Fréttablaðið - 30.09.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.09.2022, Blaðsíða 6
bth@frettabladid.is Safnafólk segir að svara verði hvað- an tillaga um að skipa Hörpu Þórs- dóttur þjóðminjavörð hafi komið án þess að Lilja Alfreðsdóttir menn- ingarmálaráðherra auglýsti starfið. „Þetta er það sem enginn veit en þarf að svara,“ segir Sigurjón B. Haf- steinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands. Fram kemur í upptöku sem Fréttablaðið hefur undir höndum frá safnaþinginu að Lilja ræðir að til- laga hafi borist á hennar borð. Hún harmar málið og segir að í ljósi við- bragðanna hefði hún betur staðið öðruvísi að málum. „Það er óreiða í svörum ráðherra um það hvernig farið var í þessa veg- ferð,“ segir Sigurjón. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, for- maður alþjóðaráðs safna, ICOM, segir að á sáttafundi á mánudag hafi Skúli Eggert Þórðarson ráðuneytis- stjóri sagt að auglýsing um stöðu þjóðminjavarðar hafi verið tilbúin í sumar. Síðan hafi verið sveigt af leið. „Hann sagði þetta, að það hefði verið búið að setja upp auglýsingu, við spurðum en það komu engin svör við því hvers vegna hætt var við að birta hana og gefa fólki kost á að sækja um stöðuna,“ segir hún. „Ég tjáði ráðuneytisstjóra á fund- inum að einmitt þetta atriði upp- lifði safnafólk sem vanvirðingu og sniðgöngu. Þau sögðu að þeim þætti það leitt en engar frekari skýringar voru gefnar,“ segir Ólöf Gerður. Fréttablaðið hefur í tvo daga beðið svara frá Lilju Alfreðsdóttur við fyrirspurn blaðsins um hvers vegna hún hafi sagt að hún geti ekki afturkallað skipan Hörpu og hvaðan tillaga um skipan Hörpu kom. Svör eru sögð í vinnslu. Þá hefur Fréttablaðið spurt Hörpu Þórsdóttur hvort hún hafi sjálf gert tillögu um að verða færð til í starfi í stöðu þjóðminjavarðar. Einnig var Harpa spurð hvort hún hefði íhugað að höggva á hnútinn í rammri deilu safnafólks og sérfræðinga vegna málsins með því afþakka skipanina. Ekki hafa borist svör. n Auglýsing um stöðu þjóðminjavarðar var til Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður ICOM Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor í safnafræði Staðsetning fyrirhugaðrar þangvinnslu Asco Harvester í Stykkishólmi vekur miklar deilur í bænum. Forseti bæjar- stjórnar segir mikilvægt að 25 ný störf verði til. Fyrirtækið segir ekkert að óttast. bth@frettabladid.is STYKKISHÓLMUR Ósætti er í Stykkis- hólmi eftir að meirihluti sveitar- félagsins samþykkti að úthluta fyrirtæki umdeildri lóð við Nesveg vegna fyrirhugaðrar þangverk- smiðju. Íbúar sem búa næst verk- smiðjunni óttast sjónmengun, hávaða og lyktarmengun. Uppi hafa verið ásakanir um að skipulagslög hafi verið brotin og starfræksla verksmiðjunnar muni bitna á útivistarmöguleikum. Þá hafi áformin ekki verið kynnt bæj- arbúum sem skyldi. Forseti bæjar- stjórnar vísar því á bug að bærinn hafi farið offari í málinu. Nok krar kærur hafa borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála og er von á f leirum að sögn íbúa. Jarðvegsframkvæmdir við verksmiðjuna eru hafnar. Þorgeir Már Samúelsson, sem býr í Nestúni 7, í nágrenni við verk- smiðjuna, segir kærurnar hafa verið sendar, þar sem íbúar hverfisins sjái að óbreyttu fram á rýrnun á virði fasteigna sinna. „Enginn myndi kaupa hús í grennd við gúanóverksmiðju,“ segir Þorgeir. Hann segist sjálfur þekkja svona vinnslu, hann hafi starfað við Þör- ungaverksmiðjuna á Reykhólum í 40 ár. „Þar var bæði lykt og hávaði og þetta mun skapa ónæði. Auk þess á svona framleiðsla ekki heima við hlið skipasmíðastöðvar eins og þarna er,“ segir Þorgeir og óttast að málningarúði gangi yfir fyrirhug- aða matvælaframleiðslu. „Þetta er pólitískur skrípaleikur í krafti auðvaldsins. Þetta eru frekju- hundar,“ segir Þorgeir. „Það eru íhaldsmenn sem fjármagna þessa verksmiðju og það eru íhaldsmenn í meirihluta þessa sveitarfélags.“ Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, for- seti bæjarstjórnar og oddviti H-list- ans sem situr í meirihluta í Stykkis- hólmi, segir margar hliðar á öllum málum. „Við fögnum því að fá starfsemi í bæinn, það var lokað hjá okkur verksmiðju í fyrra og 30 störf hurfu úr bænum, nú fögnum við 25 nýjum störfum í staðinn með þessari verksmiðju.“ Hrafnhildur minnir á að svo hafi virst sem bæði meirihlutinn og minnihlutinn í bæjarstjórn væru samstíga í málinu framan af. „Allt í einu núna er þetta mikið mál,“ segir Hrafnhildur og bendir á að öllum reglum verði fylgt og ef eitthvað bjáti á yrði starfsemin stöðvuð ef hún brýtur í bága við kröfur. Oddvitinn segist þó skilja áhyggj- ur fólks sem búi næst verksmiðjunni en hún telji fullvíst að fyrirtækið sjái vel um sín mál. Sigurður Pétursson, stjórnar- formaður Asco Harvester, segir að stefnt sé á að vinnsla geti hafist næsta sumar. „Þarna er um að ræða umhverfis- væna fullvinnslu sjávarafurða á atvinnulóð fyrir hafsækna starf- semi,“ segir Sigurður. Hann segir ekkert að óttast þótt staðsetningin sé umdeild. Nýjasta tækni muni hljóðdempa starfsem- ina og þótt þang lykti alltaf verði þau áhrif lágmörkuð með búnaði og fersku hráefni. n Staðsetning þangverksmiðju Asco í Stykkishólmi kærð Teikning af fyrirhugðu mannvirki. AÐALFUNDUR kNAttspyRNUDeiLDAR FyLkis Miðvikudaginn 19. október 2022 kl. 19:30 er boðað til aðal- fundar knattspyrnudeildar Fylkis í samkomusal Fylkishallar. Dagskrá: • Hefðbundin aðalfundastörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins. • Önnur mál. stjórn knattspyrnudeildar Fylkis öll velkomin! Stefnumót við vísindafólk! u ót við vísindafólk! fn m t við vísindafólk!vísindavakaka i dav ka Laugardalshöll laugardagur 1. október kl. 13.00 - 18.00 Uppi hafa verið ásakanir um að skipulags- lög hafi verið brotin í málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VIL- HELM Sigurður Pétursson, stjórnar- formaður Asco Harvester thorgrimur@frettabladid.is ORKUMÁL Gasleki hefur greinst á fjórum stöðum úr gasleiðslunum Nord Stream 1 og 2 í Eystrasalti. Rík- isstjórnir Danmerkur og Svíþjóðar greindu frá því í gær að um væri að ræða tvær skemmdir inni í landhelgi hvors ríkisins fyrir sig. Atlantshafsbandalagið telur gas- lekann vera af völdum skemmdar- verka og segir að árásum á innviði hernaðarbandalagsins verði svarað með sameiginlegum viðbragðs- aðgerðum. Í yfirlýsingunni sem bandalagið gaf út í gegnum Norður- Atlantshafsráðið var ekki farið nánar út í það hver viðbrögðin kynnu að verða eða hver ætti að hafa framið skemmdarverkin. Sum aðildarríki NATO og banda- menn þeirra, þar á meðal Spánn og Úkraína, hafa þó verið ómyrk í máli og beinlínis bendlað Rússa við skemmdirnar. Mykhajlo Podoljak, ráðgjafi forseta Úkraínu, jafnaði skemmdarverkunum við hryðjuverk og sagði Rússa bera ábyrgð á þeim. Fyrir sitt leyti hafna Rússar því að hafa átt við leiðslurnar en segja lekann þó bera merki þess að vera af völdum ríkisstyrkts hryðjuverks. „Það er afar erfitt að ímynda sér að ámóta hryðjuverk hafi getað gerst nema með tilstuðlan ríkis af ein- hverri gerð,“ sagði Dmítríj Peskov, talsmaður ríkisstjórnar Rússlands. Rússar segja Bandaríkjamenn koma til með að græða á skemmd- um á gasleiðslunum þar sem þeir gætu aukið sölu á fljótandi jarðgasi til Evrópu ef leiðslurnar yrðu ónot- hæfar. María Zakharova, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, tók svo til orða að lekarnir væru á landsvæði sem væri „undir full- kominni stjórn bandarískra leyni- þjónustustofnana“. n Skiptast á ásökunum vegna lekans Sjórinn í landhelgi Svíþjóðar freyðir þar sem gasið stígur úr neðansjávar- leiðslunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 6 Fréttir 30. september 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.