Æska og menntun - 01.06.1948, Side 3
Bókasafn Southern
Missionary College,
Tennessee, U. S. A.
1
í jj;V y'. :■
ingar i því skyni að gera hann færan um að stand-
ast ákveðin próf. Það, sem hún keppir að, er sam-
stilltur þroski allra þeirra hæfileika, sem með
manninum búa, svo að úr honum verði það mesta og
bezta, sem hæfileikar hans leyfa.
Það er almennt viðurkennt, að góð bókleg og
verkleg þekking sé nauðsynleg hverjum manni og
að allar stéttir þjóðfélagsins þarfnist vel upplýstra
manna og kvenna. Hitt er þó enn nauðsynlegia, að
sem flestir af þegnum þjóðfélagsins liafi göfugt liug-
arfar og inni störf sín af hendi, ekki i eiginhags-
muna skyni, heldur sem þjónustu öðrum til heiila.
„Hjartað gott skóp oss Drottinn," kvað Jónas
Hallgrimsson, og víst er um það, að í hverju manns-
hjarta felast möguleikar — mismunandi góðir að
vísu — til göfugs hugarfars. Væri lögð nægileg rækt
við þessa hæfileika hjá hinum ungu, mundi líf
þeirra verða farsælla en oft er, og margvislegri o-
gæfu mundi afstýrt. Við teljum, að þetta sé undir-
stöðuatriði menntunarinnar — að göfugt hugarfar
og háleitar húgsjónir þurfi framar öllu öðru að
stjórna lífi mannsins og knýja hann meðal annars
til þess að auka dugnað sinn svo sem verða má í
þeim tilgangi að verða svo öflugt verkfæri i þjón-
r
ustu hins góða sem unnt er. Hversu mikið á mann-
kynið ekki að þakka þeim einstaklingum — mönn-
um og konum, sem knúin af innri köllun fórnuðu
stundarhagsmunum í þágu háleitra hugsjóna.
Hugsandi mönnum víða um heim er það ljóst,
að þekkingin ein er ekki nægileg menntun. Um
gildi kristinnar menntunar skrifar dr. ,1. D. Rankin,
rektor háskóla eins i Ohio, Bandaríkjunum eftir-
farandi:
„Hvers konar skóla eigum við að velja? Hafi hin
siðari ár kennt okkur nokkuð, þá er það það, að jafn
vel hið fullkomnasta menntunarkerfi, er menn setja
á stofn, eykur mátt manna til að framkvæma það,
sem illt er engu siður en hið góða, nema því að
eins að hjartað sé menntað jafnt og heilinn.
Eitt af því hættulegasta, er menn geta færzt i fang,
er að veita mönnum menntun, nema sannur kristin-
dómur sé henni samfara. Það er að brýna sverð, sem
lent getur í höndum djöfla. Æðri menntuo styrkir
ekki ávallt siðferði manna. Hér verða kristilegir
skólar að koma til. Þeir eru aflvél siðferðishugsjóna
þjóðarinnar. Veraldieg menntun getur ekki mótað
göfuga lyndiseinkunn og kristilegar dyggðir.
. ■■