Æska og menntun - 01.06.1948, Síða 2
Æðsta marhmið
mcnntunarinnar
Eftir
Júlíus Guðmundsson
(iGuð sér inn í litla frækornið, sem hann hefur
skapað og sér í því fagra blómið, Iitia runnann eða
hávaxna, laufskrýdda tréð. Þannig sér hann einnig
möguleikana, sem með manninum búa .... Hann
óskar þess, að við náum hinu hæsta þroskastigi.“
— E. G. W. I den store læges fodspor, bls. 403.
Guð gefur möguleikana, en oft er það svo, að við
látum þá ónotaða, við gefum þeim ekki gaum eða
höfum ekki nægilegt vit til að hagnýta þá.
Umhverfis hús okkar flestra er gróðrarmoldin
með sínum undursamlegu möguleikum. Ef við
hefðum vit og vilja til að hagnýta þá möguleika,
mundu flest heimili — eða að minnsta kosti margfalt
fleiri en raun ber vitni — eiga indælan garð með
trjágróðri, skrautblómum og matjurtum. En þessi
gróður og ræktun hans mundi fegra og auðga líf
okkar og veita okkur andlega og líkamlega heilsu-
bót.
Til eru einstaklingar, sem skara fram úr fjöldan-
um einnig á þessu sviði. Þeir eygja betur mögu-
leika náttúrunnar og gera sér meira far um að
nota þá sér og öðrum til heilla. Hvílíkum árangri
hafa þeir ekki náð, sem mesta trú hafa haft á
möguleikum íslenzku moldarinnar? Á hverju ári
leggur fjöldi fólks á sig löng ferðalög til að skoða
ávöxt iðju þeirra. Hefði fjöldinn farið að eins og
þeir, hvílík gróska og fegurð mundi þá blasa við
víða, þar sem nú ríkir auðn og ömurleiki.
Svipað má segja um möguleika þá, sem i mannin-
um eru fólgnir. Þeir eru miklu meiri en menn gera
sér yfirleitt Ijóst. Lærisveinar Krists voru óbrotnir
almúgamenn, sem ekki voru taldir ráða yfir miklum
möguleikum eða vera líklegir til þess að hafa áhrif
á heimssöguna. En samvera þeirra með Jesú mótaði
þá smátt og smátt. Þeir urðu gagnteknir af háleitum
hugsjónum, og árangurinn er öllum kunnur. Það
kom i Ijós, að þeir réðu yfir meiri möguleikum en
þeir eða aðrir höfðu gert sér Ijóst. Jesús sá þessa
möguleika og hagnýtti þá. Þekktur uppeldisfræðing-
ur hefur með réttu sagt, að hjá mikluin meiri hluta
fólks liggi himinvidd milli þess, sem úr börnum
þeirra varð og hins, sem úr þeim hefði getað orðið,
ef uppeldið hefði verið i betra lagi.
Yfirburðir þeirra manna, sem lengst hafa komizt,
byggjast venjulega ekki fyrst og fremst á þvi, að
meofæddir hæfileikar þeirra séu meiri en hinna,
sem skemmra hafa náð. Það, sem hafið hefur þá yfir
allan almenning, er ástundun þeirra í að hagnýta
möguleika þá, er Skaparinn úthlutaði þeim.
Sönn menntun miðar að hærra marki en því að
veita nemandanum nokkurt magn bóklegrar þekk-
T. v.: Ný viðbótarbygging við skóla vorn í Finnlandi.
— Forsíðumynd: Unglingaskóli vor í Ohio, U. S. A. —