Austurglugginn - 06.03.2003, Qupperneq 11
Fimmtudagur 6. mars
AUSTUR • GLUGGINN - 11
Standa sig vel á skídum
Elmar Bragi Einarsson brunar hér niður brekkuna.
Mynd: Guðmundur Jakobsson
Ungt fólk frá UÍA stóð sig vel á
bikarmótum á skíðum um helgina.
Á bikarmóti SKÍ 13-14 ára sem
fram fór í Bláfjöllum sigraði Öm
Ómarsson í svigi, Elmar Bragi
Einarsson varð í þriðja sæti og
fleiri austfirðingar komu þar á eftir.
Einnig kepptu strákarnir í stór-
svigi og stóðu sig vel þar sem
Elmar Bragi varð í sjöunda sæti.
Stelpumar kepptu í svigi og stór-
svigi og stóðu sig einnig vel, Silja
Hrönn Sigurðardóttir varð í tíunda
sæti i svigi og ellefta sæti í stór-
svigi.
Bikarmót 15-16 ára fór fram í
Hlíðarfj alli og var tvöfalt svigmót.
Þar varð Ama Mekkín Ragnars-
dóttir í öðm og þriðja sæti og
Ingibjörg Þ Jónsdóttir í fímmta og
sjötta sæti.
sigad@austurglugginn
Sameining og önnur eining
Hversu mörg af okkur sem eldri
emm kannast ekki við bamið eða
unglinginn sem kemur að matar-
borðinu, lítur yfir það sem á borð-
um er og segir síðan hátt og skýrt:
Ég borða þetta ekki. Af hverju
ekki er spurt, og ekki stendur á
svarinu: Mér finnst þetta vont. En
þú hefur ekki smakkað þetta elsk-
an, er maldað í móinn. Alveg
sama, þetta er samt vont. Og þá er
það bara útrætt mál. Punktur. Og
við eldra fólkið sitjum ráðþrota
yfir þessum rakalausa málflutningi
smáfólksins. Bara!!
Já það er nú það. En það em
fleiri en smáfólkið sem á það til að
bregða fyrir sig algjörri rökleysu
þegar það flytur sitt mál. Eins og
mörgum er kunnugt eiga sér nú
stað viðræður um hugsanlega sam-
einingu Stöðvar- og Búðahrepps.
Það var samþykkt í sveitarstjóm-
um beggja hreppanna seint á
síðasta ári að fara í þetta verkefni,
og síðan einhentu menn sér í það á
fyrstu dögum þessa árs að marka
þá vinnu sem í þarf að fara til að
hægt sé að leggja mat á hvort
raunhæft sé að leggja til samein-
ingarkosningar eður ei.
Kosin var samstarfsnefnd um
sameiningu svo sem lög gera ráð
fyrir. Starf þessarar nefndar er
nokkuð mikið umfangs og ekki
komið þaó langt að skilað hafí
verið áliti þar um.
Engu að síður ganga um völlinn
sjálfskipaðir sérfræðingar um málið
og staðhæfa um ókosti þess að
sameina þessa tvo hreppa. Og
þegar er spurt um rökin fyrir þeirra
niðurstöðu fer fyrir þeim eins og
bömunum við matarborðið: Það er
bara vitlaust að sameina. Ég vil
heyra rökin, malda ég í móinn, ekki
síst þar eð ég sem formaður við-
komandi nefndar veit að fyrir sam-
einingu þessara hreppa em til viss
rök. Það þarf engin rök, þetta er
bara út úr kortinu, og svo enda þeir
vitleysuna með að segja: Ykkur
væri nær að gera eitthvað annað.
Já það er nú það. Gagnvart smá-
fólkinu reynir maður að hafa skiln-
ing og biðlund, en gagnvart rígfull-
orðnu fólki sem vill láta taka sig
alvarlega, sem ber fyrir sig þvílíka
rökleysu er maður kjaftstopp.
Af hverju
sameiningarviðrædur?
Á fjögurra ára fresti bjóða menn sig
fram til setu í sveitarstjóm. Fram
fara kosningar og þeir sem ná kjöri
em þar með orðnir sveitarstjómar-
menn til næstu fjögurra ára. Þar
með hefst starfið, hinn stálkaldi
raunvemleiki, vinna í þágu þess
samfélags sem menn er kjömir af.
Valdimar Másson orðaði það svo í
grein sem hann reit í Austurglugg-
ann þann 13. febrúar síðastliðinn að
honum finnist ótrúlegt að Fram-
sóknarmenn í Búðahreppi (á trú-
lega við í sveitarstjóm Búðahrepps)
ætli að keyra sameiningu í gegn og
stuðla þannig að sameiginlegu
gjaldþroti viðkomandi hreppa.
Þama sjáum við skýrt dæmi um
unglinginn rakalausa við matar-
borðið. I sömu grein minnist hann á
sameiningadrauma Framsóknar-
manna. Ég get upplýst Valdimar, og
í leiðinni þá sem þetta lesa um, að
ég á mér enga sérstaka sameining-
ardrauma, minn eini draumur á
þessu sviði felst í því að ljúka því
verki sem ég tók að mér fyrir sam-
félagið við síðustu kosningar. í því
felst meðal að því að huga að því á
hverjum tíma hvað betur má fara i
rekstri sveitarfélagsins, þannig, að
samfélagið standi sterkar eftir til að
takast á við framtíðina.
Þess vegna bar ég fram tillögu
um, að þessir hreppar ásamt Fá-
skrúðsfjarðarhrepp skoðuðu hag af
því að sameinast, og skilyrti að
íbúamir fengju síðan að kjósa um
hvað þeir vildu gera. Sveitarstjóm
Fáskrúðsfjarðarhrepps vildi ekki
leyfa sínum íbúum að segja sinn
hug um málið í kosningu, svo eftir
stóðu þeir tveir sem nú ræðast við.
Það var miður að mínu mati að
Fáskrúðsfjarðarhreppur skyldi ekki
vilja koma til þessara viðræðna, því
ef skoðun um sameiningu hefði
sýnt að sóknarfærin til framtíðar
fælust í sameiningu þessara hreppa,
þá er að mínu mati óábyrgt af
sveitarstjómarmönnum viðkomandi
hrepps að leyfa ekki íbúunum að
kjósa þar um.
En fyrst og síðast vil ég biðja
íbúa Stöðvar og Búðahreppa að
bíða og sjá hvað út úr þeirri stað-
reyndasöfnun kemur sem nú er
unnið að, og síðan á þeim gmnni að
mynda sér sínar skoðanir á málinu.
Það liggur ekkert á, við skulum
saman íhuga vel hvemig við getum
best brugðist við í stöðunni. Gleyp-
um ekki hráan þann boðskap sem
rakalausu sjálfskipuðu sérfræðing-
amir bera á borð.
Sefur sá sem kallar ræs?
Gunnar Geirsson skrifar grein í
Austurgluggann þann 6. febrúar
síðastliðinn sem hann nefnir
VAKNA. VAKNA!. Greinin var að
mestu leyti vel skrifúð ef frá er
talið sá rottuholubardagi með til-
heyrandi samsæriskenningum sem
Gunnar dettur inn í um miðbik
greinarinnar.
Ég hef aldrei skilið það þegar
menn væna þau fyrirtæki sem
traustast standa undir burðarásum
atvinnulífs í sinum byggðum um
einhver annarleg vinnubrögð bak
við tjöldin, samfélaginu til miska.
Það er eins og þetta sé einhver
minnimáttarkennd viðkomandi ein-
staklinga. Að mínu mati eiga menn
að bera jákvæðan en jafhframt heið-
arlegan gagnrýninn hug til þessara
fyrirtækja, hvar væm þessu litlu
samfélög ef þeirra nyti ekki við.
Gunnar fór inná markaðs-
setningu Fáskrúðsfjarðar, kosti bú-
setu og fjölbreytni þjónustunnar.
Hann sakar sveitarstjómarmenn um
að hafa brugðist í markaðssetningu
staðarins, að þeir hugsi ekki um
hag umbjóðenda sinna, skorist und-
an að taka þátt í leiknum og telur
hann tapaðan mæti menn ekki til
leiks fyrr en við afflaut.
Þegar Gunnar skrifaði greinina
hafði verið fjallað þrisvar um það í
beinni útsendingu frá sveitarstjóm-
arfundum hvemig menn væm að
fara í kynningarátak staðarins,
einnig hvemig brugðist var við til
að eyða biðlista á leikskóla. Einnig
var það öllum ljóst að til þess að
Búðstrendingar gætu tekið fullann
þátt í að laða til sín fólk til búsetu
varð að flauta okkur inná leikinn.
Það innáflaut kom ekki fyrr en við
opnun tilboða í Fáskrúðsfjarðar-
göngin.
Eining um samfélagið
Burtséð ffá allri sameiningu þá tel
ég að við sem búum svæðið hér á
Suðurfjörðum verðum að temja
okkur einingu um það samfélag
sem hér er. Það er ljóst að mínu viti
að svæðið í heild verður aldrei
sterkara en sá byggðakjami sem
veikast stendur. Þá framfaratíma
sem nú fara í hönd eigum við að
nýta sem framast er kostur fyrir
sveitarfélögin og íbúana sem í þeim
búa. Því verki Ijúkum við ekki með
rökleysu og sundmng, þar verður
að koma til jákvæðni, heiðarleiki
og dirfska fyrir því samfélagi sem
við viljum búa komandi kyn-
slóðum.
Gudmundur Þorgrímsson
Oddviti Búöahrepps
Tölvunarfrœðingar framtíðarinnar í leikskólanum Lyngholti ú Reyðarfirði.
Leikskólar fá tölvur
Sparisjóður Norðfjarðar í Fjarða-
byggð hefúr gefið leikskólum á
Eskifirði, Reyðarfirði og í Nes-
kaupstað tölvur með Krónu og
Króna leikjum og ýmsu fleiru
skemmtilegu. Bömin em að
vonum ánægð með gjafímar eins
og sést á meðfylgjandi mynd.
Theodór Alfreðsson, Sigurður Hallur Jónsson, Arnjinnur Ægir Steingríms-
son ogAtli Már Magnússon kampakátir við undirritun.
BN '96 fær þjálfara
Nú í vikunni var undirritaður
samningur milli forráðamanna
BN'96 og þeirra Theodórs Al-
freðssonar og Amfinns Ægis
Steingrímssonar, um að þeir taki
við þjálfún félagsins. Stjóm BN
ákvað að leita til þeirra félaga
vegna þekkingu þeirra á knatt-
spyrnu, og má nefna að þeir hafa
fylgst með ensku úrvalsdeildinni
frá stofnun hennar og mun sú
þekking koma liðinu til góða.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur
samningur er gerður hjá BN og
markar hann tímamót hjá félaginu.
Framtídin björt
Samningur þessi er til tveggja ára
og að honum loknum er vonast til
að liðið verði keppnishæft í efri
deildum Islands.
„Það er minn draumur, líkt og
annarra í stjóm félagsins, að BN
nái að klífa upp metorðastiga
íslenskrar knattspymu í náinni
framtíð og hver veit nema að
BN'96 verði fyrst liða frá Islandi í
meistaradeild Evrópu,“ var haft
eftir formanni BN Sigurði Halli
Jónssyni.
Stjóm og leikmenn BN em í
skýjunum vegna ráðningu þeirra
félaga og greinilegt er að menn em
til í að svitna blóði fyrir nýráðna
þjálfara.
Þeir félagar voru svo viðstaddir
sína fyrstu æfingu sem þjálfarar
síðastliðið sunnudagskvöld.
„Mannskapurinn er sterkur á að
líta og vonandi náum við að halda
þeim sem fýrir em, við reynum
eftir fremsta megni að spila sem
mest með heimamönnum,“ sagði
Teddi eins og Theodór er kallaður
dagsdaglega. Aðspurður sagði
Ægir „það verða einhverjar breyt-
ingar á leikskipulagi og ætlum við
að koma með vel undirbúið lið til
keppni í sumar.“
„Við sjáum BN'96 sem rísandi
félag sem mun spila við þá bestu í
framtíðinni.
Ég hef mikla trú á þeim
félögum og vona að þeim gangi
vel með félagið næstu tvö árin.
Þeir hafa góða þekkingu á leiknum
og eiga eftir að halda góðum aga
og góðum móral í liðinu. Með þá
sem þjálfara og þennan sterka
mannskap getur maður ekki annað
en verið bjartsýn á framtíðinna,"
sagði Sigurður Hallur að lokum.
Því má svo bæta við að BN
hefur fengið liðsstyrk, þar sem
heimamaðurinn Grétar Sigfinns-
son er komin aftur úr atvinnu-
mennsku í Danmörku, þar sem
hann spilaði með Colden sem er
sterkt fyrstu deildarlið á Jótlandi.
Grétar á eftir að vera gríðarlegur
liðsstyrkur í annarrs mjög sterkan
hópBN'96.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu,
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
Önnu Bjargar Sigurðardóttur, Gunnlaugs-
stöðum á Völlum.
Guðrún M. Karlsdóttir
Pálína M. Karlsdóttir
Sigurður Karlsson
Valgerður M.Karlsdóttir
Finnur N. Karlsson
Trausti Gunnarsson
Jón Gunnlaugsson
María K.Pétursdóttir
Einar Jónsson
Rannveig Ámadóttir
bamaböm og langömmuböm