Austurglugginn


Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 5

Austurglugginn - 06.05.2005, Síða 5
Föstudagur 6. maí AUSTUR • GLUGGINN 5 Skák og mát Þá er páfinn loksins dáinn drottni sínum. Alltaf gaman að byrja grein með orðaleik. Þessi grein mun sem sagt fjalla um páfann en þó aðallega um páfakjörið hið nýja. Eg byrja á útúrdúr. Árið 2000 varð ég svo frægur að sjá Jóhannes Pál páfa númer 2 með allsberum augum. Ég og tveir félagar mínir, þeir Tobbi barítón og Kári kroppur höfðum verið á flakki um Austur- Evrópu í nokkrar vikur er við komum til Rómar en hún er rómuð fyrir guðdómlega fegurð (sko ann- ar orðaleikur). Er við mættum, sveitastrákarnir ungu, í hina öldr- uðu stórborg höfðum við ekki hug- mynd um að þessa sömu viku var geysilega stór kaþólikkahátíð í Róm en þegar við sáum alltaf si- fellt fleiri trúarhópa og skáta hóp- ast saman hvar og hvenær sem var, syngjandi Guði til dýrðar þá fórum við að leggja saman tvo við tvo en fundum samt ekki svarið þannig að við leituðum svara hjá einhverj- um dansandi vegfarendanum og fengum þá að vita að hátíð er bar heitið Jubileum 2000 væri ný byrj- uð en hún næði hámarki í lok vik- unnar en í borginni væru um 1,5 millj- ón túrista, allsstaðar úr heimi num . Okkur fannst það sniðugt en spáðum ekkert meira í því, héldum að við kæmumst upp með að láta sem ekkert bæri á, við skyldum bara túristast eins og okkur var einum lagið án þess að taka eftir syngj- andi trúartöffurum en nei, allt kom fyrir ekki. á þriðja degi var ólíft að vera úti sökum mannfjölda. Maður komst ekki í strætó og ekki komst maður með neðanjarðarlest nema maður sætti sig við að bíða eftir að fjórar lestar væru farnar og troða sér í þá fimmtu og klessa andlitinu upp við rúðuna og láta einhverja ókunnuga hendi klóra sér í rasskinninni. I þokkabót var um og yfir 40 stiga hiti í borginni sem er rúmlega alltof mikið fyrir ísklumpa frá Islandi. Samt fannst mér dvölin í Róm yndisleg enda auðvelt að venjast borg sem bíður upp á slíka fegurð. Jæja, í lok vikunnar ákváðum við að kíkja i Vatíkanið og lögðum af stað snemma að morgni og eld- hressir og til í allt... nema kannski það sem beið okkur. Á Péturstorg- inu beið okkar heilt Island, rúm- lega 300.000 manns, dansandi og syngjandi og veifandi þjóðfánum og í almennu stuði. Við fórum að sjálfsögðu inn í miðja þvöguna til að taka þátt í ruglinu en sungnir voru meðal annars fótboltasöngvar á borð við „sýnið hvað þið getið, boltann í netið” en ætli textinn hafi ekki frekar verið eitthvað á þessa leið : „Páfinn, hann er pólskur, einnig kaþólskur” . Stemmningin var sem sagt svipuð og sú sem maður sér á knattspyrnuleikjum á Spáni eða Italíu en við ákváðum að spyrja hvað væri eiginlega í gangi var okkur sagt að sjálfur Palli páfi væri væntanlegur í partýið. Það þótti okkur ekki leið- inlegt og reyndum að komast sem næst sviðinu og komumst nokkuð nálægt. Hitinn var slíkur þennan dag að sprauta þurfti yfir mann- skapinn vatni úr slökkviliðsbílum. Við þurftum að bíða hátt á þriðja tíman eftir að karlinn í búrinu mætti. Þegar hann loksins gerði það ætlaði allt um koll að keyra, búið var að skora mark!! Gott ef maður heyrði ekki einhvern hrópa GOOOAAAALLL!!! Eftir þriggja tíma bið eftir full- trúa skapara heimsins, Drottins Guðs almáttugs í 42 gráðu hita horfum við á gamla manninn sem maður hafði svo oft telft við í ca 10 mínútur þar sem hann veifaði veiklulega höndunum til að blessa hópinn og ávarpaði lýðinn á tungumáli sem ég skyldi ekki, fór- um við. Enda tilganginum náð, við sáum sjálfan páfann. Skipti engu máli hvað hann sagði, það var ör- ugglega eitthvað mjög skemmti- legt og hressandi, nú gátum við sagt montsögur af því þegar við sáum Jóhannes Pál páfa, nr 2. En að öllu gamni sleppt þá sá maður og lærði hvað einn maður gat haft brjálæðisleg áhrif á milljónir manna og skelfdi það mann um leið og það heillaði, eins gott að maðurinn var góðhjartaður en ekki einhver Adolf Hitler eða forseti eina núlifandi heimsveldisins. En vá, þetta er lengsti útúrdúr sem ég hef orðið vitni að, hvað þá tekið þátt í. Ég sagðist ætla að fjalla mest um páfakjörið sem stendur yfir núna (og er jafnvel yf- irstaðið er þetta blað kemur út). Næ því ekki en get sagt örfá orð engu að síður. Hef svolítið verið að velta þessu fyrir mér. Nú er ekki nóg að kjósa arftaka Jóhannesar í venjulegum, hefðbundnum kosningum heldur þarf að kjósa í sjötíu og eitthvað skipti áður en hægt er að kjósa nýja sendiboða Guðs og ekki er hægt að tilkynna kosninguna í gjallarhorn heldur þarf að brenna atkvæðaseðlana og segja Rómverj- um frá gangi mála með reiknum sem kemur út úr strompinum. En hvað ef það kviknar í Síxtínsku kapellunni? Fólk myndi ekkert fatta þó svartan reyk leggði frá strompinum, kardinálarnir brynnu inni og enginn fattaði neitt. Það yrði frekar vandræðanlegt myndi ég segja. Flest bendir til þess að „Rottweiler Guðs” verði valinn en hann ber þetta flotta gælunafn sök- um þess hversu ótrúlega íhalds- samur og staðfastur hann er gagn- vart trúnni og kirkjunni og gildum þess. Ég er hins vegar á öðru máli. Ég vil fara i akkurat öfuga átt. Ég vil að afrísk lesbía verði næsti páfi heims. Þar fengi heimurinn mjög sanngjarnan og líbó talsmann Guðs enda í minnst þremur minni- hlutahópum. Betra væri einnig ef næsti páfi sé aðeins betri að tefla en sá síðasti, það gerir klósettferð- ina enn meira spennandi fyrir vik- ið. Gangið á Guðs vegum og hægt um gleðinnar dyr. Eftir Björgvin Gunnarsson Frá * Lesendum Hérað og Fjarðabyggð Stöófirðingur hringdi: „Ég hef verið áskrifandi að Austurglugg- anum allt frá því að hann byrjaði að koma út fyrir nokkrum árum. Mér hefur alltaf fundist áherslan á Hérað og Fjarðabyggð vera of mikil og nú er svo komið að þið fjallið nær eingöngu um þessa staði. Það virðist ekkert vera í fréttum nema Kárahnjúkar og ál- ver og það eina sem heyrist frá hinum stöðunum er þegar eitthvað slæmt gerist. Þið eruð að verða ná- kvæmlega eins og RÚV!“ Furðuleg ummæli... Guómundur Magnússon skrif- aði: „Guðmundur Hraunljörð seg- ir í viðtali við Austurgluggann 21. apríl sl., að upphaflega hafi verið talað um að Svæðisskrifstofa mál- efna fatlaðra yrði á Reyðarfirði. Þetta er þvættingur, enda rökin byggð á sögusögnum. Orðrétt seg- ir G. H.: „...en þar flæktu menn þetta alltof mikið og séu sögurn- ar sem ég hef heyrt réttar þá hugnaöist mönnum ekki að hafa fatlað fólk í bænum sínum.” (Leturbr. G.M.) Hér vænir Guðmundur heilt byggðarlag um að amast við fotl- uðu fólki. Á sínum tíma kom það í hlut stjórnar Félags þroskaheftra á Austurlandi að ákveða staðsetn- ingu Vonarlands. Stjórnin klofnaði í málinu. Þrír mæltu með Egils- stöðum, en tveir með Reyðarfirði. Vonarlandi stóð til boða lóð á Reyðarfirði. Er það til marks um það að vilja ekki „...hafa fatlað fólk í bænum sínum”? Það leiddi síðan af sjálfu sér, að Svæðisskrif- stofa málefna fatlaðra yrði á sama stað og Vonarland. Ég vænti þess, að Guðmundur Hraundal dragi nefnd ummæli sín til baka og biðji Reyðfirðinga af- sökunar á þeim. Við það yrði hann maður að meiri.” Ég tjái mig ekki i Vandræðagangurinn í verka- lýðshreyfingunni eystra hefur ver- ið til umfjöllunar i fjölmiðlum undanfarin misseri en Austur- glugginn fjallaði einmitt um málið á forsíðu í síðustu viku. I stuttu máli snýst málið um grafalvarleg- ar ásakanir framkvæmdastjóra Afls á hendur formanninum Jóni Inga Kristjánssyni þar sem sá fyrr- nefndi sakar þann síðarnefnda um að vera óhæfur stjórnandi sem eyði löngum stundum í Reykjavík einhverra hluta vegna. Hér er ekki ætlunin að kveða upp neinn dóm í þessu máli enda erfitt þegar menn virðast vera komnir í þagnarbind- indi. II Það er í tísku hjá lýðræðislega kjörnum fulltrúum á íslandi að tjá sig ekki um leiðinleg mál. Það er til dæmis þekkt staðreynd að afar erfitt er að ná í forsætisráðherrann en hann hefur einstakt lag á því að svara ekki í símann á örlaga- stundu. Ástæðan fyrir þessu er jafn einföld og hún er ósiðleg. Halldór veit að með því að tjá sig ekki er hann að flýta fyrir því að málið gleymist því hann veit sem er að almenningur - sem sagt ég og þú - er fljótur að gleyma og ennþá fljótari að fyrirgefa. Því minna sem hann segir því fyrr er honum fyrirgefið. Ef einhver blaðamaður er svo heppinn að ná í hann leysir °BTnjR þú í LUKKUPO I I Austurgluggans? Allir áskrifendur Austurgluggans, nýir og gamlir fara í lukkupott Dregið verður ú pottinum 1- júni. A.T.H. aðeins skuldlausir áskrifendur fara í Lukkupottinn Vinningar eru: / 1 Sá sem dettur í Lukkupottinn 1. júní fær þessa ferð: Beint flug til Kaupmannahafnar frá Egilsstöðum í sumar i faoð/ Ferðaskrifstofu Austurlands. 2 HP Photosmart 8150 bléksprautuprentari (Ijósmynda) frá Tölvusmiðjunni Ert þú áskrifandi lesandi góður? Ef ekki þá er tækifærið núna og þú kemst í lukkupottinn. Hægt er að gerast áskrifandi í simum 477 1571, 477 1750 og á austurglugginn.is USMIÐJAN *Ferðaskrifstofa Austurlands Ausmr*gluggirm hann málið með frösum eins og: „Þetta er stormur i vatnsglasi” og „Þetta bara æsingur í DV”. III Og eitthvað í þessum dúr eru forsvarsmenn stærsta verkalýðsfé- lagsins á Austurlandi að reyna núna því þegar málið náði hámarki í síðustu viku kepptust menn við að tala sem minnst við blaðamenn. Einn maður, Björgvin Erlendsson, virtist þó hafa lýðræðislegan skiln- ing á stöðu sinn og tjáði sig. „Mér finnst að hinn almenni félagsmað- ur eigi heimtingu á skýringu,” sagði hann réttilega en virtist vera einn um þá skoðun innan stjórnar Afls. Ef forysta verkalýðsins eystra telur að engum komi við hvað hún aðhafist þá finnst mér ekki skrýtið þó l. maí sé varla svipur hjá sjón. Hver vill berjast undir forystu svona manna? JKÁ

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.