdóttir og Hjördís Marta tók sér frí til að fara í málaskóla í Englandi. Þeim bauðst fljótlega eftir heimkomuna að taka þátt, fyrir hönd Islands, í ungmenna- móti í Danmörku sumarið 2001 á vegum UMFI. Þetta fannst þeim of gott tækifæri til að sleppa svo að þær hófúst strax handa að safna sér fyrir þessu ferðalagi. Þama bætast þær í hópinn þær Elsa Guðný Eiríksdóttir og Margrét Dögg Guðgeirsdóttir, báðar þá 16 ára frá Norður-Héraði. Þær segjast hafa gert allt mögu- legt til fjáröflunar, svo sem að syngja á hinum ýmsu árshátíðum, meðal annars á Hótel KEA á Akur- eyri, hjá KHB, á Egilsstöðum, Harmonikkufélagi Fljótsdalshér- aðs og fleimm. Eins héldu þær söngmaraþon fyrir utan KHB og söfnuðu áheitum. Þær segjast einnig hafa notið mikillar góð- vildar hjá fyrirtækum á Héraði og í Reykjavík sem hafi styrkt þær á einn eða annan máta. Mótið fór fram í Fuglsö Center í Danmörku. Þetta mót var minna í sniðum en mótið í Reykjavík og var mikið lagt upp úr því að ung- mennin kynntust hvort öðm og einnig landi og þjóð hvers annars. Þar tóku þær lagið á morgun- verðarfundi og svokölluðu menn- ingarkvöldi við góðar undirtektir. Enn og aftur héldu Abbadísim- ar að nú væri ævintýrinu lokið en eins og fyrr reyndust þær ekki hafa rétt fyrir sér. Þær Valdís Vaka Kristjánsdóttir og Linda Hrönn Geirsdóttir ákváðu að hætta eftir þessa ferð svo þær voru einungs 6 sem þáðu boð um að fara til Svíþjóðar árið 2002 og þar unnu þær keppnina með sínu Abbapró- grammi með glæsibrag. Mótið í Svíþjóð var með öðm fyrirkomulagi en fyrri mót sem þær höfðu sótt en ekki síðra. Meira var um fyrirlestra og einnig var boðið upp á allskyns skemmti- lega hluti svo sem veiði, litbolta, freestyle, kanóferðir, sjóskíði, skoðunarferð um nornasafn og margt, margt fleira. Og eins og fyrr segir unnu þær svo með sínu frábæra prógrammi í svokallaðri skemmtiatriðakeppni síðasta kvöldið. Bakgmnnur og aldur þessara stúlkna er mismunandi en mest áberandi em stúlkur úr Fellaskóla sem hafa flestar hlotið kennslu hjá Ármanni Einarssyni, tónlistar- kennara í Fellaskóla, og má því segja að honum hafi tekist vel til með kennslu því að nemendum hans hefur gengið vel í ýmsum keppnum, til dæmis í Samfés sem em samtök Félagsmiðstöðva. Katrín Huld, sem tók þátt í söngvakeppni Samfés árið 2001, vann þá keppni og Sigurlaug var valin efnilegasti keppandinn. Sigurlaug hefur einnig gefið út plötu í samvinnu við föður sinn, Jón Arngrímsson, en hann hefur fengist við tónlist ffá unglings- árum. „Eg söng reyndar bara eitt lag,“ sagði Silla eins og hún er ætíð kölluð, „svo að það er varla hægt að tala um þetta,“ segir hún mjög hógvær. Stúlkurnar eru búnar að æfa mikið og munu leggja sig allar sem ein ffam við að þetta takist sem best. Blaðamanni Austur- gluggans fannst þær standa sig vel á æfíngu þar sem hann fékk að verða þess heiðurs aðnjótandi að fá að hlusta á nokkur lög. Þessir tónleikar verða hinir glæsilegustu og hefur Signý Ormarsdóttir hannað sérstakan búning á Abbadísimar. Verða á þessum tónleikum flutt 25 vel valin lög og má búast við því að stúlkumar taki þau með glæsibrag eins og þeirra er vandi. ÓHB Gyða Stefánsdóttir verður á Austurlandi 20 - 30 mars Vil gjaman taka að mér nemendur með lestrar, skrift eða stærðfræði erfíðleika. r Aratuga reynsla í gmnn- og framhaldskólum Vinasamlega hringið í síma 475 1248 eða 892 1958

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.