Austurglugginn - 16.01.2003, Qupperneq 4
4 - AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 16. janúar
Austurglugginn
www.austurglugginn.is
Utgefandi: Utgáfufélag Austurlands ehf
Prentun: Héraðsprent ehf
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Brynjólfur Þorvarðarson 869 8643 ritst@austurglugginn.is
Blaðamenn:
Katrín Oddsdóttir 864 1417 frett@austurglugginn.is
Helgi Seljan 849 7386 helgiseljan@torg.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri:
Erla Traustadóttir 477 1571 augl@austurglugginn.is
Skrifstofa Austurgluggans er opin 8-4 alla virka daga.
Auglýsingasími: 477 1571
Fax: 477 1756
477 1750J 477 1755
Grínuppspretta
á besta tíma
Undirrituðum hefur alltaf þótt frekar vænt um
ríkissjónvarpið, sjónvarp allra landsmanna. Ríkissjón-
varpið hefur ákveðnu hlutverki að gegna, það hefur
ákveðinn tilgang, sem réttlætir afnotagjöldin, réttlætir
ríkisafskipti á samkeppnismarkaði. Það er hlutverk
ríkissjónvarpsins að sinna menningu og listum, að
uppfræða landslýðinn og sýna honum sannleikann í
fréttaflutningi, án tillits til fjárhagslegs ávinnings.
Það er því fyllilega í takt við hlutverk ríkissjónvarpsins
að taka til sýningar fræðsluefni það í átta þáttum sem
sýnt er á fímmtudagskvöldum, strax að loknu
Kastljósi, á besta tíma. Þeir sem misst hafa af fyrstu
ijórum þáttunum geta enn náð að njóta síðustu
fjögurra, njóta uppfræðslugildis þeirra en ekki síður
skemmtanagildis. En tilvist þessa fræðsluefnis hefur
varla farið fram hjá neinum þeim sem á annað borð
fylgist með sjónvarpi, svo vel hefur það verið kynnt og
auglýst, í öllum dýrustu og bestu auglýsingahléunum.
Tímasetningin er eins og best verður á kosið, hér í
upphafí kosningabaráttunnar. Þótt reyndar hafi gleymst
í kynningu á þáttunum að taka fram, um hvað þeir eru,
þá er það deginum ljósara, þetta er snilldarlega saman-
sett byrjendafræðsla í framleiðslu á pólitískum áróðri.
Alla vega gerir undirritaður ráð fyrir því að um
byrjendafræðslu sé að ræða, að verið sé að kynna til
sögunnar hin ýmsu bolabrögð, útúrsnúninga og stað-
reyndamisnotkun sem nota má með góðum árangri í
alvöru áróðri.
Það er helst að megi gagnrýna fræðsluþættina einmitt
fyrir það að gera ekki áhorfendum ljóst að um
byrjendafræðslu sé að ræða. Þessi yfirsjón gæti orðið
til þess að einhverjir haldi að verið sé að sýna hvemig
alvöru áróður sé búinn til, með þeim augljósu
afleiðingum að þeir verða að aðhlátursefni um leið og
þeir reyna að beita því sem þeir hafa lært.
Þættimir hafa einnig gríðarlegt skemmtanagildi,
jafnast á við áramótaskaup eða spaugstofu. Það er
óhætt að benda aðstandendum ríkissjónvarpsins á að
útskrift að handriti þáttanna gæti orðið metsöluefni nú
fyrir kosningamar, og þættimir á DVD í gjafaöskju
gæti orðið sumargjöf allra stjómmálamanna.
Um leið og undirritaður fer þess á leit við
ríkissjónvarpið að þættimir verði endursýndir sem
oftast, vill hann þakka höfundi handrits, Hannesi H.
Gissurarsyni, fyrir stórkostlegt framlag. Hér hefur
Hannes sannað það enn og aftur að hann er ein helsta
uppspretta gríns og gleðskapar sem þjóðin á.
BÞ
Fjardabyggð:
Bæjarstjórn samþykkir
fjárhagsáætlun
Bæjarstjóm Fjarðabyggðar sam-
þykkti á fundi sínum þann 9. janú-
ar síðastliðinn Fjárhagsáætlun
Bæjarins fyrir árið 2003, þegar
seinni umræða um áætlunina fór
fram.
Flelstu niðurstöður fjárhags-
áætlunar aðalsjóðs, í þúsundum
króna:
Tekjur: 1.113.465
Gjöld: 1.159.395
Fjármunatekjur: 25.708
Stærstu málaflokkar eru þessir,
í þúsundum króna:
Fræðslumál 466.327 eða 48,1%
af skatttekjum; Æskulýðs- og
íþróttamál 147.899 eða 15,2% af
skatttekjum; Sameiginlegur kostn-
aður 90.246 eða 9,3% af skatt-
tekjum; Menningarmál 66.603 eða
6,8 % af skatttekjum; Félags-
þjónusta 60.516 eða 6,2% af
skatttekjum.
Fjárhagsáætlun samstæðu-
reiknings Fjarðabyggðar sýnir að
rekstrartekjur eru áætlaðar 1.553
milljónir króna og rekstrargjöld
1.506 milljónir króna. Þar af eru
afskriftir 137 milljónir króna og
fjármunagjöld 61 milljónir króna
Flelstu ljárfestingar em:
• Byggingaframkvæmdir við
Grunnskóla Eskifjarðar, 40
milljónir króna.
• Byggingaframkvæmdir við
Nesskóla, 45 milljónir króna.
• Byggingaframkvæmdir við
Grunnskóla Reyðarljarðar, 30
milljónir króna.
• Til gatnagerðar er varið 30,6
milljónum króna og tekjur á
móti nema 14,8 milljónum
króna.
• Til endurbyggingar á sundlaug-
inni í Neskaupstað er varið 12
milljónum króna.
• Bygging lausrar kennslustofu
við leikskólann Sólvelli, 8
milljónir króna.
• Til fráveituframkvæmda er
varið 10,5 milljónum króna.
• Til framkvæmda við Vatnsveitu
er varið 17 milljóna króna
Til hafnarframkvæmda er varið
120 milljónum króna en þátttaka
ríkissjóðs í framkvæmdunum
nemur 64 millj. kr. Stærstu út-
gjaldaliðir hafnarframkvæmda eru
vegna 80 metra stálþils við loðnu-
verksmiðju á Eskifirði, byggingu
skjólgarðs við höfnina í Neskaup-
stað og undirbúningsframkvæmdir
vegna álvershafnar í Reyðarfirði.
BÞ
Huldumadurinn
Flalldór Blöndal, forseti Alþingis
kom við á Stöðvarfirði í gær. Að
vísu fór Halldór Blöndal huldu
höfði og hitti enga nema báða
stuðningsmennina sína, að því er
næst verður komist. Halldór
Blöndal hitti ekki framkvæmda-
stjóra SMS ehf sem hefur reynt að
fá botn í það hvort forsetinn ætlar
að standa við það loforð sem hann
gaf á fundi hér í bæ í fyrravetur
þess efnis að SMS fengi eitt starf
flutt til sín frá hinu háa Alþingi.
Þá lofaði Halldór Blöndal því
að í staðinn fyrir störfm sem fóru
til Olafsfjarðar, en Aðalheiður
Birgisdóttir framkvæmdastjóri
SMS hafði sótt um, að SMS fengi
í sárabætur að svara í símann fyrir
Alþingi. Ekkert bólar á starfmu
enn og verður að telja hverfandi
líkur á að það komi nokkum tíma.
í kjölfar fundarins á Stöðvar-
firði síðastliðinn vetur, skrifaði
Halldór Blöndal bréf til SMS og
segir þar m.a. að á fundi forsætis-
nefndar Alþingis 27. nóvember
2001 hafi eftirfarandi verið bókað:
„Undir liðnum önnur mál
greindi forseti frá því að hans vilji
væri sá að næsti áfangi í stuðningi
Alþingis við fjarvinnslu á lands-
byggðinni verði fólginn í þvi að á
Olafsfirði verði unnið að skönnun
Alþingistíðinda frá endurreisn Al-
þingis 1845 og á Stöðvarfirði verði
komið upp símsvömn fyrir Al-
þingi. Hann sagðist vænta þess að
ljárveiting fáist til fyrra verkefnis-
ins í fjárlögum fyrir árið 2002 en
ekki lægi fyrir hversu fljótt yrði
hægt að hrinda síðara verkefninu í
framkvæmd. Sagðist hann hafa
falið rekstrar- og fjármálastjóra að
vinna að framgangi þess máls.“
Tilvitnun lýkur.
Bréfinu lýkur svo með að hann
segir að ekki sé ljóst hvort hægt
verði að flytja símvörslu til
Stöðvarfjarðar á þessu ári, það er
árinu 2002.
Síðan heyrðist hvorki hósti né
stuna frá forseta Alþingis um þetta
mál og þann 11. nóvember 2002
skrifaði framkvæmdastjóri SMS
forseta Alþingis bréf þar sem hún
spurðist fyrir um hvað liði
flutningi á símvörslu á vegum
Alþingis til Stöðvarfjarðar, eins og
forseti hcfði tilkynnt á fundi hér.
„í framhaldi af bréfi forseta
Alþingis þann 18. mars sl., í kjöl-
far fundar hans með forsvars-
mönnum SMS ehf. og öðmm
Stöðfirðingum, óskar undirrituð
eftir upplýsingum um hvað líður
flutningi símvörslu á vegum Al-
þingis til Stöðvarfjarðar." Tilvitn-
un lýkur og undir bréfið skrifar
Aðalheiður Birgisdóttir.
Þann 24. desember sl. barst
SMS svo bréf frá forseta Alþingis
þar sem segir m.a. þetta:
„A næsta ári verður farið yfir
fjarskipta- og símamál Alþingis og
kemur þá í ljós, hvort rétt sé að
flytja hluta af símþjónustunni út á
land. Jafnframt er til athugunar,
hvort hægt sé að flytja önnur störf,
sem falla undir Alþingi eða stofn-
anir þess, út á land.
Rétt er að geta þess, að 4
milljóna króna framlag til SMS-
Samskipta með síma ehf. er á fjár-
lögum næsta árs.“ Tilvitnun lýkur
og Halldór Blöndal skrifar undir.
Þarna kýs Halldór Blöndal að
vera með útúrsnúninga og blanda
saman alls óskyldum málum. Þetta
fjögurra milljóna króna framlag er
vegna verkefnis við skráningu
handrita frá 16. öld sem fram-
kvæmdastjóri SMS varð sér úti um
upp á eigin spýtur og alveg án
Björgvin Valur Guðmundsson.
hjálpar Halldórs Blöndal. Það er
því honum og starfinu sem hann
hét Stöðfirðingum á opnum fundi
hér allsendis óviðkomandi. Og
ekki hjá því komist að spyrja: Af
hverju segir Halldór Blöndal bara
ekki satt? Að það verði ekki um
neinn flutning á starfi að ræða til
Stöðvarfjarðar.
Það hlýtur að vera ljóst úr því
sem komið er að það er ekki
nokkur vilji fyrir því hjá Halldóri
Blöndal að Alþingi flytji störf út á
land, önnur en þau sem hann færði
vinum sínum á Ólafsfirði i fyrra-
vetur. í aðdraganda sveitarstjóma-
kosninganna. Það dugði sem betur
fer ekki til, því Ólafsfirðingar voru
nógu skynsamir til að fella íhaldið
í þeim kosningum.
Það er ekkert skrýtið að forseti
Alþingis hafi farið huldu höfði á
Stöðvarfirði því ýmsir hér eiga sitt
hvað vantalað við hann eins og
hann komst að raun um á fúndin-
um hér forðum.
Björgvin Vaiur Guðmundsson
ritstjóri Bœjarslúðursins
Simnet.is/svartifoiinn