Austurglugginn


Austurglugginn - 22.08.2014, Síða 4

Austurglugginn - 22.08.2014, Síða 4
4 Föstudagur 22. ágúst AUSTUR · GLUGGINN Ritstjóraspjall Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Sverrir Mar Albertsson • Fréttir: 477 1750 / frett@austurglugginn.is • Auglýsingar: 696 6110 / auglysing@austurglugginn.is • Áskriftasími: 477 1571 Efnisvinnsla og auglýsingasala: Austurfrétt ehf.• Gunnar Gunnarsson blaðamaður • Stefán Bogi Sveinsson auglýsingastjóri Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf., Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Umbrot og prentun: Héraðsprent. Það getur verið gaman að skoða samtímann í ljósi sögunnar. Við lifum nú tíma sem kannski verður í sögubókum framtíðarinnar kennd- ur við evró-engilsaxneska heims- veldið. Því þó svo að breska ljónið hafi misst forystuna í kjölfar fyrri heimstyrjaldarinnar og þungamiðja valdsins færst yfir til Washington – varð tilfærslan tiltölulega áfallalítil fyrir borgara Vesturlanda. Það er einnig áhugavert að kynna sér hvað fræðmenn telja að hafi orðið hinum ýmsu „heimsveldum“ að falli og má t.d. nefna Akkadiu – sem er eitt fyrsta „heimsveldið“ og var uppi fyrir 4.000 árum. Ríki Akkada var að sumu leyti vel þróað – tók upp formlega póstþjónustu og lagði vegi. Á hinn bóginn var stjórnmálaforysta þess ótraust á síðari hluta tilvistar þess og ekki síst voru embættismenn áhugalitlir um velferð íbúa og ríkið féll í kjölfar mikilla verðhækkana á matvælum samfara hungursneyð. Ef litið er t.d. til Rómarveldis þá stóð hnignun þess yfir um langt skeið. Á þessum tíma var pólitísk spilling mikil, auðæfum var mjög misskipt og yfirstjórn ríkisins yfir- leitt áhugalítil um afkomu hinna almennu borgara – hryggjarstykkis Rómarveldis þegar það var sterkast. Í staðinn fyrir góða stjórnsýslu og traust efnahagslíf reyndu síðustu keisararnir að kaupa sér vinsældir með blóðugum leikjum og gjafa- korni til almennings. Ef litið er til samtímans sjáum við að misskipting auðæfanna hefur aldrei verið meiri, almennt virðist viðurkennt að 10 – 20% borgaranna lifi við stöðugt atvinnuleysi eða að vera settur í jaðarhópa á trygg- ingabótum. Á sama tíma glímir síðan millistéttin, „hryggjarstykki“ evró-engilsaxneska módelsins, við tilvistarkreppu þar sem hver kyn- slóð getur eiginlega verið viss um að hún muni ekki njóta jafngóðrar afkomu og næsta kynslóð á undan. Á sama tíma hefur framboð á ýmsum efnislegum gæðum aldrei verið meira og framboð á afþrey- ingu er svo mikið að engum þarf að leiðast. Með látlausum aðgangi að lánsfé er almenningur orðinn nánast ánauðugur fjármálavaldinu. En fólk er farið að setja stór spurn- ingarmerki við siðferði og stjórn- arfar og ekki síst hin ósýnilegu völd peningafurstanna sem enginn kaus og enginn virðist geta komið böndum á. Þessi „bylting“ hugarfarsins varð hér á landi í búsáhaldabyltingunni og formgerð með kjöri Jóns Gnarr sem borgarstjóra. Í nágrannalöndunum birtist hún m.a. með mótmælum „Anonymous“ samtakanna og „Occupy Wall Street“ aðgerðunum. Jaðarsettu hóparnir mótmæla á sinn hátt – m.a. í Ferguson í Bandaríkj- unum um þessar mundir og fá ár eru síðan Frakkland logaði stafnanna á milli í kynþáttaóeirðum – sem eru kannski ekki kynþáttaóeirðir í raun heldur fremur fátækrahverfin að tjá sig þannig að eftir verði tekið. Þannig minnir ýmislegt í sam- tímanum á ástand fyrri heims- velda á árunum fyrir fall þeirra og á sama tíma horfa hundruð milljóna manna – sem ekki njóta sömu lífs- gæða og íbúar evró-engilsaxneska heimsveldisins – yfir til Evrópu og gæðanna þar. Í austri skekja Pútín og fylgismenn hans vopnin og sjá endurvakið rússneskt heimsveldi í hyllingum. Í suðaustri telja bók- stafstrúarmenn Islams það sína heilögu skyldu að troða trú sinni og menningu upp á allt og alla eða gera þá hauslausa ella. En eins og í öllum átökum síðustu alda eru raunverulegir stjórnend- ur einhvers staðar bak við tjöldin og spila með almenning eins og skákmenn fórna peðum – og eins og í fyrri hildarleikjum verður það almenningur sem fórnað verður á vígvöllum. Fyrst þarf hins vegar að kynda undir þjóðernishrokanum og þjappa fólkinu saman í lið. Það eru nágrannar okkar í austri búnir að gera, svo og í suðaustri. Á sama tíma ólgar í innviðum Vesturlanda vegna græðgi þeirra sem raunveru- lega fara með völdin. Það er engin vissa fyrir því að sú samfélagsgerð sem við þekkjum og teljum sjálfsagða – eins og að lýðræði og mannréttindi séu ein- hver náttúrulögmál – lifi langt fram á öldina. -Salb. Fisktegund Bakkafj. Vopnafj. Borgarfj. Seyðisfj. Nes- kaupst. Eskifj. Fáskrúð fj. Stöðvar fj. Breið- dalsv. Djúpiv. Horna-fj. Samtals fiskteg. Þorskur 30 9 24 48 41 10 0 20 2 14 27 225 Ýsa 3 0 1 6 0 2 0 13 0 0 1 26 Ufsi 0 0 0 13 0 0 0 0 0 1 9 23 Karfi / Gullkarfi 0 0 0 30 1 0 0 0 0 0 0 31 Langa 0 0 0 1 0 0 0 0 1 0 13 15 Blálanga 0 0 0 1 0 0 0 0 0 0 0 1 Keila 0 0 1 0 1 0 0 0 0 0 2 4 Steinbítur 0 0 0 0 0 0 0 1 0 0 0 1 Grálúða 0 0 0 0 58 0 0 0 0 0 0 58 Skarkoli 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 1 Samtals botnfiskur 35 9 26 100 101 12 0 35 3 17 52 390 Síld 0 270 0 0 578 0 25 0 0 0 131 1004 Kolmunni 0 7 0 0 23 0 0 0 0 0 4 34 Samtals uppsjávarfiskur 0 277 0 0 601 0 25 0 0 0 135 1038 Tindaskata 0 0 0 0 1 0 0 0 0 0 0 1 Skata 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 1 Makríll 0 1572 0 0 4428 565 372 0 0 0 738 7675 Grásleppa 0 1 0 0 1 0 0 0 0 0 0 2 Samtals aðrar tegundir 1 1573 0 0 4430 565 372 0 0 0 739 7680 Samtals alls 36 1859 26 100 5132 577 397 35 3 17 926 9108 Sjávarsíðan Landaður afli eftir tegundum í austfirskum höfnum 10. - 16. ágúst 2014. Afli í tonnum upp úr sjó (óslægt). Tölur frá Fiskistofu.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.