Austurglugginn - 06.05.2005, Side 6
6
AUSTUR • GLUGGINN
Föstudagur 6. maí
Á föstudaginn var haldið málþing um ferðaþjónustu á
Austurlandi þar senr fólk úr bransanum talaði um túrisma
á Austurlandi. Katla Steinsson framkvæmdastjóri Mark-
aðsstofu Austurlands ræddi við Austurgluggann um mál-
þingið og ferðaþjónustu á Austurlandi.
Katla tók við starfi framkvæmdastjóra Markaðsstofu Austur-
lands sl. haust. „Mér var boðið þetta starf og mér leist strax
vel á það ” segir Katla en hún kemur úr ferðaþjónustubrans-
af kökunni. Við þurfum vitanlega að stækka þennan hlut.
Ferðamönnum á Islandi fjölgar á hverju ári og við þurfum
að ná þeim til okkar.”
Verðum að nota tímann vel
Þegar deilurnar um álver og virkjanir á Austurlandi stóðu
sem hæst í tengslum við Eyjabakka var umræða um ferða-
þjónustu áberandi en margir andstæðingar virkjunarinnar
töldu að með þeim spjöllum sem unnin yrðu á náttúru
landsins væri verið að gera ferðaþjónustunni erfiðara fyrir og
þá ekki síst vegna þeirrar ímyndar sem fjórðungurinn fengi
á sig. Hvað finnst Kötlu um þetta?
„Þú spyrð mig eiginlega of snemma að þessusegir hún.
„Eg hef einungis verið hérna í nokkra mánuði og ég hef ekki
skoðað Austurland nægilega vel og veit ekki almennilega
hvað er í boði. I vor og í sumar ætla ég að ferðast um fjórð-
unginn og skoða grasrótina gaumgæfilega og þegar ég hef
lokið því skal ég svara þessari spurningu.”
Verðum AÐ KOMA umræðu AF STAÐ
Aðilar í ferðaþjónustu hafa löngum kvartað undan því að
stjórnvöld sýni þessum iðnaði ekki raunverulegan áhuga.
Hvað finnst Kötlu um það?
„Það þýðir ekkert
að vcela endalaust”
„Ég held að það sé ekki til
sú atvinnugrein sem
kvartar ekki undan því að
stjórnvöld sýni hvorki
skilning eða áhuga. Það
er endalaust hægt að
kvarta undan peninga-
skorti og eflaust geta
ferðaþjónustuaðilar hér
fyrir austan gert það líka.
En það þýðir ekkert að
væla endalaust og málið
er finna leiðir til að leysa
þau vandamál sem koma
upp."
Katla Steinsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu
Austurlands.
Frá málþingi um ferðaþjónustu á Austurlandi.
anura og er „alin upp hjá Flugleiðum” eins og hún orðar
það. „Ég er fædd og uppalin í Reykjavík og hafði unnið hjá
Flugleiðum í tuttugu og fimm ár áður en ég kom hingað
austur,” segir hún en hún býr á Egilsstöðum: „Já, sama hvað
menn segja þá eru Egilsstaðir landfræðilegur miðpunktur
Austurlands og þar er best að búa ef maður þarf að þjónusta
allan fjórðunginn,” segir Katla.
Otal tækifæri
Katla segir ótal tækifæri í boði á Austurlandi en í erindi sínu
á málþinginu sagðist hún ekki þekkja nema örfáa staði á
Austurlandi. „Eg mun ferðast mikið í sumar og kynna mér
Austurland en ég veit hins vegar nú þegar að það eru ótelj-
andi möguleikar fyrir Austfirðinga að efla ferðaþjónustu í
fjórðungnum. Ef við skoðum tölur um notkun hótela á Aust-
urlandi þá sýna þær að við eigum eingöngu um tíu prósent
„Neinei, þetta er útí hött,” segir hún. „Það skiptir engu máli
hvaða skoðanir menn hafa á þessu máli en staðreyndin er sú
að þetta mun hafa og hefur nú þegar góð áhrif á ferðaþjón-
ustuna. Við fáum fleira fólk hingað eins og farþegafjöldi til
Egilsstaða sýnir og núna höfum við þennan frábæra veg upp
á Kárahnjúka sem aldrei hefði komið nema vegna þessara
framkvæmda. Ég hef trú á því að ferðamönnum eigi ein-
göngu eftir að fjölga á næstu árum sem má tengja beint við
þessar framkvæmdir,” segir Katla og telur að menn verði að
nota tímann vel á meðan áhuginn er á Austurlandi.
Ætlar AÐ SKOÐA GRASRÓTINA
Sem fyrr segir er Katla ekki Austfirðingur en hún flytur hing-
að frá Reykjavík. Það má því segja að hún sé með augu gests-
ins á umhverfið og hvað finnst henni um þann ferðaiðnað
sem nú þegar er á Austurlandi?
„Á þessum stutta tíma sem ég hef verið hér þá finnst mér nú
að sveitarfélög sýni þessu talsverðan áhuga. Og þar fyrir utan
held ég að það sé ekki til sú atvinnugrein sem kvartar ekki
undan því að stjórnvöld sýni hvorki skilning eða áhuga. Það
er endalaust hægt að kvarta undan peningaskorti og eflaust
geta ferðaþjónustuaðilar hér fyrir austan gert það líka. En
það þýðir ekkert að væla endalaust og málið er að finna leið-
ir til að leysa þau vandamál sem koma upp. Við finnum út
úr þessu og ég hef engar áhyggjur af peningaskorti. Þetta
gerist ekki allt á augnabliki og við erum rétt að byrja hér.
Málþingið núna er meðal annars til þess að koma umræðu
um ferðamál af stað og heyra skoðanir og hugmyndir fólks
sem er að starfa í þessum geira.”