Fréttablaðið - 21.09.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.09.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Nánast hvert mannsbarn er vand- lega upplýst um fráfall Elísabetar II. og fullyrt er að annað hvert þeirra hafi fylgst með jarðarför hennar í upphafi vikunnar. Maður getur verið staðfastur lýðveldis- sinni – eins og ég – en engu að síður borið virðingu fyrir mögn- uðu ævistarfi hennar, seiglu og staðfestu. Auðvitað eru konung- dæmi fyrir lifandis löngu úrelt fyrirbæri eftir að eiginleg völd færðust frá þeim og verða sífellt furðulegri í samtímanum. En það breytir engu um það að sinn er siður í hverju landi og vel fer á því að virða það. Ég var stödd í London um liðna helgi og þó að ekki færi á milli mála að elskaður þjóðhöfðingi hafði fallið frá er ekki hægt að segja annað en að almenningur, verslunareigendur og aðrir sýndu minningu hinnar látnu virðingu á lágstemmdan og viðeigandi máta. Á Heathrow-flugvelli var einnar mínútu þögn sem allir tóku þátt í og var það átakalaust og hátíðlegt í einfaldleikanum. Öðru virtist vera að heilsa hér á landi á útfarardaginn. Ég átti leið um nokkra vinnustaði og var nokkuð hissa á tilstandinu. Fólk var vart vinnufært, stórum skjáum komið fyrir í vinnurýmum, breskar veitingar f lóðu af borðum og margir klæddu sig upp á. Sjálfri fannst mér ekki tilefnið vera þess eðlis að fólk lyfti sér upp, enda jarðarfarir sjaldnast þess eðlis, en auðvitað hafa allir sinn hátt á. Eiginmaður minn, jafnvel staðfastari lýðveldissinni en ég, furðaði sig nokkuð á athyglinni og umstanginu og spurði: „Hvað hefur þessi fjölskylda eiginlega gefið út fyrir sína heimahaga?“ Við þessu er auðvitað augljóst svar: Netflix-serían „The Crown“. n Drottning Önnu Sigrúnar Baldursdóttur n Bakþankar MIÐASALA Á SINFONIA.IS 24.09 Kl. 14 & 16 27.10 20:00 Pétur og úlfurinn og Tobbi túba LITLI TÓNSPROTINN 24.09 Kl. 14 & 16 Pétur og úlfurinn og Tobbi túba Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Sérstök útgáfa af Dyngju í takmörkuðu upplagi. Framleidd úr endurunnu efni og einangruð með endurnýttum dún. Engin úlpa eins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.