Fréttablaðið - 21.09.2022, Blaðsíða 22
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir,
fósturfaðir og afi,
Gústav Kristján Gústavsson
rafeindavirkjameistari,
Skipalóni 5, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi
fimmtudaginn 15. september.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 26. september kl. 13.
Margrét Sólveig Ólafsdóttir
Ásdís Heiðdal Gústavsdóttir
Berglind Gerða Libungan Bjarni Berg Elfarsson
Lisa Anne Libungan Kjartan Benediktsson
Sindri Fannar Ólafsson Corinna Spruch
Daníel Pálmar Ólafsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar
Guðmundar Hanssonar
veitingamanns,
sem lést 5. ágúst sl.
Kær kveðja,
Haraldur Guðmundsson Bryndís Bjarnadóttir
Albert Þór Guðmundsson Snædís Björt Agnarsdóttir
Stefán Guðmundsson Guðbjörg Lilja Svavarsdóttir
Sæunn Halldórsdóttir
Sigrún Bryndís Hansdóttir
Hrund Apríl Guðmundsdóttir
Elísabet Haraldsdóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma okkar og langamma,
Hulda Marinósdóttir
Grenimel 19, Reykjavík,
lést á endurhæfingardeild Eirar
miðvikudaginn 14. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 29. september kl. 13.
Marinó Einarsson Margrét S. Hansdóttir
Einar Helgi Marinósson Karolina Durek
Birkir Marinósson Alenka Zak
Hulda Árnadóttir Atli Björn Þorbjörnsson
Sólveig Árnadóttir Tryggvi Hákonarson
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar,
móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn
11. september síðastliðinn.
Útför hennar fer fram í Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 22. september kl. 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar og HERU.
Sérstakar þakkir til HERU líknarheimaþjónustu og
starfsfólks líknardeildarinnar fyrir kærleiksríka
umönnun og hlýju.
Nálgast má streymi á https://rb.gy/mtfssl
Sigurður Ingvi Snorrason
Guðmundur Halldórsson Aagot Árnadóttir
Ásta Sigurðardóttir Kristján R. Hjörleifsson
Guðmundur S. Sigurðarson Anna Katrín Þórkelsdóttir
Marían Sigurðsson Guðrún Dís Kristjánsdóttir
Daníel Sigurðarson Eva Hillerz
Hjördís Guðmundsdóttir Þorsteinn Jónsson
Þórdís Guðmundsdóttir
Sverrir Guðmundsson Guðbjörg Pálsdóttir
Kristján Guðmundsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elín Óladóttir
Kirkjusandi 1, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn
4. september sl. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 22. september klukkan 13.
Guðrún Björnsdóttir Trausti Sigurðsson
Arndís Björnsdóttir Sigurður Einarsson
Jens Gunnar Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ár er liðið frá því að Miðgarða-
kirkja í Grímsey brann. Söfnun-
stendur yfir fyrir kirkjuklukkum
í endurreista kirkjuna.
arnartomas@frettabladid.is
Í dag er liðið eitt ár frá því að Miðgarða-
kirkja í Grímsey brann til grunna.
Bruninn var mikið áfall fyrir Grímsey-
inga enda var kirkjan, sem reist var 1867,
þeim einkar kær. Fjöldi muna skemmd-
ist í brunanum, þar á meðal tvær brons-
klukkur kirkjunnar sem bráðnuðu í
eldinum.
Sóknarnefnd Hallgrímskirkju hefur
haft forgöngu um að safna fyrir kirkju-
klukkum fyrir nýja Miðgarðakirkju sem
reist verður í Grímsey. Þar með verður
endurgoldinn greiði Grímseyinga frá
um fimmtíu árum áður þegar þeir gáfu
Hallgrímskirkju eina af klukkum kirkj-
unnar.
Gjafmildur síldarsaltari
„Það var strax stemning fyrir því að
efla til messusamskota sem við gerðum
þrisvar sinnum um haustið,“ segir Einar
Karl Haraldsson, formaður sóknar-
nefndar Hallgrímskirkju. „Það var vegna
sérstakrar tengingar okkar við Grímsey
sem felst í að Grétar Einarsson, kirkju-
vörður og hringjari í Hallgrímskirkju, er
sonur Einars Einarssonar sem bjó í fjór-
tán ár í Grímsey, þar af sex ár sem djákni
í Miðgarðakirkju.“
Síðar meir kom í ljós, þegar litið var
yfir lista gefenda klukkuspilsins í Hall-
grímskirkju 1971 sem samanstendur af
29 klukkum, að ein klukkan var merkt
„Frá Grímseyingum: Gefandi V.F“. Þá
upphafsstafi átti Vigfús Friðjónsson
athafnamaður sem rak um tíma síldar-
söltun í Grímsey. „Þá rann okkur blóðið
til skyldunnar, að nú þyrftum við að
endurgjalda þessa gjöf sem gefin var í
nafni Grímseyinga,“ útskýrir Einar Karl.
Konungleg klukkusteypa
Sóknarnefndin hefur síðan þá unnið í
samráði við þá Hjörleif Stefánsson arki-
tekt og Alfreð Garðarsson, formann
sóknarnefndarinnar í Grímsey, við að
undirbúa smíði á nýjum klukkum. Það
verður gert hjá konunglegu klukku-
steypunni Eijsbouts í Hollandi sem
steypt hefur allar klukkur Hallgríms-
kirkju og annast viðhald þeirra. Stefnt
er á að klukkurnar verði komnar til
landsins næsta vor.
„Þá er meiningin að Hallgrímssöfnuð-
ur fari með klukkurnar í ferð til Gríms-
eyjar á Jónsmessunni,“ segir Einar Karl.
„Mér finnst kirkjubyggingin og klukku-
verkefnið vera táknræn fyrir vilja fólks
til að halda úti þessari byggð. Við viljum
öll að þarna þrauki menn og byggðin efl-
ist og styrkist. Grímseyingar eiga skilið
allan okkar stuðning.“
Í dag er unnið hörðum höndum að
endurbyggingu nýrrar kirkju í Grímsey.
Sú var orðin fokheld á dögunum og hefst
vinna á næstu dögum við að koma stuðla-
bergsskífum fyrir á þaki kirkjunnar.
Byggingarframkvæmdir í eyjunni krefj-
ast meiri fyrirhafnar og kostnaðar en í
landi þar sem flytja þarf allt byggingar-
efni sjóleiðis. Fyrirhugað er að nýja Mið-
garðakirkjan verði vígð næsta sumar.
Í dag munu Grímseyingar og gestir
koma saman í nýju kirkjunni til að minn-
ast þeirrar gömlu og gleðjast yfir vel unnu
verki. Hægt er að fylgjast með gangi fjár-
söfnunarinnar á grimsey.is/kirkja.
Þá fara fram söfnunartónleikar í Hall-
grímskirkju næsta sunnudag klukkan
17.00 undir heitinu Hljómar frá heim-
skautsbaugi, þar sem norðlenskir stór-
söngvarar og tónlistarfólk kemur fram.
Dagskrá tónleikanna má finna á heima-
síðu Hallgrímskirkju. n
Hallgrímssókn hyggst færa
Grímseyingum nýjar klukkur
Miðgarðakirkja brann til grunna 21. september 2021. MYND/UNNUR INGÓLFSDÓTTIR
Búist er við að ný Miðgarðakirkja verði
vígð næsta sumar. MYND/AÐSEND
Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar,
stjúpmóðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Inga Einarsdóttir
Kleppsvegi 22,
áður Bergstaðastræti 24b,
lést föstudaginn 16. september.
Páll Aronsson
Bergþóra Ólafsdóttir Magnús Pálsson
Ragnhildur Ólafsdóttir Haraldur Sigurðsson
Ingunn Ólafsdóttir
Hlöðver Már Ólafsson Erla J. Guðmundsdóttir
Jóhannes Ólafur Ólafsson
Sigríður Pálsdóttir Ólafur G. R. Hauksson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Grímseyingar eiga skilið
allan okkar stuðning.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 21. september 2022 MIÐVIKUDAGUR